NT - 01.08.1985, Blaðsíða 23
Landsmótið í golfi:
Hörkukeppni
í 2. flokki
■ Landsmótið í golfi
hófst á Akureyri í gær
með keppni í 2. flokki
karla og kvenna og 3.
flokki karla. Keppnin var
jöfn og spennandi,
einkanlega í 2. flokki
karla, þar sem tvö högg
skilja efsta og 10. mann.
Efstur í 2. flokki þegar
fyrstu 18 holurnar af 72
hafa verið leiknar er Hall-
dór Þormar, GR. Hann
lék í gær á 83 höggum. í
öðru sæti er Guðmundur
Sigurjónsson, GS, sem
einnig lék á 83 höggum.
Þriðji er Sigurþór Sæv-
arsson, GS, og fór hann
hringinn á sama högga-
fjölda. Þrír léku svo á 84
höggum og fjórir á 85
höggum!
I 2. flokki kvenna er
Sigríður B. Ólafsdóttir,
GH, efst með 92 högg á
fyrstu 18 holurnar. Kon-
urnar leika 36 holur.
Hildur Þorsteinsdóttir,
GK, er önnur með 93
högg og Auður Guðjóns-
dóttir, GK, í þriðja sæti
nieð 97 högg.
í 3. tlokki karla erBessi
Gunnarsson, GA, ineð
forystuna. Hann lék á 84
höggum, tveimur högg-
uin minna en ívar Harð-
arson, GR. Sigurður
Aðalsteinsson, GK, er
þriðji með 87 högg.
Leiknar verða 72 holur í
3. flokki.
Tap á Sigló
■ Svarfdælir sigruðu
Skytturnar 2-3 á Siglu-
firði í D-riðli 4. deildar í
gærkvöldi. Heimamenn
voru yfir 2-1 í hálfleik og
skoruðu Gunnlaugur
Guðleifsson (víti) og
Ragnar Ragnarsson
mörk þeirra. Guðmundur
Jónsson, Tómas Viðars-
son og Hörður Lilliandal
skoruðu fyrir Dalvíkinga.
A þriðjudagskvöld
sigraði Vaskur Árroðann
6-2 í E-riðli. Tómas
Karlsson gerði tvö, fyrir
Vask og Jónas Baldvins-
son, Hjörtur Unnarsson,
Halldór Aðalstcinsson og
Valdimar Júlíusson eitt
hver. Örn Tryggvason og
Friðrik Jónasson svör-
uðu.
Sigurður
verður með
■ Sigurður Petursson,
GR, Islandsmeistari í
golfi verður meðal þátt-
takenda þegar ræst verð-
ur út í meistaraflokki á
landsmótinu á Akureyri í
dag. Hann hefur átt við
meiðsli í baki að stríða og
verið undir læknishcndi.
í gær ákvað hann síðan
að freista þess að verja
titil sinn og verður spenn-
andi að sjá hvort honum
tekst það.
■ Nokkrir leikir fóru fram í eldri flokki knattspyrnu í gærkvöldi. Í Safamýrinni
Val, Jón Pétur Jónsson eitt og Birgir Einarsson hið fjórða. Erlendur Magnússon
0-2, áður en Erlendur náði að svara. í Sæviðarsundinu léku Þróttarar við Selfoss og
Ármann og Haukar gerðu jafntefli 2-2. Sveinn Guðnason kom Ármanni yfir en Úlfar
Guðmundur Haraldsson jafnaði á ný. Á myndinni hér að ofan berjast gamlar stjörnur
sigraði Valur Fram 1-4. Kappinn kunni Hermann Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir
skoraði fyrir Fram úr víti. Öll mörkin komu í síðari hálfleik og komust Valsmenn í
sigruðu 3-0. Tryggvi Geirsson skoraði tvívegis ög Sverrir Brynjólfsson gerði hið þriðja.
Brynjarsson jafnaði metin. Ingólfur Magnússon náði aftur forystu fyrir Ármann en
í Safamýrinni, en myndina tók Árni Bjarna.
Argentína tapadi
- fyrir Áströlum nokkuð óvænt - miklar öryggisráðstafanir
■ 1 gær hófst í Kína HM
drengjalandsliða. Fyrsti leikur
keppninnar var á milli Kínverja
og Bólivíu og endaði leikurinn
með jafntefli 1-1. Það voru
Bólivíumenn sem voru sterkari
en Kínverjar spiluðu góða vörn.
Þrír aðrir leikir voru í gær og
kom mest á óvart að Argentínu-
menn, með Hugo Maradona,
bróðir Diego Maradona, í farar-
broddi töpuðu fyrir Áströlum
með einu marki gegn engu.
Ástralir skoruðu í fyrri hálfleik
og vörðust síðan mjög vel. Þá
spiluðu Saudi Arabar og Costa
Rica-menn og unnu Arabarnir
4-1. Þá gerðu Ungverjar og
Mexíkanar markalaust jafntefli
í Shanghai.
Milar öryggisráðstafanir hafa
verið gerðar á leikjunum til
þessa og þá sérstaklega á leik
Kínverja og Bolivíumanna.
Yfirvöld knattspyrnumála í
Kína vilja greinilega ekki að
ólæti brjótist út á leikjunum
eins og gerðist á leik Kínverja
og Hong Kong-manna fyrir
nokkru er þeir síðarnefndu sigr-
uðu og gerðu vonir Kínverja
um sæti í HM í Mexíkó að engu.
Meðal þess sem gert hefur verið
er að koma á samkeppni milli
borganna fjögurra sem halda
keppnina en það eru Peking,
Tianjin, Dalian og Shanghai,
um hverri þeirra takist best upp í
öryggismálum og hvar áhorf-
endur verða prúðastir. Áhorf-
endur í Peking á leik Kínverja
og Bólivíumanna voru mjög
stilltir og er það m.a. talið stafa
af því að Kínverjar og Bólivíu-
menn hafa nýlega tekið upp
stjórnmálasamband sín á rnilli.
Jafntefli í leiknum var einnig
vel við hæfi.
■ Gross hefur oft fagnað sigri
í sundlauginni. Fagnar hann
fjórum sinnum í næstu viku?
TekstGrossað
vinna fjórfalt?
- á HM í sundi sem hefst í næstu viku
■ „Michael Gross mun ein-
beita sér að því að setja heims-
met í 200 m flugsundi. Allt
annað er aukaatriði. Hann
stefnir að því að verða fyrstur til
að synda á undir 1:57.00,“ segir
Manfred Thiesmann þjálfari
Gross.
Gross, sem kallaður hefur
verið „Albatrossinn", mun
keppa á Evrópumeistaramótinu
í sundi sem hefst í Sofía í næstu
viku. Hann mun ekki einungis
keppa í 200 m flugi heldur
einnig í 200 m skriði og 100 m
flugi svo og 4x200 m skriðsundi.
Búist er við að hann vinni til
gullverðlauna í öllum þessum
greinum. Gross á einnig heims-
met í 400 m skriði en hann hefur
ekki látið skrá sig í það sund.
Einbeitingin mun verða á 200 m
flug.
Ulfarnir:
Fresturtil
9. ágúst
■ Hið fornfræga enska
knattspyrnulið, Wolver-
hampton Wanderes, best
þekkt á íslandi sem Úlf-
arnir, hefur fengið frest
til 9. ágúst að greiða
skuldir sínar. Allar líkur
benda til þess að félagið
fari á hausinn, það skuld-
ar 700.000 sterlingspund
eða um 4 milljónir ís-
lenskra króna. Wolves
var eitt af stofnendum
ensku deildarkeppninn-
ar. Forráðamenn félags-
ins segja að greiðslu-
trygging sé á leiðinni og
því ákvað áfrýjunar-
dómstóll sá sem hefur
með málið að gera að
veita þeim frest til hádeg-
is þann 9. ágúst.
Norðurlandamót drengjalandsliða:
„Strákarnir voru þreyttir
eftir leikinn við Dani“
sagði Lárus Loftsson, landsliðsþjálfari eftir 1-3 tap gegn Englendingum
■ íslendingar töpuðu 1-3 fyr-
ir Englendingum á Norður-
landamóti dengjalandsliða í
knattspyrnu í Bergen í gær. í
hálfleik var staðan 1-1.
Englendingar, sem keppa
sem gestir á mótinu, náðu
forystu á 35. mínútu. Eftir
varnarmistök náði einn þeirra
að leika í gegnunr íslensku
vörnina og senda knöttinn í
netið.
Aðeins þremur mínútum
síðar náðu íslendingar að
jafna. Rúnar Kristinsson átti
þá gott skot utan úr vítateign-
um og knötturinn sigldi í netið.
Laglegt mark.
Á 52. mínútu kom annað
mark Englendinga. Einn ís-
lensku drengjanna skallaði
knöttinn í eigin þverslá er
hann hugðist hreinsa frá mark-
inu og er boltinn hrökk niður
aftur náði enskur leikmaður
að moka honum í netið.
Síðasta markið kom fimm
mínútum fyrir leikslok.
HM drengjalandslið í Kína:
„Strákarnir voru mjög
þreyttir eftir erfiðan leik á
þriðjudag gegn Dönum,“
sagði Lárus Loftsson, lands-
liðsþjálfari eftir leikinn. Þann
leik unnu íslendingar 4-3 og
var það fyrsti sigur íslensks
knattspyrnuliðs á dönsku á er-
lendri grund.
„Þetta er erfitt mót,” sagði
Lárus. „Það er spilað á hverj-
um degi og strákarnir eru
óvanir að spila svona ört.
Enska liðið er geysilega
sterkt. Leikmenn þess eru
flestir á biðlista hjá ensku
knattspyrnuliðunum, margir
hverjir komnir með samning,4'
sagði Lárus.
Önnur úrslit í gær urðu þau
að Norðmenn unnu Svía 1-0
og Danir unnu Finna 3-2.
Staðan á mótinu er þá þessi eftir þrjár
umferdir:
Noregur 3 3 0 0 5-1 6
England 3 2 0 1 8-5 4
Svíþjóð 3 2 0 1 7-4 4
Danmörk 3 1 0 2 6-8 2
ísland 3 1 0 2 5-9 2
Finnland 3 0 0 3 3-7 0