NT - 01.08.1985, Blaðsíða 5
Unglingar reyndust
bestu þjálfaramir
■ Ýmislegt óvænt kom upp í
bréfdúfukeppninni sem Visa
hélt um síðustu helgi. Upphaf-
lega átti að halda keppnina á
laugardaginn, en hætt var við
það vegná veðurs. Dúfunum
var sleppt lausum á Kirkju-
bæjarklaustri á hádegi á sunnu-
dag. Úrslitin réðust síðdegis á
sunnudeginum og komu þau
öllum á óvart. Nokkrir ungling-
ar úr unglingadeild bréfdúfu-
félags Reykjavíkur skutu þeim
fullorðnu ref fyrir rass og röð-
uðu sér í efstu sætin.
Það var hart barist um fyrstu
sæti keppninnar og aðeins voru 8
sekúndur á milli fyrstu dúfunnar
og þeirrar sem lenti í öðru sæti.
Hraðskreiðasta dúfan er í
eigu Þóris Eggertssonar og flaug
hún frá Kirkjubæjarklaustri inn
í Laugardal á 937,56 metra
meðalhraða á mínútu. Bræð-
urnir Hannes og Stefán Jónssyn-
ir áttu dúfuna sem lenti í öðru
sæti. Hún flaug á meðalhraðan-
um 936,95 metrar á mínútu.
Félagarnir Ásbjöm Gíslason og
Vilhelm Sigurjónsson áttu dúf-
una sem hafnaði í þriðja sæti,
hún flaug á meðalhraðanum
936,26 metrar á sekúndu. Þess-
ir drengir eru allir á aldrinum
15-16 ára.
Bréfdúfukeppni fer þannig
fram að öllum dúfunum er
sleppt lausum á sama stað á
sama tíma, og síðan fljúga þær
til síns heima. En þar sem
dúfurnar eiga ekki allar heima á
sama stað getur munað nokkr-
um kílómetrum á vegalengdinni
sem flogin er. Dúfurnar hafa
því sérstakan borða um fótinn
og þegar þær ná heim, tekur
eigandi dúfunnar á móti henni
tekur af henni borðann og
stimplar hann inn í sérstaka
klukku. Klukkan er innsigluð
og er farið með hana til keppnis-
stjórans sem reiknar út með-
alhraða hvers fugls.
í hófi sem haldið var að
keppninni lokinni lýstu þeir full-
orðnu yfir ánægju sinni með
þennan skyndilega og góða
árangur strákanna og sögðust
þeir vona að þessi göfuga íþrótt
mætti blómstra og þroskast hjá
þessum ungu drengjum.
■ Um hundrað dúfur tóku
þátt í keppninni. Á myndinni
sést þegar verið er að sleppa
Þeim lausum á Kirkjubæjar-
klaustri.
■ Sigurvegarinn í höndum þjálfara síns Þóris Eggertssonar, að lokinni
keppninni. Þórir sagði að dúfan væri ekki þreytt eftir þetta 200 kílómetra flug.
NT-mynd Sverrir.
Er nær alla daga
hjá bréfdúfunum
Rætt við Þóri Eggertsson
■ „Ég átti 5 dúfur í keppninni og
þessi sem vann á sér skemmtilega
sögu“, sagði Þórir Eggertsson 15 ára
og gamall unglingur, sem átti dúfuna
sem sigraði í bréfdúfukeppninni.
„Það voru nokkrar dúfur seldar til
Hafnar í Hornafirði og var þessi
meðal þeirra. Einhverra hluta vegna
hefur hún sloppið þaðan og flaug hún
hingað aftur, um það bil 330 kílómetra
vegalengd. Dúfan hefur þekkt um-
hverfið vel, því hún var alveg óþjálfuð
þegar hún var seld.
Við geymdum hana í pappakassa í
viku og reyndum að hafa upp á eig-
anda hennar. Það tókst ekki og þá var
hún sett í sóttkví í 10 daga, eftir það
var ég fenginn til að sjá um hana.
Þetta er karl og ég paraði hann við
kerlingu og þjálfaði hann í þrjá daga.
Þá fór ég með hana á Hvolsvöll og hún
skilaði sér til baka á ágætum tíma.
Síðan hef ég þjálfað hana með mínum
dúfum.
Þetta er mjög skemmtilegt tóm-
stundagaman. Ég er nær alla daga hér
hjá dúfunum. Það eru sumir hneyksl-
aðir á því að maðurskuli hanga hér,
en maður gerir þá ekkert verra á
meðan.
Ég er búinn að vera með dúfur í 8
ár. Fyrst var ég bara með skræpur, en
síðustu 2 árin hef ég verið með
bréfdúfur. Við eru tveir saman og
eigum hátt í 60 dúfur. Þetta er dálítið
dýrt, hver fóðursekkur kostar um 600
krónur og hann endist í um það bil
hálfan mánuð. En ég kem til með að
fóðra þær ókeypis næsta hálfa árið,
því ég fékk 10 fóðurpoka í verðlaun,
auk farandverðlauna sem er útskorin
dúfa, svo fékk ég bikar til eignar.
Eigum fyrirliggjandi
MARSHALL 704
72 ha. din fjórhjóladrifinn. Með sérstaklega glæsilegu húsi með öllum
þægindum. Yfirstærð á kúplingu. 55 lítra tvöföld vökvadæla. Tveir vökva
stjórnlokar. Vökvastýri. Sinchro gírskipting. Lyftukrókur. Dráttarbiti.
Radíal dekk. 2ja hraða aflúrtak. Ljósabúnaður í sérflokki. Allt þetta er
innifalið í verðinu sem er aðeins
kr. 670.000.- án söluskatts.
Staðgreiðsluverð kr. 638.000.-
Staðgreiðsluverð telst vera ef greitt er innan 3ja mánaða.
Sýningarvél á staðnum.
Vélaborg Bútækni hf. Sími 686655/686680
SÉRSTAKT VERD