NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 11.08.1985, Qupperneq 5

NT - 11.08.1985, Qupperneq 5
jafnan til góöa þegar kreppir að hjá því, ekki hvað síst í tilfelli eins og þínu. Sóttir þú styrk í þess háttar sannfæringu? „Nei, það get ég varla sagt. Þó hef. ég trú á að lífi manns sé stjórnað einhvers staðar frá, að það séu fyrir hendi örlög af einhverju tagi. Að því leyti má kannski segja að um trú sé að ræða, en það er ekki, að ég sé neitt sérstaklega að spekúlera í svoleiðis hlutum. Jú, ætli það sé ekki tilfellið og að þetta hafi hjálpað manni eitt- hvað við að sætta sig við orðinn hlut. Mér dettur nú helst í hug að slíkt sé einkum gagnlegt hvað varðar sam- skipti við annað fólk, þá sérstaklega starfsfólkið á stofnununum. Starfs- fólkið er það fólk sem liggur einna beinast við að maður skeyti skapi sínu á. Ég held að ég hafi ekki verið óþarflega erfiður, því þegar maður sýnir sjálfur þolinmæði, skilning og tillitssemi fær maður það alltaf til baka og ég eignaðist þarna mikið af vinum meðal starfsfólks. Raunar leið- ir það nokkuð af sjálfu sér að ef maður er hæfilega mildur og ekki með uppsteyt þá líkar fólki betur við mann, sem er nú alltaf til bóta í mannlegum samskiptum, ekki satt?“ Ekki viljum við bera á móti því að slíkar týpur séu skemmtilegri en þær sem allt hafa á hornum sér. En hvað með hann sjálfan, mildaðist hann við þessa lífsreynslu eða hefur hann ef til vill alltaf verið svona? Annað sjónarhorn „Ég er náttúrlega ekki besti maður- inn til þess að tala um persónuleika- breytingar hjá sjálfum mér og ég held að um það verði aðrir að dæma. Hinu er ekki hægt að neita að ég hugsa núna um hluti sem ég hugsaði ekki um áður. Sjóndeildarhringurinn hef- ur breyst mikið. Pannig til dæmis velti ég oft fyrir mér afdrifum alls þess fjölda sem maður heyrir um að lendi í slysum en veit síðan lítið meir um. Petta fólk gæti verið týnt einhvers staðar inni á stofnunum og maður hefur ekki hugmynd um í hvernig ástandi það er. Eftir að hafa kynnst því hver eftirleikurinn getur orðið - það þarf kannski ekki nema að brjóta illa á sér löppina til að lenda í talsvert miklum eftirköstum - breytast við- horfin talsvert. Ég er ekki frá því að fólk sem þekkir þetta ferli hljóti að fá dálítið annað og jafnvel mannlegra sjónarhorn. Fólk sem vinnur á svona stöðum, er trúlega búið að sjá marga hluti erfiða og horfa upp á mörg leiðindin og er því nærgætnara en gengur og gerist.“ En hvað með fólk almennt, sýna menn yfirleitt hver öðrum nærgætni og skilning? „Eflaust er aldrei nóg um það og ég held jafnvel að það sé nokkur munur á borginni annars vegar og svo sveit- inni hins vegar. Hér í borginni er svo mikill asi á öllum og læti, það þarf að kaupa þetta og það þarf að gera hitt og varla tími til að lifa. En trúlega er þetta farið að færast upp í sveitirnar líka, er það ekki gangurinn? Hvað varðar fatlaða sérstaklega þá finnst mér oft undarleg viðhorf manna og einfaldir hlutir eins og að leggja í bílastæði sérstaklega ætlað fötluðum geta verið vandkvæðum bundið. Fólk virðist oft ekkert mark taka á slíkum merkingum, og ég hef oftar en einu sinni flautað á menn í þessum stæðum án þess að þeir hreyfi sig. Þetta er auðvitað bara lítið dæmi, en það segir samt ákveðna sögu. En það er nú kannski líka rétt að taka fram, að þetta á alls ekki við um alla og saman við er margt mjög gott fólk. í gegnum árin hef ég kynnst slíku fólki og það hefur verið mér mikils virði.“ Ómetanleg stoð Þegar þú lentir í slysinu varstu einhleypur, laus og liðugur. Ég reikna með að þú hafir kynnst Auði sambýliskonu þinni eftir það. „Jú það er rétt, við kynntumst fyrst á Grensásdeildinni en hún var þá að vinna þar um tíma, en annars er hún kennari. Svo eftir að ég útskrifaðist þá fór þetta svona að aukast eins og gengur." Ingi Steinn þegir örskamma NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 5 stund en segir svo. „Það er ómetan- legt fyrir mig að eiga hana að. Það væri til dæmis óhugsandi að ég gæti búið á stað sem þessum, án þess að hennar nyti við.“ Nú er það svo þegar fólk er að draga sig saman að þá spyrja menn sig oft hvort þeir séu að gera rétta hlutinn. Hvað með þig? „Jú auðvitað gerði maður það og það voru uppi ýmsar efasemdir í þessu sambandi. Maður hugsaði mik- ið um það hvort maður gæti verið henni eitthvað og hvort þetta væri í rauninni áhugi hennar á mér eða hvort þetta væri einhver vorkunnsenti eða eitthvað svoleiðis og hvort hún myndi þá ekki verða leið og þreytt á þessu. Semsagt það voru margar efasemdir í sambandi við þetta og það sjálfsagt á báða bóga. En þetta blessaðist nú allt saman og við erum búin að vera saman í ein þrjú ár.“ Stöðugt eiga sér stað stór- stígar framfarir í læknavísindunum og því ekki loku fyrir það skotið að einhverntíma í framtíðinni verði fundin ráð sem hjálpað gætu í löm- unartilfellum. Við berum þessarfrek- ar draumórakenndu vangaveltur und- ir Inga Stein. „Jú eflaust er það hugsanlegt að einhverntíma í framtíðinni verði fundin upp lækning við meinum eins ogmínu. Ég hefhins vegarekki mikla trú á að það verði á minni lífstíð. Ég veit heldur ekki hvernig maður myndi bregðast við ef slíkt kæmi allt í einu á daginn, það yrði eflaust eins mikil breyting og slysið var á sínum tíma. Maður hefur smám saman skorðast í ákveðið lífsmynstur og ég veit til dæmis ekki hvernig samband mitt og sambýliskonu minnar myndi breytast ef slíkt kæmi til. Allar hugmyndir manns um framtíðina og lífið taka orðið mið af því ástandi sem maður er í.“ Húsnæði og atvinna Hefurðu ákveðnar hugmyndir um framtíðina, einhver áform? „Ja ekkert annað eða meira en svona gengur og gerist. Maður er alltaf að vona að það rætist úr hús- næðismálunum hjá manni og helst vildi ég geta komið mér upp litlu húsi einhversstaðar, en það er nú ekkert hlaupið að því að fá svoleiðis hús, það er ekki einu sinni hægt að fá litla lóð hvað þá meira. Nú og svo er það spurningin um vinnu. Eg er gjörsam- lega ófaglærður þannig að það liggur svo sem ekkert starf beint við. Öll sú reynsla sem ég hafði aflað mér í vinnu áður kemur mér ekki að nokkru gagni núna, ég hafði alltaf gaman af vélum. Ég sé mig einhvernveginn ekki sitjandi á skrifstofu allan daginn, útivistin hefur alltaf átt betur við mig. Ég fór á tölvunámskeið hjá Rauða krossinum, en mér sýnist að tölvan og ég eigum bara ekki samleið. Þannig að í rauninni eru framtíðaráformin í nokkuð lausu lofti hvað þetta varðar, en það sem ég átti við áðan var að ég sé ekki fram á neina breytingu á fötlun minni og þannig hlýt ég alltaf að taka mið af því.“ Hvað með fjölskyldu, er slíkt möguleiki? „Ja það veit í rauninni enginn hvað er hægt í því sambandi og töluvert skiptar skoðanir um það, enda hafa þessir hlutir gengið misjafnlega hjá fötluðum. En auðvitað er það draum- ur hjá manni eins og sjálfsagt hjá flestum.“ Við sitjum þegjandi örlitla stund en snúum okkur síðan að öðru. Ingi Steinn er nýkominn af alþjóðlegu íþróttamóti fyrir fatlaða. Við innum hann nánar eftir því. „Jú við fórum þarna fjórir íslend- ingar og stóðum okkur bara vel. Þetta er árlegt mót, nema þegar Ólympíu- leikar eru, og er haldið í Brctlandi, skammt fyrir utan London. Víst er það talsvert mikilvægt að komast í snertingu við fólk frá öðrum löndum og maður hefur af því bæði gagn og gaman. Við vorum fjórtán saman á herbergi þannig að þetta var næstum eins og í hernum og maður kynntist mörgu fólki. Sjálfur keppti ég í kúlu og keilukasti, en keppendum er raðað í flokka eftir því hversu mikið fatlaðir þeir eru.“ Náðir þú góðum árangri? „Já, ég held ég megi segja það, ég fékk silfur í kúluvarpi. Annars náðu Islendingarnir fjórum silfurverðlaun- um og tveimur bronsverðlaunum svo það verður að teljast nokkuð góður árangur.“ Eru íþróttirnar þá aðal hobbíið hjá þér? „Já ætli það megi ekki segja það þessa stundina. Annars byrjaði ég ekki á þessu fyrr en nú í vor eða sumar. Mér finnst líka mjög gaman að ferðast og hef farið nokkrum sinnum til útlanda. En það er dýrt og því ekki hægt að gera eins mikið af því og maður vildi.“ Flestir ættu að geta tekið undir þessi orð Inga Steins. Á aldrei eftir að keyra ölvaður44 Við höfum staðið lengi við en spyrjum í lokin hvort hann geti ekki dregið saman í stuttu máli viðhorf sín til ölvunaraksturs og þá reynslu sem hið örlagaríka slys hefur haft í för með sér. „Ja, ölvunarakstur ætti aldrei að eiga sér stað, punktur. Svo einfalt er það. Ég er alveg viss um að ég á aldrei eftir að keyra drukkinn og sjálfsagt myndi ég gera allt sem í mínu valdi stæði til þess að koma í veg fyrir að einhver annar gerði það. Nú orðið er ég mikið meðvitaðri um öryggisatriði hverskonar, bílbelti og annað slíkt og vil hafa þá hluti í lagi. Fréttir af óhöppum koma líka miklu meira við mann og það er ekki laust við að það sé í manni hálfgerður beigur þegar stórhelgar nálgast, eins og til dæmis verslunarmannahelgin. Refsingin getur verið svo óskaplega þung þegar menn gæta ekki að sér, og þá á ég ekki bara við möguleikana á líkam- legri örkuml, heldur hafa menn ein- ungis rétt til ákveðinna bóta ef þeir til dæmis eru ölvaðir við aksturinn. Þannig er staðan til dæmis hjá mér og refsingin því grimmari. Ég held ekki að fötlunin eða örkumlin verði þung- bærari sálarlega þó menn hafi verið ölvaðir og geti því sjálfum sér um kennt. Hún verður heldur ekki létt- bærari. En almennt held ég að menn þakki bara fyrir ef þeir hafa verið einir og þurfi ekki að hafa á samvisk- unni að hafa valdið einhverjum öðr- um dauða eða örkumlum.“ Þögn. Við íhugum aðeins það sem lngi Steinn var að segja og okkur finnst eins og það endurspegli hljóðlát og á margan hátt óeigingjörn viðhorf mannsins sem við höfum verið að tala við. Þegar við stöndum upp og kveðjum segir hann: „Belssaður gerðu nú ekki úr þessu einhverja væmnisrullu, mað- ur hefur ekki yfir svo miklu að kvarta meðan heilinn er í lagi. Þá fyrst verður tilveran verulega óhugnanleg, þegar hann fer.“ B.G. .M.T. Fyrsta sending af nýju I.M.T. drattarvelunum er komin og uppseld. Yerð: I.M.T. 65 ha. án framdrifs . kr. 329.000.- I.M.T. 65 ha. m/fjórhjóladr. . kr. 385.000.- I.M.T. 78 ha. m/fjórhjóladr. . kr. 439.000.- (Gengi 2. ágúst 1985) Næsta sending væntanleg innan fárra daga. Við bjóðum viðskiptavinum, sem panta vélar úr næstu sendingu, óbreytt verð miðað við gengi 2/8 ’85, ef staðfest pöntun berst fyrir 20. ágúst n.k. ÓDÝRUSTU VÉLARNAR í ÞESSUM STÆRÐARFLOKKI Hafið samband og tryggið ykkur góða vél á frábæru verði. Vélaborg Bútækni hf. Sími 686655/686680

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.