NT - 18.08.1985, Blaðsíða 2

NT - 18.08.1985, Blaðsíða 2
Hvað er að sjá þig Sigurður! Hvernig getur þú gengið svona til fara, í svörtum sokkum og hvítum fötum? - En sú vitleysa. Ég er berfættur! • Svo var það maðurinn sem spurði vin sinn: - Er svartur litur? - Já. - Er hvítt litur? - Já, auðvitað, hvernig spyrðu! - Það er það sem ég er alltaf að segja við konuna mína. Við eigum þá litsjónvarp! • - Jón litli, sagði kennarinn. - Getum við borðað , kjötið af hvalnum? - Já, svaraði Jón litli. - Hvað gerum við svo við beinin? - Við skiljum þau auðvitað eftir á diskinum! • Ökukennarinn við nýja nemandann: - Segðu mér, ertu ekki örlítið nærsýnn? - Nærsýnn? Alls ekki. - Hvaða númer er á flutningabílnum fyrir framan okkur? - Hvaða flutningabíl???? • Pabbi: - Þegar ég var lítill borðaði ég alltaf skorpuna á brauðinu. Óli: - Fannst þér hún góð? Pabbi: — Já, mjög góð. Óli: - Þá máttu eiga mína! • Pétur: - Veistu það að ég er hættur að veðja? Rúnar: - Nei, þú hættir því aldrei. Pétur: - Jæja, viltu veðja? • - Hefurðu heyrt um Reykvíkinginn sem fór í búð í Hafnarfirði? Hann keypti eldspýtur og ætlaði að prófa þær, en þaö kom enginn logi. Þá fór hann aftur inn í búðina og sagði Hafnfirðingnum þaö. - Það getur ekki verið, sagði búðarmaðurinn. - Ég sem var búinn að prófa þær allar!

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.