NT - 07.08.1985, Page 21
Miðvikudagur 7. ágúst 1985 21
fliUönd
Minningarathöfnin í Hiroshima 40 árum síðar:
„Þetta má ekki endurtaka“
- segja 100 borgarstjórar
■ Þess atburðar, er kjarn-
orkusprengju var varpað á jap-
önsku borgina Hiroshima fyrir
réttum fjörutíu árum,var minnst
í gær, bæði í borginni sjálfri og
víða um heim.
Megininntak í máli ræðu-
manna var, að slíkir atburðir
mættu aldrei endurtaka sig.
Nakasone, forsætisráðherra
Japans, sagói á minningarhátíð
í Friðargarðinum í Hiroshima,
þar sem viðstaddir voru um
fimmtíu og fimm þúsund
manns, að eyða bæri kjarnorku-
vopnabúrum heimsins. Friðar-
garðurinn stendur nú þar sem
kjarnorkusprengjan féll til jarð-
ar 6. ágúst 1945. Tugþúsundir
manna létu lífið, Japanir voru
knúnir til uppgjafar og með
sprengjunni tók mannkynið sitt
fyrsta skref inn í kjarnorkuver-
öld.
I allt er talið að um tvö
hundruð þúsund manns hafi lát-
ið lífið í sprengingunni og af
völdum hennar.
Kirkjuklukkum var hringt og
sírenur hljómuðu klukkan
fimmtán mínútur gengin í níu f
gærmorgun, en þá fyrir fjörutfu
árum féll sprengjan til jarðar frá
bandarísku sprengjuflugvélinni
Viðbrögð
viða um heim
Washington:
■ Reagan Bandaríkjafor-
seti varði árásina á Hiros-
hima í ræðu í gær og sagði,
að bandamenn hefðu ákveð-
ið að varpa sprengjunni á
borgina til þess að binda
enda á mestu styrjaldarátök
mannkyns. Hann ítrekaði þá
afstöðu Bandaríkjamanna,
að sigur með venjulegum
vopnum hefði kostað mill-
jónir manna lífið.
Moskva:
í Prövdu, málgagni sov-
éska kommúnistaflokksins,
var því haldið fram í dag að
Bandaríkjamenn hefðu
varpað sprengjunum á borg-
irnar tvær til þess að hræða
Sovétmenn og það hefði ver-
ið fyrsta skrefið út í kaida
stríðið.
Vestræn ríki:
Hátt á annað hundrað
menn voru handteknir eftir
mótmælastöður í Dan-
mörku, við flugstöðina í Kar-
up á Jótlandi og í Kaup-
mannahöfn. Friðarsinnar
mótmæltu við sendiráð
Frakka, Spánverja og
Norðmanna gegn því, að
þeir, sem neita að gegna
herþjónustu í mótmælaskyni
í þessum löndum hafa verið
hnepptir í fangelsi. Þá var
einn leiðtogi Grænfriðunga í
V-Pýskalandi, Petra Kelly,
meðal átján manna, sem
handteknir voru við herstöð
Bandaríkjamanna í Mut-
linge. Part eru geymd kjarn-
orkuvopn. Mótmælastöður
voru við sendiráð Bandaríkj-
anna í Madrid, eldflauga-
stöðvar á Sikiley og á fjöl-
mörgum stöðum í Bretlandi.
Þá voru fjölmennar friðar-
göngur farnar í Bandaríkjun-
um.
Austantjaldsríki:
Dagblöð í austantjalds-
ríkjum minntust atburðarins
fyrir 40 árum með árásum á
Bandaríkjamenn og lofsyrð-
um í garð Sovétmanna fyrir
að ætla að hætta tilraunum
með kjarnorkuvopn í fimm
mánuði.
Enola Gay. Mannfjöldinn
minntist hinna látnu með einnar
mínútu þögn, en síðan var must-
erisklukkum hringt og dúfum
var sleppt.
Eitt hundrað borgarstjórar frá
tuttugu og þrern iöndum eru
samankomnir í Hiroshima og í
ályktun sem samþykkt var á
fundi þeirra segir, að allar þjóð-
ir heims og sérstaklega ráða-
menn þeirra ættu að heimsækja
Hiroshima og sjá með eigin
augum hverjar afleiðingar eru
af kjarnorkusprengju. Ráð-
stefna borgarstjóranna var
undirbúin af borgarstjóranum í
Hiroshima og einnig borgar-
stjóranum í Nagasaki, en kjarn-
orkusprengju var varpað á þá
borg þrem dögum síðar en á
Hiroshima.
Borgarstjórarnir segja í álykt-
un sinni, að með því að kynna
sér vandlega áhrif sprengjunn-
ar, hafi þeir komist að raun um,
að hættan af gereyðingu af völd-
um sprengjunnar sé yfirþyrm-
andi. „Það er okkar skoðun, að
harmleik sem þennan megi
aldrei endurtaka", segja borgar-
stjórarnir í ályktun sinni.
Þá eru stórveldin hvött til
þess að leggja sitt af mörkum til
þess að auka líkur á friði í
heiminum og vinna að því í
friðarviðræðum í Genf að kjarn-
orkuvopnum verði eytt.
Lestarslysið í Frakklandi:
Stöðvarstjóri í varð
haldi fyrir gáleysi
Cahors-Reuter
■ Stöðvarstjóri járnbrauta-
stöðvarinnar í Assier í Suður-
Frakklandi, Yves Saliens að
nafni, var í gær handtekinn
grunaður um morð af gáleysi.
Mistök hans eru talin hafa vald-
Leiðtogar araba
funda í Marokkó
ið því að tvær lestir rákust
saman rétt við stöðina á laugar-
dag og létust 35 í slysinu. Þetta
er alvarlegasta lestarslys í 13 ár
í Frakklandi.
Saliens játaði við yfirheyrslur
að hafa hleypt tveimur lestum
inn á sama sporið áður en önnur
þeirra var að fullu farin út af
því. Lestarnarrákusthvorfram-
an á aðra við Flaujac-Gare, sem
er rétt hjá stöðinni.
Vitni bera að Saliens hafi
kallað upp „það er úti um mig“
um leið og hann hafi orðið
mistaka sinna var. Stöðvarstjór-
inn gat hins vegar ekki komið
boðum til lestanna í tæka tíð.
Engin ljós eru við sporið á
þessari leið til að vara lestar-
stjóra við hættu, heldur einungis
símasamband milli stöðvanna.
Fjölmiðlar í Frakklandi telja
að þessi bagalegi skortur á
öryggi skapi óþarflega mikið
rúm fyrir mannleg mistök. Með-
fram langflestum járnbrautar-
leiðum í landinu eru öryggisljós
og beint símasamband er við
sumar hraðlestir.
Enn mun þó öryggi vera ófull-
nægjandi víða í Frakklandi.
Flugslysið í Dallas:
Casablanca-Reuler
■ Fundur æðstu manna
ríkja Arababandalagsins
hefst í Casablanca í Marokkó
í dag, sá fyrsti sem þeir eiga
með sér í þrjú ár. Marga
þjóðarleiðtoga vantar þó á
fundinn og fjögur lönd sendu
ekki fulltrúa á hann.
Aðalmálin á fundinum
verða væntanlega stríðið
milli íran og írak, samkomu-
lag Jórdaníumanna og Pal-
estínuaraba, sem gert var í
Amman í febrúar, og hugs-
anlega endurkoma Egypta í
bandalagið. Þeir voru reknir
úr því í kjölfar friðarsamn-
inganna við ísrael árið 1979
og síðan hefur andað köldu
milli þeirra og margra araba-
ríkja.
Líbýumenn hafa krafist
þess að samþykktar verði
refsiaðgerðir gegn írak og
Tölva skipaði flugmann-
inum að hækka sig
■ Ekki má telja líklegt, að fundarmenn fínni lausnir á þeim
gífurlegum vandamálum, sem til umræðu eru. Myndin er frá
átökum Israelsmanna og Líbana í vetur.
Jórdaníu á fundinum, en
bæði löndin hafa bætt mjög
sambúð sína við Egyptaland.
Leiðtogar margra ríkja við
Persaflóa, svo sem Saudi-
Arabíu, írak og Kuwait
ákváðu að sitja heima og
önnur ríki senda alls enga
fulltrúa. Þau ríki eru
Sýrland, Alsír, Suður-Yem-
en og Líbanon.
Síðasti fundur Araba-
bandalagsins, sem 21 land á
aðild að, var haldinn í Fez,
Marokkó, í september 1982.
Pá sem nú var það Hassan
konungur Marokkó, sem átti
frumkvæðið að fundinum.
Dallas-Reuter
■ Tölvubúnaður skipaði flug-
manni þotunnar, sem fórst við
Fort Worth flugvöll við Dallas á
föstudag, þrívegis að hækka
flugið áður en hún hrapaði til
jarðar. Talið er að 133 manns
hafi farið í slysinu, en 31 komst
lífs af. Vonskuveður var er
slysið varð, úthellisrigning og
hvassviðri.
Ekki er talið víst að flugmað-
ur þotunnar, sem var af
Lockheed Tristar gerð frá flug-
félaginu Delta, hafi haft tíma til
að bregðast við viðvöruninni.
Tæki þetta er í nefi þotunnar og
gefur frá sér hljóð þegar nefið
er of langt niðri.
Fyrst í stað var talið að vélin
hefði lent í snarpri vindhviðu,
en forsvarsmenn Delta sögðust
í gær vera 95% vissir um að svo
hefði ekki verið. Þess í stað er
talið að flugmaðurinn hafi kom-
ið of hratt og of lágt inn til
lendingar.
Flugumferðarstjórar á Forth
Worth flugvelli vöruðu flug-
manninn við að lenda undir
þessum kringumstæðum og
sögðu honum að gera nýja til-
raun til lendingar. Svo virðist
sem hann hafi aldrei heyrt þau
fyrirmæli.
Meðal þeirra sem fórust í
slysinu var háttsettur maður
innan IBM. Sá er af mörgurn
talinn eiga mestan heiður af
hinni góðu stöðu fyrirtækisins á
einkatölvumarkaðnum.
£
s
Uj
~NEWS IN BRIEF
Aug.6
MOSCOW - The Soviet
Union began a fíve-month
freeze on nuclear tests
tiined to coincide with the
40th anniversary of the
dropping of a U.S. atomic
bomb on Hiroshima at the
end of World War Two.
HIROSHIMA, JAPAN -
The explosion of an atom-
ic bomb over this city in
1945 was marked at the
blast site and elsewhere
with appeals that nuclear
weapon should never be
used again. Anti-nuclear
weapons protests took
place in several countries,
At Mutlangen in West
Germany, police said they
arrested 18 demonstrat-
ors, including radical
Greens deputy Petra
Kelly, who tried to block-
ade a U.S. nuclear base.
DAVEYTON, SOUTH
AFRICA - Nobel prize
winner Bishop Desmond
Tutu challenged South
African emergency regul-
ations by criticizing go-
vernment curbs on the
funerals of riot victims.
GEORGETOWN, GUY-
ANA - Guyana’s two
state-owned radio stations
interrupted their regular
programmes with solemn
music and rumours circu-
lated that president Forb-
es Burnhain had died, the
Caribbean news agency
Cana said.
h
g
^ JOHANNESBURG -So-
(A uth African police hurled
S tear gas grcnades into the
gj home of black leader
^ Winnie Mandeala’s home
and arrested 30 people, a
police spokesman said.
Mandela was away from
her home at the time.
SHTOURA, LEBANON
- Lebanese opposition
lcadcrs met in this Syrian-
held town to launch a
broad coalition seeking to
reform the nation’s po-
litical systen and end a
decade of civil war.
LONDON - The gover-
M- nors of the British Bro-
Uj
adcasting Corporation
uuvu.viuig vuipuidiiun
(BBC) stood by a contro-
versial decision not to
^ screen a documentary on
Northern Ireland that has
^ provoked a furore over
media freedom and go-
vernment interference.
CASTELLON DE LA
PLANA, SPAIN - Rag-
ing forest fíres cut of
Spain’s main holiday mot-
orway, between Barcel-
ona and Valencia, and
forccd the cvacuation of
three villages.
PALERMO, SICILY, -
Gunmen shot dead a sen-
ior Sicilian policeman and
an aide in the second att-
! ack within 10 days on
offícers hunting the Mafía,
police said.
NEWSINBRIEFJ