NT - 11.08.1985, Page 18

NT - 11.08.1985, Page 18
NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 22 Játning hryðjuverkamanns í þjónustu ríkisins ■ Það eru fáir óhultir í lögregluríki Pinochets. Hvað ertu gamall? Ég er 28 ára. Þú hefur þá aöeins verið 19 ára þegar þú varst fenginn til þess að vinna fyrir DINA (fyrrverandi nafn umboðs leyniþjónustunnar í Chile). Nei, ég vann aldrci á vegum DIN A. Ég tilheyrði SIFA, leyniþjónustu flughersins. Á þessum tíma vorum við ekki hlynntir gerðum DINA; okkur fannst þeir ekki nógu góðir. Yfirmenn mínir héldu þessu fram. Jafnvel þótt við værum færri. var starf okkar árangursríkara. Svo dæmi sé tekið, þá var það okkar hópur sem handtók höfuðpaura MIR (hreyfingu vinstri byltingarsinna). Hvert fóruð þið með fólkiö sem þið handtókuö? Hér áður fyrr fórum við með það til Academia dc Gucrra. En við höfðum ekkert með fangana að gera. Við höfðum enga hugmynd um það hvort þeir voru látnir lausir eða dregnir fyrir dóm. En ég veit þó að miklar pyntingar áttu sér staö. í fyrsta skiptið sent ég var vitni að slíku var fórnarlambið ung stúlka. Mér of- bauð. Hún var frá MIR. Lýstu henni! Hún var mjög ung, úr millistétt; hún var Ijóshærð. Af hverju ofbauð þér? Ég hafði aldrei áður séð neitt í líkingu við þetta. Ég var cinn af vörðunum, en... Þeir fóru með hana inn á baðherbergi og þeir börðu úr henni líftóruna. Eg horfði á þá. Hvernig átti dauði Contreras Mal- ujes sér stað? (Maluje, sem var háttsettur em- bættismaður í stjórn kommúnista í ■ Andres Antonia Yalenzuela Morales er fyrsti svikari leyniþjónustu Chile sem opinberlega segir frá starf- semi þjónustunnar undir stjórn Pinoc- het. Fréttaviðtalið við Valenzuela átti sér stað i ágúst á síðastliðnu ári á vegum „Cauce4í, sem er eitt aðal- útgáfublað andstöðunnar í Chile. En 6. nóvember, áður en viðtalið var sett á prent, lagði Pinochet hershöfðingi bann á útgáfu „Cauce“ svo og á annað prentað mál. Fréttaviðtalið hefur síð- an birst í „Diario de Caracas“, dag- blaði Yenezuela og í „Mensaje“, viku- riti sem gefið er út í Chile af kaþólsku kirkjunni. Kirkjan sótti eftir því að æðsti dómstóll í Chile léti rannsaka ákærur Valenzueals. í janúar var þessari beiðni hafnað, 11 á móti 1. Nú sem stendur býr Valenzuela í Frakk- landi undir fölsku nafni, en á sama tíma er hann á lista hjá leyniþjónust- unni yfir þá mest eftirsóttustu. Cliile, var rænt árið 1975). Maður nokkur sem við höfðum tekið til fanga, leiddi okkur til hans. Ég rnan ekki í hvaða stöðu þessi maður var. Við kölluðum hann ..Jose“. Hann var mikilvægur meðal Juventud Comunista (ungir kommún- istar). Hvað varð um Maluje? Ég man vel eftir þessari för vegna þess að ég to'k þátt í henni. Við handtókum hann ásamt ættingja hans eða vini í San Bernardo. Við höfðum „Jose" með okkur í ferðinni, en hann var enn fangi okkar. Um þetta leyti vorum við svo að segja búnir að handtaka flest alla meðlimi Juventud Comunista, að Maluje undanskild- um. Þcgar við yfirheyrðum „Jose“ sagði hann okkur að Contreras Maluje væri í húsi einu í San Bernardo. Síðan sagði hann: „Ef þið látið mig lausan, skal ég komast að því hvar hann er og þið getið síðan tekið hann fastan." Það var mjög erfitt að handsama Maluje. Hann var kraftmikill náungi. Við bundum fyrir augun á honum og

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.