NT


NT - 07.08.1985, Síða 8

NT - 07.08.1985, Síða 8
ÍT 17 Miðvikudagur 7. ágúst 1985 8 L U H es*tar og nraonn ■ Blær frá Sauðárkróki sigraði í A-flokki gæðinga. Knapi Guðmundur Sveinsson. ■ Krapi Sveins á Varmalæk varð efstur í B-flokki. Knapi er Björn Sveinsson. Hestamót Skagfirðinga: Kuldalegt á Melunum - en ágætt miðað við aðstæður ■ Það var ekki eins mikil! glæsibragur yfir hestamóti Skag- firðinga sem haldið var á Vind- heimamelum um helgina og oft áður. Ástæðan var fyrst og fremst kuldi sem smeygði sér allstaðar milli klæða og hrakti áhorfendur inn í bíla sína og hafði auk þess þau áhrif á keppnishestana að þeir náðu ekki eins góðum tíma og margir höfðu búist við. Gæðingarnir voru fremur slakir og í rauninni var aðeins einn hestur sem eitthvert bragð var að. Það var sigurvegarinn í A-flokki, Blær frá Sauðárkróki. Ekki var neinar upplýsingar um það að hafa í mótskránni, en ef ég man rétt er Blær sonur syst- kinanna Sörla 653 og Hrafn- hettu frá Sauðárkróki. Hinir hestarnir voru þokka- legir en surnir beinlínis lélegir. Unglingarnir voru mun betur ríðandi þegar á heildina er litið. Skagfirðingar deyja ekki ráðalausir og fyrst ekkert ís- landsmet var slegið í hefð- bundnum greinum kappreiða, drógu þeir upp gamlar bækur og fundu þar að Islandsmetið í 300 metra skeiði hafði verið sett árið 1929. Auglýstu þeir síðan eftir keppendum í þeirri grein og fengu fjóra. Hvítingur Þorgríms Gunnars- sonar rann skeiðið á 30,4 fyrir réttum 56 árum en nú bætti Vani Erlings Sigurðssonar um betur og fór á 27,1 sek. Gormur Sigurbjörns Bárðarsonar kom í mark á 28,3 og Sörli Jónínu Hjartardóttur á 29,5. Að margra dómi var töltsýn- ing íslandsmeistara undanfar- inna fimm ára hápunktur mótsins. Þessir frábæru töltarar yljuðu áhorfendum sannarlega í kuldanum og er ég sannfærður um að ef veðrið hefði verið skaplegt og áhorfendur í brekk- unni en ekki í bílunum, hefði skapast mikil og góð stemmning. Þeir hestar sem þarna voru mættirvoru: Hrímnir frá Hrafna- gili, Björns Sveinssonar, Is- landsmeistari 1981, Fleygur frá Kirkjubæ, Davíðs Guðmunds- sonar, íslandsmeistari 1982, Snjall frá Gerðum, Guðna Kristinssonar. Islandsmeistari 1983, Tinna frá Flúðum, Bjarna Ansnes, íslandsmeistari 1984 og Kórall frá Sandlæk, Orra Snorrasonar, Islandsmeistari 1985. Ekki verður gert upp á milli þessara hesta hér frekar en á mótinu, þeireru allir glæsilegir á sinn máta. Af úrslitum kappreiðanna má nefna sérstaklega góðan árang- ur Tvists frá Götu en hann var með besta tímann eftir undan- rásir í 800 metra stökki 58,8 og næst besta tímann í 350 metrum. Don frá Hofsstöðum hljóp j 800 metrana á 58,9 og Örn frá : Uxahrygg á 59,0. Rangæing- urinn Neisti Harðar G. Alberts- sonar hljóp 350 metrana á 24,8 í undanrásunum og hafði besta tímann i úcslitahlaupið. f 150 m skeiði stóð Glaumur Árna Jóhannssonar best að vígi eftir fyrri sprett með tímann 15,2, Seifur Leifs Þórarinsson- ar í Keldudal kom næstur með 15,7, Fönn Harðar G. Alberts- sonar þriöja með 15,8 og Von Símonar Grétarssonar fjórða með 15,9. Von og Seifur eru aðeins 5 vetra gömul og Seifur er Sveinn Guðmundsson nýbúinn að afhenda verðlaun þremur efstu í flokki 12 ára og yngri. NT-mynd: Gylfi. ■ Örn og Lýsingur skutust framúr Tvisti og Don í 800 m stökki. Erlingur Erlingsson situr Öm sem sigraði og Róbert Jónsson Lýsing sem varð annar. bróðir hins þekkta skeiðhests Leists frá Keldudal sem hljóp á 21,5 sek. á Melgerðismelum fyrir skemmstu og jafnaði ís- landsmet Villings frá Möðru- völlum. Leistur hafði besta tímann í 250 m skeiði, 22,4 og Börkur frá Kvíabekk Tómasar Ragnars- sonar kom næstur með 22,8. Aðrir voru þar hvergi nærri og Villingur hljóp upp. Lótus og Gustur voru í sér- flokki í folahlaupi og tíminn 18,4 og 18,5 sek. Nokkrar breytingar urðu seinni daginn. GÍaumur sigraði örugglega í 150 metra skeiði, hljóp aftur á 15,2 en Menja náði 2.-3. sæti með 15,7. í 250 metra skeiði náði Vani sér á strik og nældi í 2r3. sæti með 22,8 en mjakaði Gormi upp í það fjórða með 23,3. Tvistur frá Götu nældi enn einni rós í hnappagat eiganda síns og sigraði í 350 m stökki á 24,3 en Neisti varð að láta sér lynda annað sætið með sama tíma. Nasi Elíasar Kristjánsson- ar varð þriðji á 24,6 og Léttur Guðbjargar Þorvaldsdóttur fjórði á sama tíma. Örn frá Uxahrygg sigraði í 800 metra stökki á 58,77 en þeir Tvistur og Don háðu harða keppni lengi framan af hlaup- inu. Þeir urðu svo að gefa eftir á síðustu metrunum og Örn og Lýsingur frá Brekku fóru báðir framúr. Lýsingur hljóp á 59,0, Tvistur á 59,6 og Don á 59,8. Úrslitin í folahlaupi urðu þau sömu og oftast í sumar. Lótus sigraði á 18,2 en Gustur hljóp á 18,3. Gustur sneri dæminu hins- vegar við í aukaspretti í 300 m stökki og hljóp á 21,4 en Lótus varð annar á 21,6. Þriðji hestur- inn í þessu hlaupi var Léttir Guðbjargar og hann hljóp á 21,7. Það er leiðinlegt til þess að vita að eigendur Lótusar skuii láta 7 vetra gamlan hestinn hlaupa i folahlaupi í allt sumar. Þó hesturinn sé fæddur í sept- ember breytir það því ekki að hann er sjö vetra. Eins og einn hestamaður sagði á Vindheima- melunt í samtali við blaða- mann NT þá er Gustur Gísla Einarssonar ótvíræður sigur- vegari sumarsins í 250 m stökki. I 800 m brokki sigraði Neisti Guðmundar Jónssonar á 1:29,1 mín. og Alur Finnboga Guð-

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.