NT - 07.08.1985, Page 2
Lestunar-
áætlun
Tarottáknin
eru vegvísir
Tveirdulspekingarsækja ísland heim
■ Hér á landi eru staddir
tveir sérfræðingar í tákn-
máli Tarot-spilanna, þau
Coleen Rowe og Ervin
Bartha. Á fimmtudags-
kvöld klukkan 8:30 munu
þau halda fyrirlestur um
rannsóknir sínar í veitinga-
húsinu Mensa við Lækjar-
götu í Reykjavík. Aðal-
áhugi þeirra beinist að
ýmiss konar táknum sem
finna má meðal mismun-
andi fólks á jörðinni og
hvernig þessi tákn koma
fram í ýmsum gervum í
samræmi við þjóðarein-
kenni.
Þau Rowe og Barthe hafa
ferðast mjög víða og dvalist
meðal indíána og innúíta
og skoðað menningu þeirra
með tilliti til þess táknmáls
sem finna má meðal annars
í Tarotspilunum.
';,Á ferðalögunum og
við rannsóknir okkar
höfum við veitt því eftirtekt
að alls staðar á jörðinni og
á öllum tímum hafa komið
fram ákveðin grundvallar-
tákn hjá manninum. Að
okkar áiiti liggur eins konar
innri þrá mannsins að baki
þessu táknmáli. MeðTarot-
spilunum hefur verið gerð
tilraun til að raða táknun-
um niður á skipulegan hátt
þó svo sú tilraun sé ekki
fullkomin eða endanleg.“
Fyrirlesturinn er opinn
öllu áhugafólki og þar mun
gefast tækifæri til að ræða
við þau Rowe og Bartha
um rannsóknir þeirra og
ekki síst Tarot-spilin sem
þau telja eins konar lýsingu
á manninum í hnotskurn.
Ervin sagði í samtali við
NT að spilin væru vegvísir
að innri gerð vitundar okk-
ar og þeim frumöflum sem
væru sameiginleg öllum
mönnum óháð þjóðerni og
trúarbrögðum.
Nánar verður fjallað um
rannsóknir þessar í Helg-
arblaði NT um næstu helgi.
Vertu nú fljótur að slafra þessu í þig góði. Fjármáiaráðherra
er búinn að fatta altsaman.
■ Coleen Rowe og Ervin Bartha: „Okkur þykir mikið til þess koma hvernig íslendingum
hefur tekist að varðveita þjóðareinkcnni sín og andlegt sjálfstæði gcgnum aldirnar."
NT-mynd Sverrir
Tollverðir kyrrsettu vör
ur úr Rainbow Hope
— Fjármálaráðherra segir lög banna kjölinnflulninn
varnarliðsins, en ulanríkisráðuneytið telur svo ekki vera
Huil/Goole:
Dísarfell 12/8
Dísariell 26/8
Dísarfell 9/9
Dísarfell 23/9
Rotterdam:
Dísarfell 13/8
Dísarfell 27/8
Dísarfell 10/9
Dísarfell 24/9
Antwerpen:
Dísarfell 14/8
Dísarfell 28/8
Dísarfell 11/9
Dísarfell 25/9
Hamborg:
Dísarfell 16/8
Dísarfell 30/8
Dísarfell 13/9
Dísarfell 27/9
Larvik:
Jan 19/8
Jan . 2/9
Jan 16/9
Gautaborg:
Jan 20/8
'Jan . 3/9
Jan 17/9
Kaupmannahöfn:
Jan 21/8
Jan . 4/9
Jan 18/9
Svendborg:
Jan . 22/8
Jan . . 5/9
Jan . 19/9
Aarhus:
Jan . 22/8
Jan . . 5/9
Jan . 19/9
Gloucester, Mass. :
Jökulfell . 24/8
New York:
Jökulfell . 26/8
Portsmouth:
Jökulfell . 27/8
** SKIRADEILD
SAMBANDSINS
I Sambandshúsinu
1 Pósth. 180 121 Reykjavík I
Simi 28200 Telex 2101
Verðlagsnefnd búvara:
Alexanderskip-
ar 3 neytenda-
fulltrúa
■ Þarsem Alþýðusamband ís-
lands og Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja tilnefndu ekki
fulltrúa í hina nýju Verðlags-
nefnd búvara hefur félagsmála-
ráðherra, samkvæmt ákvæðum
laganna um Framleiðsluráð,
skipað eftirtalda sem fulltrúa
launþega í nefndinni: Arnar
Bjarnason, viðskiptafræðing,
Baldur Óskarsson, viðskipta-
fræðinema og Margréti S. Ein-
arsdóttur sjúkraliða.
Miðvikudagur 7. ágúst 1985 2
Innbrot um verslunarmannahelgina:
Farið inn
í 3 íbúðir
- þýfið skiptir hundruðum þúsunda
■ Rannsóknarlögreglu
var tilkynnt unt þrjú inn-
brot í íbúðir um helgina,
á sunnudag. Verðmætu frí-
merkjasafni var stolið úr
íbúð við Sunnuveg, þá
söknuðu húsráðendur
einnig Bang og Olavson
stereotækja. Mikið var
rótað í íbúðinni og mun
þýfið skipta hundruðum
þúsunda. Farið var inn í
íbúð við Efstaland, og
þaðan stolið Akai mynd-
segulbandstæki ásamt
Sanyo hljómburðarsam-
stæðu. Aðkoma var
óskemmtileg og höfðu
innbrotsþjófarnirf rótað
mikið í íbúðinni.
Þriðja innbrotið sem til-
kynnt var eftir helgina var
íbúð við Háaleitisbraut en
þaðan var talsverðu
magni af silfurmunum
stolið.
Að sögn lögreglunnar
er rnikið um innbrot á
löngum helgum sem versl-
unarmannahelgi. Algengt
er að tilkynningar um inn-
brot berist ekki fyrr en
eftir helgina, þegar fólk
snýr aftur úr sumarfríum.
Loksins glæta í
Vatnsdalsá
■ Veiði hefur glæðst síðustu
daga í Vatnsdalsá, eftir mjög
lélega veiði framan af. 123
laxar veiddust á fjórum dögum
á sex stangir. Pað er besta
veiðin í ánni í sumar. Gísli
Pálsson heimildarmaður. Veiði-
hornsins við Vatnsdalsá, sagði
að svo virtist sem spár fiski-
fræðinga væru að rætast. „Það
er sennilega útséð um það að
Tumi Tómasson fiskifræðingur
þarf ekki að éta hattinn sinn,
heldur getur hann gengið með
hann í vetur. Tumi hét því að
hann myndi borða hann, ef
smálaxinn léti ekki sjá sig upp
úr miðjum júlí,“ sagði Gísli.
Það hefur einmitt verið smálax-
inn sem hefur verið aðaluppi-
staðan í aflanum síðustu daga.
Eitthvað er eftir af veiðileyfum
í ánni, en þó mun það vera
takmarkað.
Silungsveiði á
Norðurlandi
Haraldur I. Haraldsson, Akureyri:
Eyjafjarðará hefur verið
sprikíandi full af silungi í sumar,
og vel hefur veiðst á köflum. Þó
kenna menn kulda um að agnið
er ekki mjög vinsælt hjá þeim
árbúum. Stærsta fiskinn í
Eyjafjarðará dróÓlafurGunn-
arsson á fjórða svæði á heima-
tilbúinn „streamer“. Fiskurinn
vó 6,5 pund. Flugan hefur verði
fýsilegasta agnið og bestar hafa
revnst mudler og laxá-blá.
í Fnjóská hefur silgungsveiði
verið með afbrigðum, og eru
menn farnir að rifja upp gömlu
góðu dagana, þegar áin var ein
besta bleikjuá á landinu. Alls
hafa veiðst um 300 bleikjur og
flestar á bilinu 2-4 pund. Lax-
veiðin hefur ekki verið sem
skyldi, og hafa einungis veiðst
35 laxar sem er afspyrnu lélegt.
Allur fiskurinn hefur veiðst á
neðsta svæðinu. Veiðimenn
gera sér þó vonir um að laxinn
fari að ganga fyrir alvöru, um
leið og hlýnar í veðri, því sökum
slæms verðurs undanfarna daga,
hafa margar ár á Norðurlandi
kólnað svo um munar.
Húseyjarkvísl hefur gefið af
sér um 50 laxa. Þá hefur silungs-
veiði verið góð og hafa menn
fengið á bilinu 4-20 væna silunga
á dag. Algengasta stærðin er 2-4
pund. Jón Geisson hefur dregið
stærsta silunginn sem veiðst hef-
ur í ánni í sumaren það var 15,5
punda urriði sem tók maðk.
Mun þetta vera einsdæmi í ánni.
Urriðasvæðið fyrirofan virkj-
un í Laxá í Þingeyjarsýslu hefur
verið gott mcð eindæmum í ár,
og stefnir í glæsilegt metár, í
þessari „bestu urriðaá" í heimi.
3.840 hafa veiðst í ánni það sem
af er. Fiskurinn er vænn eins og
þekkt er af urriðasvæðinu.
Stærsta fiskinn dró Rögnvaldur
Ingólfsson dýralæknir í Búðar-
dal, og var það 13 punda urriði
og 75 cm langur. Stórfiskurinn
tók Þingeying no. 2.0 við Hagatá
í Geldingaey. Nýting hefur
veirð mjög góð í ánni og margir
fluguveiðimenn hafa skemmt
sér í þessari silungsparadís á
Norðurlandi.
Litlaá í Kelduhverfi er senni-
lega spútnik silungsáin í ár.
Veiðst hafa 2.000 silugnar í
sumar. í fyrra þótti veiði góð,
en þá veiddust 856 silungar,
bleikja og urriði í bland. Fiskur-
inn í ánni er ærið kenjóttur og
þess eru dæmi að menn berji
allan daginn, og fái ekkert nema
smáan silung eða jafnvel engan,
ámeðan næstinágrannitekur
hvern stórfiskinn á fætur
öðrum. Kvóti er í ánni og hefur
alltaf verið. 20 fiskar eru heimil-
aðir á hverja stöng og hafa
margir fyllt kvótann. Meðal
veiði í júní mánuði var tíu fiskar
á stöng, eða um sjötíu fiskar á
dag. Sjö stangir eru í ánni og
kostar stöngin yfir daginn 600
krónur.