NT - 01.08.1985, Page 12

NT - 01.08.1985, Page 12
Fimmtudagur 1. ágúst 1985 12 Toyota Land Cruiser II reynsluekið: NYJU FOTIN KRÚSARANS ■ Árið 1951 gerði Toyota í Japan sinn fyrsta jeppa og kallaði Land Cruiser. Grunsamlega var hann líkur Willys- jeppanum góðkunna þótt stærri væri, 6 strokka vélinni og hásingunum var stolið frá Chevrolet og eflaust var fleira gripið ófrjálsri hendi. 1955 hafði „Krúsinn“ endan- lega tekið á sig þá mynd sem síðan hélst óbreytt í 3 áratugi. Á þeim tíma fjölgaði gerðun- um, díselvélar urðu fáanlegar, framleiðslan jókst jafnt og þétt og var komin í 10.000 á mánuði þegar 10 milljóna markinu varð náð 1983. Hafði Land Cruiser- inn þá ýtt mörgum keppinautum svo sem hálfnafnanum Land Rover og gömlu fyrirmyndinni Jeep til hliðar á þeirra gömlu mörkuðum um allan heim, enda einn sterkasti fáanlegi jeppinn. Nú fyrst á því herrans ári 34 eftir L.C. burð er Krúsa gamla kippt aftur inn í nútímann. Japanirnir þurfa nú engu að stela lengur, nýja yfirbyggingin er eftir nýjustu japönsku jeppa- tísku og fæst í ótal tilbrigðum á gamla undirvagninn í þrem lengdum. Að auki er ný grind með gorma framan og aftan, léttari vélar og kram sem á ekkert sameiginlegt með þeim gamla annað en nafnið. Þessi stutti léttamatrós Land Cruiser II, er eina gerðin sem Toyota umboðið hér flytur nú inn auk stóra Station vagnsins. Við fyrstu sýn virðist hér kom- inn hinn ídeal jeppi, með mýkt og aksturseiginleika Range Rover en styrk og endingu Toyotunnar, því fjöðrunarbún- aðurinn er alveg eins og undir Range Rover. Svo er þó því miður ekki. Smíði og samsetning er í sama gæðaflokki og vant er af Toyota, en fjöðrunin er allt of höst og óþægileg, meira í ætt við Land Rover en Range Rover. Þrátt fyrir fjaðrandi sætin sem kosta 23.000 aukalega er óþægilegra að ferðast í Land Cruiser II en t.d. Hilux vörubílnum, því setið er rétt fyrir framan afturhjólin. Að framan er fjörðunarvega- lengdin líka eins og vant er allt of stutt, svo stundum ber hann saman með dynk og kastar sér upp. Verra er þó stirt og stíft stýrið sem réttir sig illa af og hefur heila 4 og 1/2 snúninga borð í borð þrátt fyrir vökvaaðstoð. Ameríkanar hafa sín vökvastýri of létt, en hér er gengið of langt í hina áttina. Þetta ónákvæma og óhönduglega stýri spillir ann- ars þokkalegri hegðan á vegum, og gerir beygjur að puði með hamagangi á stýrishjólinu, ekki síst í torfærum. Land Cruiser II telst hvorki yfir né undirstýrður, hagar sér ágætlega á vegum að frádregnum köstum og skoppi vegna fjöðrunarstífleikans, sem hefur líka áhrif á rásfestu, enda aðeins 2.30 milli hjóla. Bremsurnar eru heldur ekki þær bestu sem rekið hafa á fjörur okkar, höfðu tilhneigingu til að læsa einu hjóli fyrr en öðrum, venjulega öðru fram- hjóli þótt ekki væri það algilt. Bensínvél gormá-Cruisersins er ný fyrir okkur hér í Evrópu, en þessi borvíða (92 mm. borun!) 2,4 lítra fjögurra strokka vél með yfirliggjandi knastás hefur í mörg ár verið uppistaðan í útflutningi Toyota til Bandaríkjanna. „Dráttar- vélamótor" uppnefna banda- rískir bílaskríbentar þennan lágsnúnirigsvinnuhest á sínu venjulepa yfirdrifna máli, þótt evrópskir kollegar þeirra virðist á öðru máli. Ég held að einhverjir hinna 103 uppgefnu hesta hljóti að hafa strokið úr vistinni hjá þessu eintaki okkar, svo þreytuleg var vélin í starfi sínu. Mikinn snún- ing vill hún skiljanlega ekki en er heldur ekki sannfærandi á lágum snúningi. Af ásetningi eða furðulegri tilviljun minnir puðrandi hljóðið eindregið á gömlu 6 strokka vélina sem enn fæst í „Heavy Duty“ gerðinni af Land Cruiser. Ein skýring á slappleikanum er allt of hátt drif sem gerir 5. gírinn svo til ónothæfan hér á Islandi, og raunar víðar. Mest eru 2., og 3. gírinn notaðir, hvað þá ef búið er að setja stærri dekk undir eins og margir gera. Hægt gekk á 90 lítra bensín- tankinn og ætti að vera hægt að komast um 700 kílómetra á honum, og mun lengra með díselvélinni sem hentar bílnum líklega betur þótt kraftlítil sé. Veghljóð og dekkjasöngur er vel einangrað frá eyrum far- þega, en á móti kemur að sífellt þarf að þeyta vélinni til að komast áfram. Útlitshönnuðir Toyota hafa reynt að halda eftir stílbrigðum gamla Krúsa í löngu nefinu með framskagandi brettin. Húsið er af allt öðru sauðahúsi en það gamla, nýtískulegt og íburð- armikið. Enn er sætisstaðan há, en afstaða milli stýris, sætis og fetla miklu betri, í þeim gamla var setið með risastórt stýrið í fanginu og fetlarnir voru hátt frá gólfi. Sætin sjálf eru ágæt, ekki bara fram í heldur líka aftur í, og þokkalegt pláss er fyrir 4, þolanlegt fyrir 5, þótt rafdrifin topplúga taki af höfuðrýminu. Einhverjar reglur EBE neyddu Toyota á síðustu stundu til að festa varadekkið innan á stærri afturhurðina af tveim þar sem það rænir meirihluta lítils farangursrýmisins og útsýni líka. Fella má aftursætið niður, en það er í heilu lagi, ekki tvískipt. Innréttingin er hlýleg og smekkleg, sérstaklega af jeppa að vera, og í bílnum okkar var mikið af aukabúnaði eins og rafdrifnar rúður og topplúga, fjaðrandi sæti (stillanleg eftir Afturhurðirnar eru nússtórar og opnast til hliðanna. NT-mynd AA líkamsþyngd) beggja megin, veltistýri, tveir stórir hliðar- speglar stillanlegir, aukamælar, krómfelgur innan frá, klukka, gangbretti, tvílitt sanserað lakk og fleira. Rúður eru síðar en pósturinn aftan við hliðardyrnar breiður og skyggir á t.d. við að aka skáhallt inn á götu. Póstur- inn í afturglugganum tekur líka sitt, og varadekkið skyggir á hálfa stærri rúðuna. Mælaborðið er vel læsilegt og án fiffa fyrir utan hallamælana og „hæðarmælinn“ í miðjunni sem fáanlegir eru aukalega. Hæðarmælirinn mælir bara loft- þrýsting og þarf því að rétta ■ Sannarlega hlaðið mælaborð; hér vantar ekkert sem máli skiptir og vel það sbr. hæðar og hallamælana. NT-mynd: AA hann af fyrst miðað við ríkjandi þrýsting við sjávarmál. Þótt áherslan sé lögð á lúxus- útbúnað bæjarbúans í þssu ein- taki er Land Cruiser II alvöru jeppi undir niðri. Læsta drifið að aftan hjálpar mikið, a.m.k. meðan það er nýtt, svo ekki þarf að grípa til framdrifsins fyrr en færið verður verulega þungt. Hins vegar er honum hætt til að setjast á voldugar hásingarkúlurnar og framspyrn- urnar sem beygja sig undir milli- bilsstöngina og skaga álíka langt niður og hasingarkúlan. Engin hætta á þó að vera á skemmdum, allt er þykkt og ■ Þótt hlaðinn sé krómi, sanseruðu lakki í tveim litum, og fleiri finu er Land Cruiser enn jeppi undir NT-mynd AA Lága drífsins er þörf um leið og vegum sleppir því drífið er mjög lágt. NT-mynd Málfríður Eyjólfsdóttír

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.