NT - 18.08.1985, Qupperneq 8
‘81
Barna-Tíminii
Kæru krakkar!
■ Enn er BARNAPÓSTURINN svo nýr af nálinni að það eru ekki farin að berast
bréf í hann. Þið skuluð því vera fljót að taka fram blað og blýant og skrifa okkur. Skrifið
það sem ykkur liggur á hjarta. Það geta verið stuttar sögur og frásagnir, vísur, gátur,
brandarar og fleira. Ekki sakar að senda mvndir og teikningar með.
Eins og sagt var frá í síðasta BARNATIMA þá eru þrautirnar ýmist merktar með
bókstöfum eða tölustöfum. Þær með bókstöfunum eru með lausnum í sama blaði en
hinar með tölustöfunum eru verðlaunaþrautir, sem þið eigið að ráða og senda til okkar
lausnir. Einu sinni í mánuði verður svo dregið úr réttum lausnum og úrslit birt.
Verið líka dugleg að senda frásagnir í ÞVÍ GLEYMIÉG ALDREI og munið að senda
helst Ijósmynd með. Og teikningunum í NÚTlMAVERK má alls ekki gleyma.
Hittumst aftur í næstu viku,
bless, bless