NT - 07.08.1985, Page 6

NT - 07.08.1985, Page 6
 Halldór Kristjánsson: Óskabarnið selt úr landi ■ Á fyrstu tugum þessarar aldar var sjálfstæðisbarátta ís- lensku þjóðarinnar háð af miklu kappi. Þá var barist á mörgum vígstöðvum. Jafnframt því sem kröfur um stjórnfrelsi voru hafðar uppi var unnið að því að koma í hendur íslcndinga sjálfra ýmsri starfsemi sem nú er köll-, uð þjónusta og safnaði í tím- anna rás fjármagni sem borist hafði úr landi. Þar ber fyrst að nefna verslunina sem öldum saman hafði dregið fé úr landi. Og þá stofnuðu menn Bruna- bótafélag og Sjóvá-tryggingar- félag. Þetta var liður í baráttu þjóðar fyrir sjálfstæði. Og eins og Björnson kvað: Sú þjóð sem veit sitt hlutverk er helgast afl um heim. Og þá var Eimskipafélag íslands stofnað. Það var stofn- að til þess að íslendingar réðu sjálfir skipum sem flyttu vörur og fólk til landsins og frá. Sumir minntust þess að talið var að það hefði átt þátt í að kippa fótum undan sjálfstæði íslendinga að Noregskonungur hótaði að stöðva siglingar til landsins. Öðrum nægði að þeir þoldu ekki danska áhöfn og yfirstjórn í strandsiglingum við land sitt. Og stuðningur við stofnun Eimskipafélagsins var almennur. Það var kallað óska- barn þjóðarinnar. Og það var réttnefni. Þeir eru fáir sem muna 70 eða meir til baka. Hins vegar mun- um við ntjög mörg eftir fátæku ; fólki sem átti hlut í Eimskipafé- lagi íslands við stofnun þess. Það var ekki í gróðaskyni gert, heldur til að eiga þátt í því að losa um fjötra og duga í sjálf- stæðisbaráttunni. Meðgleði og stolti sagði þá gamall maður að hann ætti einn nagla í þessu skipi. Naglinn sá var í huga hans tæki og vopn í baráttu íslenskrar þjóðar fyrir sjálf- stæði sínu. Það er notalegt að rifja nú upp þessi fornu kynni þegar svo er komið að ríkissjóður reynir að selja sinn hlut í þessu óskabarni þjóðarinnar úr landi. Nú er ekki kannað hvort venjulegt alþýðufólk vilji kaupa eitt og eitt bréf, heldur reynt að selja bréf ríkissjóðs öll í einu lagi. Og samkvæmt lögmáli hins frjálsa markaðar eru þau að sjálfsögðu boðin erlendum keppinautum. H.Kr. Miðvikudagur 7. ágúst 1985 6 ingur Anna Snorradóttir: Húrra fyrir mysumönnum ■ Einhvern tíma skrifaði undirrituð heila langloku um mjólkurafurðir en það var um það leyti, sem kotasælan var að sjá dagsins Ijós hér á landi. Þá bað ég um, að mysunni væri sýndur meiri sómi en þá var og m.a. um upplýsingar á umbúð- unum um það, hvaða efni væru í þessum aldna drukk. Nú er mysan komin í sparikjól, fall- ega eins lítra fernu, sem líka ber að þakka, og raunar er prentað á þessar nýju umbúðir ekki aðeins upplýsingar og fræðsla urn innihald og efni, sem þar er að finna, heldur einnig bent á ýmsar leiðir til að nota mysuna. Þetta er lofsvert og ég leyfi mér að bera fram miklar og einlægar þakkir fyrir tiltækið. Eins konar „cooking-wine“ Margar konur munu hafa rekist á uppskriftir af fiskrétt- um þar sem talað er um, að svo og svo mikið af hvítvíni sé æskilegt, annað hvort til suðu eða í sósur. Oftast bjargaði maður sér fyrir horn með hálfri sítrónu og vatni eða afburða góðu ediki, ef það var á boð- stólum. En nú þarf enginn að vandræðast yfir slíkum upp- skriftum, því að auðsætt er, að mysan leysir vandann. Það er ekki amaleg tilhugsun að geta notað mysuna í fiskrétti, vit- andi með vissu, að rétturinn verður snöggtum betri og jafn- framt heilnæmari en ella. Það var tími til kominn, mun ein- hver segja, en ég held mig við hið fornkveðna: Betra er seint en aldrei, og nú þykist ég þess fullviss að mysunni sé bjargað, hún verði hvorki látin buna út í Ölfusá eða aðrar ár landsins né heldur einvörðungu ausið í svínin, eins og ég hafði heyrt á skotspónum. Nú finnst mér að við ættum öll að sameinast um það - það er svo sárafátt sem við getum sameinast um - að gera mysuna að heimilis- drukk, hversdags hvítvíni, og nota hana einnig sem einhvers konar „cooking-wine“ sem við sjáum oft talað um í erlendum matreiðslubókum. Mysa á hvers manns borð, gæti orðið slagorð á komandi tíð. Eða hvað finnst þér? Hvenær koma áfirnar? í fyrrnefndum langhundi spurði ég æ oní æ um áfir, það sem í Ameríku heitir „butter- milk“ og hjá Dönum „kærne- mælk“. Engin svör hafa borist enn og nú langar mig til að endurtaka spurninguna: Hve- nær koma áfirnar? Það er kannski ekki fallegt að fara fram á meira í einu heldur en þessa ágætu endurbót á mys- unni, en einhvern veginn finnst mér að einmitt hún bendi til þess, að áfir kunni að vera á næsta leiti. Það væri mikið tilhlökkunarefni, því að áfir eins og þær hjá grannþjóðun- um eru mikið hnossgæti. Gam- an væri líka, að maður gæti verið svolítið öruggari á ostin- um, t.d. finnst mér gráðaostur- inn afar misgóður, þótt ekki sé meira sagt, stundum er hann satt best að segja alveg stór- kostlega góður en svo lendir maður líka á osti, sem er engan veginn samboðinn þess- ari framleiðslu. Margt fleira væri gaman að nefna, en verð- ur ekki gert að sinni, enda þessum línum ætlað fyrst og fremst að þakka fyrir mysuna, ekki bara nýju umbúðirnar og upplýsingarnar, heldur finnst mér hún hafa batnað og vera nú í fyrsta sinn alveg laus við grugg á botninum, sem stund- um var svolítið hvimleitt. Það er líka mjög til bóta að geta keypt hana í eins lítra fernum, m.ö.o. þá er ég alveg í sjöunda himni yfir þessu ágæta fram- taki og gleðst innilega yfir því, að mysunni er nú gert jafnt undir höfði og öðrum mjólkur- afurðum. Anna Snorradóttir Það er ekki amaleg tilhugsun að geta notað mysuna í fiskrétti, vit- andi með vissu, að rétturinn verð- ur snöggtum betri og jafnframt heilnæmari en ella. tuggin að á sérstöku móti bind- indismanna hafi varla séð vín á nokkrum manni. Frá öðrnm stöðum berast þær fréttir í síbylju, að allt fari þetta vel fram nerna hvað ölvun sé mikil og almenn, margir teknir úr umferð af þeim sökum og að mikið umstang hafi verið við að hlú að hröktum og köldum krökkum. í einum sælureitn- um var viðskilnaður mótsgesta Unglingarnir halda uppi merki verslunarstéttarinnar ■ Frídagur verslunarmanna er orðinn langlífur í landinu. Upp úr aldamótunum síðustu fóru verslunarmenn að loka búðum og halda upp á dag sinn, fyrsta mánudag í ágúst. Síðar kom fyrsti maí sem bar- áttudagur verkalýðsins og sjó- menn eiga sinn hátíðardag í friði fyrir öðrum. Öðru máli gegnir með versl- unarmannadaginn. Hann ernú orðið kallaður verslunar- mannahelgi og einkennist af unglingasamkomum og gífur- lega miklum akstri um landið þvert og endilangt. Verslunar- stéttin er búin að gleyma sjálfri sér, eða týnist í öllum látunum, utan að einhver tekur saman dagskrá um viðskiptin og setur í útvarpið, þar sem á hverju ári er margtíundað hvað Jón Sig- urðsson sagði um verslunina. Löngu áður en ferðahelgin mikla gengur í garð eru fjöl- miðlar orðnir uppfullir með upplýsingar um það hvarfjörið verður og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að smala fólki á tiltekna staði, þar sem efnt er til samkomuhalds. Tilkynnt er með löngum fyrirvara að heimsfrægir skemmtikraftar muni koma fram hér að þar og aftur verður það fréttaefni þeg- ar tilkynnt er að heimsfrægðin muni því miður ekki sjá sér fært að láta ljós sína skína á þessu skrallinu eða hinu. Það er þó bót í máli þegar hægt er að sýna innfæddum alvörublá- menn sem berja bumbur og stíga frumskógardansa í kjarr- inu á Austurlandi, eða er að- gangseyririnn ekki skorinn við nögl. Ekið, drukkið og dansað Þeir sem heima sitja verða að láta sér nægja reykinn af réttunum, en það mega deildir ríkisútvarpsins eiga að þær gera sitt besta til að koma öllu því til skila sem máli skiptir í sambandi við þessa miklu skemmtihelgi, sem af gömlum vana er kennd við verslunar- menn. í öllum fréttatímum er I TIMA 0(i ÓTÍMA tíundað hve mikið var drukkið á þessum skemmtistaðnum eða hinum og hve blessunarlega slysalaust þetta gangi allt sam- an fyrir sig. Þau stórtíðindi eru marg-

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.