NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 11.08.1985, Qupperneq 10

NT - 11.08.1985, Qupperneq 10
NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 12 Helgarblað NT kannar flutningsgetu strætisvagnanna ■ Það er í rauninni algjör óþarfi að vera að panta sendiferðabíl ef þú þarft að flytja búslóðina. Þú getur einfaldlega farið með draslið í strætó, alla vega ef þú ert svo stálheppinn að búa þar sem strætisvagnar Reykjavíkur fara um. Helgarblaðsmenn könnuðu þennan félagslega möguleika, sem einnig mætti nefna efnahagslega hagræðingu, nú í vikunni og viti menn, flutningarnir gengu eins og í teiknimyndasögu. Að vísu þúrfa menn að vera snöggir að handlanga sófasettið og standlampann inn í vagninn því bílstjórarnir verða að halda áætlun og Páll er ekki einn í heiminum. í rauninni er vilji allt sem þarf og svo auðvitað að eiga fyrir fargjaldinu. Það verður að viðurkennast að tilraunin reyndi nokkuð á þolinmæði sumra bílstjóranna því búslóðinni var ekið fram og til baka um Reykjavík svona til að prófa mismunandi leiðir. Ekki má heldur gleyma farþegunum en í flestum tilvikum brugðust þeir mjög vel við og aðstoðuðu flutningamenn okkar á margan hátt. Sumir sýndu meira að segja samúð sína. „Voðaleg örbirgð er á mörgu fólki,“ sagði eldri frú við vinkonu sína þegar hún sá sófasettið, sem verið var að bera inn í vagninn. Hún vissi þó ekki að menn hafa oft slegið á lær sér í þessum hægindum og gera enn þegar vel liggur á þeim. Það verður líka að segjast eins og er að flutningamönnum okkar sárnaði þegar einn vagnstjórinn fór niðrandi orðum um húsgögnin. „Ég vil ekki fá þetta andskotans drasl inn í vagninn minn.“ „Vagninn minn.“ Ég bara spyr sí svona. Hverjir eiga landið, já og vagnana. En eins og áður segir mættum við yfirgnæfandi velvilja bæði vagnstjóra og farþega. í einum vagninum voru líka nokkrir erlendir ferðamenn sem horfðu þrumulostnir á aðfarirnar þegar verið var að burðast með gamla tekksettið inn í vagninn. Svo horfðu þeir í kringum sig og sáu að enginn kippti sér upp við þetta. Ef þair hafa lesið fornsögurnar áður en þeir komu til íslands vita þeir að þjóðin er búin að standa í endalausum flutningum allt frá upphafi. Fyrst frá Noregi yfir úfið hafið og síðan smám saman flutt til Reykjavíkur utan af landsbyggðinni í áföngum. í leiðabók strætisvagna Reykjavíkur, sem löngu er uppseld og hvergi er fáanleg, segir að farþegum sé óheimilt að flytja með sér gler og fljótandi efni í opnum ílátum og svo auðvitað þessi klassíska setning að neysla áfengis sé óheimil í vögnunum eins og annars staðar í landinu. Þar er líka tekið fram að óheimilt sé að halda uppi samræðum við vagnstjóra, meðan ekið er. Nema hvað, það ætti í rauninni að vera bannað víðar að halda fólki upp á kjaftasnakki. Og svo auðvitað þetta að blindir fá ókeypis með strætisvögnunum. Við slógum á þráðinn til Haraldar Þorsteinssonar hjá Strætisvögnunum og spurðum hann hvort það væru mikil brögð að því að fólk notaði vagnana undir búferlaflutninga. Haraldur kvað það hafa færst í vöxt sérstaklega eftir óeirðirnar í kringum pakkaflutninga þeirra Steindórsmanna. „Þetta er svolítið undir vagnstjórunum komið en við reynum að hjálpa til eins og hægt er. Kjallararnir aftast í nýju vögnunum eru rúmgóðir en farþegar verða að kunna náttúrunni hóf í þessum efnum sem öðrum.“ í leiðabókinni sem að framan er vitnað til er fólki bent á að gera sér far um að vera komin á biðstöðina í tæka tíð áður en vagninn er væntanlegur samkvæmt áætlun. Hér er auðvitað um grundvallaratriði að ræða sérstaklega fyrir þá sem hyggja á búferlaflutninga. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt að vera ekki búinn að pakka og komin út á stöð þegar vagninn kemur í loftköstunum. Sem sagt ef þú ert að flytja, pældu þá í strætó, það borgar sig. NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 1 3 ■ Aðeins hærra og svo inn með draslið, varlega með stólinn hennar mömmu. „Það er atlt í lagi með ykkur strákar,“ sagði vagnstjórinn. „Þið eruð hvorki ölvaðir né með ís.“ ■ Allt er hægt ef handtökin eru hröð og samtakamátturinn nægur. Borðið var ekki fyrr komið út en vagninn var horfinn. Sparifé Þ'lt .er^esam^nnu' H^Æxtare.^ panKans, Þ«' " 0 vöxtum. ■ss^fesscr býöst varla- / LSL-f vaxlareikningur ■c i, >• ■ á íf ':: r vv.-\j ,ý y“».x’ iý 3%, -j .j ií Aðalbanki Bankastraeti 7 i Reykjavik og 18 útibú viðs vegar um land. 1 ÆVINTYRAHUSIÐ - FOTBOLTASKORINN - STORI FOTBOLTINN - LITLI FÓTBOLTINN - VÍKINGURINN - BANGSINN - TENINGURINN - FÍLLINN - GRÍSINN - UGLAN BllNAÐARBANKINN / TRAUSTUR BANKI TRAUSTUR BANKI

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.