NT - 07.08.1985, Page 20
7. ágúst 1985 20
Lögreglumaður:
Fékk lifrar-
bólgu af biti
dópista
Aberdeen-Keutcr
■ Lögreglumaður í Aber-
deen fékk lifrarbólgu eftir að
eiturlyfjaneytandi hafði bitið
hann í handlegginn. Hann
liggur nú á sjúkrahúsi í borg-
inni og er líðan hans sögð
góð eftir atvikum. Lifrar-
bólga er lífshættulegur sjúk-
dóntur.
Löggan, Pliilip Roberts að
nafni, var að handtaka
manninn fyrir búðahnupl í
stórverslun, þegar hann beit
Roberts með fyrrgreindum
afleiðingum.
Roberts er annar lögreglu-
þjónninn sem fær lifrarbólgu
af biti eiturlyfjasjúklings.
Hinn náði sér fullkomlega.
Ástralía:
■ Frá því í apríl í fyrra hafa um 10 þúsund manns flúið yfir tii
Papúa Nýju-Guineu. Fólkið býr þar í búðum og hefur Flóttamanna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna veitt því aðstoð. Þessi mynd er frá
búðunum í Kamberatoro.
Flóttamannastraumur f rá
Indónesíu yfirvofandi?
■ Fimm menn sem réru á kanó yfír 'Forressundió til
Ástralíu og báðu þar um hæli sem pólitískir flóttamenn
hafa vakið athygli á skæruhernaði sem geisar á cyjunni
Nýju-Guineu í Suður-Asíu. Jafnframt hafa þeir vakið
ótta meðal stjórnvalda í Ástralíu um að koma þeirra sé
aðeins byrjunin á straumi flóttamanna frá eyjunni.
Fimmmenningarnir komu
frá héraðinu Irian Jaya á vesí-
urhluta eyjunnar, en það til-
heyrir Indónesíu. íbúar þess
hafa á hinn bóginn ætíð fundið
til meiri skyldleika með íbúum
Papúa Nýju-Guineu, enda eru
þeir af sama þjóðerni. Hvoru
tveggja eru Melanesíumenn.
Irian Jaya var áður nýlcnda
Hollands og Hollcndingar
hefðu sjálfir kosið að þar hefði
verið stofnað sjálfstætt ríki.
En þeir réðu litlu um skiptingu
nýlendna sinna og Indónesu-
menn innlimuðu Irian Jaya í
ríki sitt áirð 1963. Sameinuðu
þjóðirnar lögðu blessun sína
yfir innlimunina, en íbúarnir
sjálfir og ráðamenn Papúa
Nýju-Guineu voru ekki spurðir
álits.
Indóncsar hafa lengi vitað
hvern hug íbúar héraðsins
bera til þeirra og nýverið tóku
þeir upp nýja stefnu. Peir hófu
stórfellda fólksflutninga frá
örðum hlutum Indónesíu til
Irian Jaya og gera sér vonir um
að blóðblöndunin muni um
síðir veikja mótspyrnu íbú-
anna. Að auki munu Melanes-
íunrenn fljótlega verða minni-
hlutahópur í landi sínu.
Washington-Keuter
■ Norðmenn ætla að kaupa
skriðdrekavopn af Bandaríkja-
mönnum fyrir 126 milljónir doll-
ara, að því er bandaríska varn-
armálaráðuneytið skýrði nýver-
ið frá. Hér er um að ræða 7612
eldflaugar, sem Norðmenn
hyggjast nota gegn sovéskum
vígvélum, reyni þeir einhverja
innrás í landið.
Fólksflutningarnir hafa
mælst illa fyrir í Irian Jaya og
hafa gefið bráttu skæruliða
þar byr undir báða vængi.
Skæruliðarnir eru fáir og illa
búnum vopnum, sumir hafa
jafnvel aðeins boga og örvar.
Hernaður þeirra hefur þó orð-
ið til þess að um 10 þúsund
manns hafa flúið yfir landa-
rnærin til Papúa Nýju-Guineu.
Fólksflóttinn á sennilega enn
eftir að aukast og þá er vel
hugsanlegt að margir renni
hýru auga til Ástralíu, enda
stutt að fara.
Ástralir mótmæltu innlimun
Irian Jaya á sínum tíma, en
þeir hafa ekki stutt skærulið-
anna í héraðinu. Ástralíubúi
var þannig nýlega hnepptur í
fangelsi fyrir að hafa selt
skæruliðunum vopn.
Enn sem komið er hafa
áströlsk stjórnvöld ekki
Dagblaðaskrif
drápu stjóra
Forsetason-
ur smyglar
hassi
Chichester-Reuter
■ James Stevens, sonur for-
seta Sierra Leone, var dæmdur
í þriggja ára fangelsi fyrir að
smygla hassi inn í England.
Hann var handtekinn í Gatwick
flugvelli, rétt við London, og
fundust 11 kg af eiturlyfjum í
farangri hans.
Eiginkona forsetasonarins
var dæmd í 30 mánaða fangelsi
fyrir að hafa verið í vitorði með
manni sínum. Þá hlaut frænka
hans 21 mánaðar dóm fyrir
sakir.
ákveðið hvort þau veiti fimm-
menningunum hæli í landinu.
Pau segja að þjóðerni þeirra
sé óvíst, þar sem þeir tali
óþekkta málýsku. Jafnframt
óttast Ástralíumenn að verði
þeir við beiðni fimmmenning-
anna muni allar flóðgáttar
opnast og flóttamenn frá Irian
Jaya streyma inn í landið í þús-
undatali.
(Byggt á Econonúst of Refúgees).
■ Vestur-þýskir NATO-hermenn á æfingu. Varalið fyrir sviss-
neska herinn?
NATO-varnir fyrir
hlutlaust Sviss?
Peking-Keuter
■ Ráðamenn í kínverska
kommúnistaflokknum gagn-
rýndu dagblaðið Gunagming
fyrir að birta ósannar fréttir um
framkvæmdastjóra listasafns
eins í Nanjing borg. Sakaði
flokkurinn blaðið um að hafa
þannig ýtt manninum út í
sjálfsmorð.
Flokksdeild kommúnista í Ji-
angsu héraði var einnig gagn-
rýnd fyrir að hafa árið 1982
ásakað framkvæmdastjórann
um að hafa stolið verkum ann-
arra fræðimanna.
Stjórinn játaði árið eftir að
hafa orðið á mistök í starfi en
neitaði öllum sakargiftum
kommúnistaflokksdeildarinnar.
Þegar svo dagblaðið birti í
fyrra fyrri ásakanirnar í blaði
sínu og eyddi þremur greinum í
svívirðingar og opinberar árásir
á manninn, var honum öllum
lokið. Eftir að liafa þjáðst á geði
í langan tíma endaði stjórinn
líf sitt á því að hengja sig í
nóvember sl.
■ Fimmmenningarnir komu frá litlu eyjunum rétt norðan við Torressund og réru yfir til
Fimmtudagseyju undan strönd Ástralíu. Sundið er þar ekki neina 10-15 km. breytt og er þetta stysti
vegurinn milli Asíu og Ástralíu.
París-Reuter
■ Franskt dagblað birti fyrir
helgi útdrátt úr leyniskjali frá
svissneska hernum þar sem kem-
ur fram að gert er ráð fyrir því
að NATO-hersveitir komi
Svisslendingum til aðstoðar
verði þeir fyrir árás Varsjár-
bandalagsríkjanna jafnvel þótt
Sviss sé hlutlaust og taki ekki
þátt í hernaðarsamstarfi með
NATO.
Talsmaður svissneska sendi-
ráðsins í París hefur ekki viljað
tjá sig um sanngildi fréttarinnar
sem birtist í vinstridagblaðinu
Liberation.
Séu heimildir blaðsins réttar
er hér um að ræða meiriháttar
breytingu á varnarmálastefnu
Svisslendinga sem hafa alla tíð
lagt áherslu á eigið hlutleysi í
hugsanlegum átökum milli aust-
urs og vesturs.
Blaðið segir að í þriðja hluta
nýafstaðinna heræfinga í Sviss
hafi verið gert ráð fyrir því að
leyfa NATO-hersveitum að
sækja inn í landið í Vestur-Sviss
nálægt 'frönsku landamærunum
til að berjast við sovéskar her-
sveitir sem hefðu ráðist inn í
Austur-Sviss frá Austurríki og
Ítalíu.
í heræfingunum var gert ráð
fyrir því að Sovéthollri bráða-
birgðastjórn hefði verið komið
upp og að hún réði yfir útvarps-
og sjónvarpsstöðvum á her-
teknu svæðunum. Ennfremur
var gert ráð fyrir því að
Svisslendingar klofnuðu í tvær
andstæðar fylkingar og að sumir
styðji Sovétmenn en aðrir
NATO.