NT - 01.08.1985, Qupperneq 19
Fimmtudagur 1. ágúst 1985 19
Agdestein og Jóhann náðu lokaáfanga að stór-
meistaratitli á Norðurlandamótinu í Gjövik:
Agdestein nú yngsti
stórmeistari heims
■ Skákþing Norðurlanda sem lauk í Gjövik í Noregi
um síðustu helgi verður áreiðanlega þeim Jóhanni
Hjartarsyni og Simen Agdestein lengi minnisstætt. Þar
náðu þeir báðir lokaáfanga að alþjóðlegum stórmeist-
aratitli og verða í þeim hópi skákmanna sem útnefndir
verða á þingi FIDE í næsta mánuði. Agdestein tekur
jafnframt við hlutverki Nigel Short hins enska sem
yngsti stórmeistari frá upphafí. Aðeins Bobby Fischer
(15 ára) og Garrí Kasparov (17 ára) hafa öðlast þessa
gráðu fyrr. Simen er jafnframt fyrsti stórmeistari
Norðmanna og er fyrir afrek sín við skákborðið orðinn
vel þekktur maður í heimalandi sínu og er margt sem
bendir til að hann muni leika svipað hlutverk þar og
Friðrik Ólafsson gerði á uppgangsárum sínum í skákinni
hér á landi. Agdestein er aðeins 18 ára gamall og er
sannkallaður fyrirmyndarpiltur. Hann hefur einnig hasl-
að sér völl á knattspymusviðinu og var í fyrra valinn í
norska unglingalandsliðið á þeim vettvangi.
■ Árangur Svíans Erik Lundin er eftirtektarverður. Hann
sigraöi glæsilega í meistaraflokki og var heilum vinningi fyrir ofan
næsta mann. Með honum á myndinni er Lars Hjelmás, 14 ára
piltur frá Gjövik sem sigraði í Opna flokknum, B-riðli. Þess má
geta að á fjórða áratugnum varð Lundin sigurvegari á Skákþingi
Norðurlanda og það oftar en einu sinni.
Mótið í Gjövik fór í alla
staði vel fram. Við Jóhann
komum svo að segja beint frá
skákmóti í Esbjerg í Dan-
mörku þar sem ýmislegt í
skipulagi var ábótavant og
kunnum því vel að meta allar
aðstæður þegar til Noregs var
komið. Keppnisaðstaða og
annar aðbúnaður var til
mikillar fyrirmyndar, enda átt-
um við létt með að tefla. Strax
í upphafi var Ijdst hvert
stefndi. Jóhann vann þrjár
fyrstu skákir sínar og komst
við það í forystusætið. Ég átti
einnig velgengni að fagna og
Norðurlandameistarinn frá
1983, Curt Hansen virtist til
alls líklegur. Hann sigraði
Simen Agdestein í fyrstu um-
ferð í vel tefldri skák en í
þriðju umferð fékk hann að-
eins jafntefli í skák sinni við
Færeyinginn Hansen og náði
sér aldrei verulega vel á strik
eftir það. Var hann aldrei veru-
lega ógnun við okkur Jóhann
enda varð ljóst eftir því sem
leið á mótið að handhafi
„Kóngsbikarsins“, sem Ólafur
Noregskonungur, gaf til
keppninnar yrði Norðmaður
eða íslendingur. Sterkasti
skákmaður Finna Jouni Yrjola
byrjaði að vísu af krafti og
var t.d. með 4 vinninga úr
fimm fyrstu skákunum. En í
næstu tveim umferðum mætti
hann okkur Jóhanni og eftir
þær skákir voru möguleikar
hans úr sögunni.
Að loknum átta umferðúm
vorum við Jóhann efstir ásamt
Agdestein, allir með 6 vinn-
inga. í 9. umferð tefldum við
Agdestein en Jóhann mætti
Curt Hansen. Mér hafði tekist
að vinna sigur á Norðmannin-
um á svæðamótinu í Gausdal í
janúar s.l. en nú náði hann
fram hefndum. Þegar aðeins
tvær umferðir voru eftir var
hann með pálmann í höndun-
um með 7 vinninga, Jóhann
var mð 6Vi vinning og ég með
6 vinninga. í 10. umferð var
hart barist í öllum skákum.
Jóhanni tókst að knésetja Fær-
eyinginn og ég vann öst
Hansen. Flestir bjuggust við
stuttu jafntefli í skák Agdeste-
in við Helmers sem verið hefur
aðstoðarmaður hans undanfar-
ið en það fór á annan veg.
Helmers fékk mun betri stöðu
út úr byrjuninni en náði ekki
að fylgja yfirburðum sínum
eftir, bauð jafntefli. sem Agde-
stein hafnaði en um síðir deildu
þeir vinningnum. Enn komu í
ljós bestu eiginleikar Agdeste-
in, gífurlegur baráttuvilji sem
á eftir að fleyta honum langt.
Staða efstu manna fyrir síð-
ustu umferð varþessi:l,- 2’.
Agdestein og Jóhann Th v. 3.
Helgi 7v :4.-5. Helmers og
Curt Hansen, 6 vinningar
hvor.
Jóhann og Agdestein gerðu
stutt jafntefli við Schussler og
Yrjola, og ég þurfti því að
vinna Færeyinginn Jens Cr.
Jansen til þess að ná þeim. Það
er oft erfitt að tefla undir
slíkum kringumstæðum og í
þessu tilviki gerði það málið
enn snúnara að ég hafði svart.
Hansen var greinilega staðráð-
inn í að selja sig dýrt því alla
þessa skák barðist hann af
mikilli hörku. Mér tókst að ná
örlítið betri stöðu út úr byrjun-
inni, seildist eftir peði en við
það fékk Hansen hættulegt
mótspil. Þegar líða tók á set-
una tókst mér þó að ná frum-
kvæðinu en Hansen fann
snjalla vörn, fórnaði manni og
náði upp stöðu þar sem hann
hafði kóng, hrók og þrjú peð
gegn sama liðsafla svarts nema
hvað ég var peði yfir. Peðin
voru öll á sama væng. Fræði-
lega er slík staða jafntefli en
praktískir vinningsmöguleikar
eru allgóðir. Og eftir langa og
stranga viðureign tókst mér að
þvæla þessu endatafli af Færey-
ingnum. Niðurstaðan varð því
sú að við Jóhann deildum efsta
sætinu með Simen Agdestein.
Þing Norræna Skáksambands-
ins hafði ákveðið að fram færi
aukakeppni um Norðurlanda-
meistaratitilinn með einhvers-
konar hraðskákafyrirkomu-
lagi, þ.e. tefldar yrðu Vi klst.
skákir. Þessu mótmæltum við
bréflega enda var ákvörðunin
tekin án þess að skákmenn
væru hafðir með í ráðum. Ekki
hefur endanlega verið ákveðið
hvenær aukakeppni fer fram
né hvar, en líklegt er að Norð-
menn sjái um hana og að hún
fari fram í haust.
í meistaraflokki gerðust þau
tíðindi helst að maður á ní-
ræðisaldri vann öruggan og að
því er virtist fyrirhafnarlausan
sigur. Erik Lundin er 81 árs
gamall og eru ekki mikil elli-
mörk á honum að sjá. Hann
var í hópi þeirra sænsku
skákmanna sem gerðu garðinn
frægan á millistríðsárunum
með þeim Stoltz og Stahlberg
og enn teflir hann. Lundin
hlaut 7V4 vinning úr 9 skákum
en í 2. sæti varð Norðmaðurinn
Nils H. Grotnes. Fjórir íslend-
ingar tefldu í þessum flokki og
náði Áskell Örn Kárason best-
um árangri þeirra. Hann var
lengi vel í baráttunni um efsta
sætið en tapaði slysalega fyrir
Lundin í 8. umferð. Þröstur
Árnason, 13 ára gamall piltur
úr TR, náði ágætum árangri í
þessum flokki, hlaut 4!^ vinn-
ing úr 9 skákum. Tómas
Björnsson fékk 4 vinninga og
Jóhannes Ágústsson 3 Vi
vinning.
í opna flokknum, A-riðli
sigraði Svíinn Frank Svenson
með 71á vinning úr 9 skákum.
Þrír íslendingar tóku þátt í
þessum flokki en engan þeirra
var að finna í einu toppsæt-
anna. Jón Þór Berþórsson og
Einar T. Óskarsson hlutu báðir
4Vi vinning og Magnús Sigurj-
ónsson fékk 4 vinninga.
Þó íslensku skákmennirnir
hafi verið fremur fáir að þessu
sinni var þátttaka í mótinu
mikil. Telst mér til að alls hafi
keppendur verið 212 talsins.
Næsta Norðurlandamót fer
fram eftir tvö ár og nú koma
Færeyingar inn í myndina og
halda mótið í fyrsta sinn og
hefur verið ákveðið að keppn-
in fari fram í Norræna húsinu
í Þórshöfn.
Þó við Jóhann gætum allvel
við frammistöðu okkar í mót-
inu unað og raunar tafl-
mennskuna líka, þá tefldum
við ekki neinar snilldarskákir.
Agdestein tefldi tvímælalaust
fallegustu skák mótsins þegar
hann lagði Harry Schússler að
velli í 5. umferð:
Hvítt: Simen Agdestein
Svart: Harry Schússler
Drottningarbragð
1. d4 Rfó
2. c4 eó
3. Rf3d5
4. Rc3 Be7
5. Bg5 0-0
6. Hcl
(Algengara er 6. e3 en þessi
leikur hefur þó oft sést m.a. í
einvígjum Karpovs við Kasp-
arov og Kortsnoj.)
6... h6
7. Bh4 dxc4
8. e3 c5
9. dxc5
(Nýr leikur, þó ekki sé hann
nú ýkja merkilegur. Áður hef-
ur verið leikið 9. Bxc4)
9... Da5
10. Bxc4 Dxc5
11. De2 Rc6
12. 0-0 Bd7
13. a3 Da5
14. h3 HfdH
15. Bg3 a6
16. e4 b5
17. Bd3 b4
18. axb4 Rxb4
19 Bc4 Bc6
(Það er í meira lagi undarlegt
að Schussler skyldi ekki leika
19. - Be8. f7 - peðið þarfnast
völdunar vegna þrýstings hvíts
eftir skálínunni a2 - g8. Fram-
vinda skákarinnar er athygl-
isverð og dæmigerð fyrir Norð-
manninn. Hann getur ekki
státað af miklum stöðuyfir-
burðum eftir byrjunina enda
er taflmennska hans á því stigi
oft æði gruggug, en smátt og
smátt tekst honum að byggja
upp vænlega sóknarstöðu)
20. Re5 Bb7
(Enn gat hann leikið 20. - Be8
með traustri stöðu.)
21. f4! Bc5t
22. Khl Bd4
23. Rf3 Hac8
24. e5!? Bxf3?
(Þessi mistök kosta svartan
skákina. Eins og Agdestein
sýndi fram á var mun sterkara
að leika 24. - Bxc3 og ekki
verður betur séð en að svartur
haldi vel í horfinu: 25. bxc3
Rh5! 26. Bh2 Rd5 27. Bxd5
Dxd5 28. g4 (?) Dd3 29. Dxd3
Hxd3 30. Kg2 Hcxc3 31. Hcxc3
Hxc3 32. gxf5 f5! og svartur sé
manni undir stendur hann í
raun betur að vígi þar sem
hvítur sleppur ekki úr leppun-
ini. Hvítur getur auðvitað teflt
betur en þetta. 28. g4 er t.d.
afar ónákvæmur leikur en ljóst
er að með 24. - Bxc3 gat
svartur veitt harðvítugt
viðnám.)
25. Hxf3 Rd5
26. Bh4! Hf8
27. Re4 Kh8
28. Hdl Db6?!
(Gagnsókn var rétta ráðið í
þessari stöðu. Því var best að
leika 28. - Bxb2 en Schussler,
sem var kominn í tímahrak,
óttaðist 29. Rd6 sem svartur
svarar best með 29. - Rc3 með
óljósri stöðu.)
29. Bb3 Bc5
30. f5!
(Sóknin er hafin.)
30... exf5
31. Hxf5 Re3
32. Hf6!
(Glæsilega leikið. Svartur má
ekki hirða hrókinn, 32. - gxfó
33. Dh5! og sóknin er óstöðv-
andi.)
32... Hc6
33. Rxc5 Rxdl
34. e6!
(Taflmennska hvíts er afar
kraftmikil. Schússler var nú
alveg að falla á tíma og hitti
ekki á besta leikinn 34. - Rf2f.
Hann leyfir Agdestein að útkljá
málin á sérlega fallegan hátt.)
34. .. Dxc5
35. Hxhóf! gxh6
36. Bf6t Kh7
37. De4t Kg8
38. exf7t
- Svartur féll á tíma en hann er
óverjandi mát: 38. - Hxf7 39.
Dg6t og mát í næsta leik.
1-3 IM Agdestein Noregur 2515
1-3 IM Hjartarson jsland 2505
1-3 GM Ólafsson ísland 2515
4 GM Hansen Danmörk 2500
5 IM Helmers Noregur 2435
6 IM Yrjolá Finnland 2460
7 IM Schtissler Svíþjóð 2465
8 IM Wiedenkeller Svíþjóð 2465
9-10 Máki Finnland 2365
9-10 FM 0stHansen Danmörk 2420
11 GM Westerinen Finnland 2390
12 HansenJ.Chr. Færeyjar 2215
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
X 1/2 1 0 1Á 1/2 1 1 1/2 1 1 1 8
1/2 X 1/2 1/2 1/2 1 1/2 1 1 1/2 1 1 8
0 1/2 X 1/2 1/2 1 1/2 1 1 1 1 1 8
1 1/2 Vz X 1/V 1 Vz 0 1 Vz 1 Vz 7
Vfe 1/2 1/2 1/2 X 1/2 '/2 Vz Vz '/z 1 1 6 '/z
1/2 0 0 0 1/2 X 1 1 1/2 1 Vz Vz 5Vz
0 1/2 1/2 1/2 1/2 0 X 1/2 Vz 1 0 1 5
0 0 0 1 1/2 0 1/2 X Vz Vz Vz 1 41/2
1/2 0 0 0 1/2 1/2 1/2 Vz X Vz Vz 1/2 4
0 1/2 0 1/2 1/2 0 0 Vz Vz X Vz 1 4
0 0 0 0 0 1/2 1 Vz Vz Vz X Vz 31/2
0 0 0 1/2 0 1/2 0 0 Vz 0 1/2 X 2
Helgi Ólafsson stórmeistari skrifar um skák