NT - 18.08.1985, Blaðsíða 8

NT - 18.08.1985, Blaðsíða 8
‘81 Barna-Tíminii Kæru krakkar! ■ Enn er BARNAPÓSTURINN svo nýr af nálinni að það eru ekki farin að berast bréf í hann. Þið skuluð því vera fljót að taka fram blað og blýant og skrifa okkur. Skrifið það sem ykkur liggur á hjarta. Það geta verið stuttar sögur og frásagnir, vísur, gátur, brandarar og fleira. Ekki sakar að senda mvndir og teikningar með. Eins og sagt var frá í síðasta BARNATIMA þá eru þrautirnar ýmist merktar með bókstöfum eða tölustöfum. Þær með bókstöfunum eru með lausnum í sama blaði en hinar með tölustöfunum eru verðlaunaþrautir, sem þið eigið að ráða og senda til okkar lausnir. Einu sinni í mánuði verður svo dregið úr réttum lausnum og úrslit birt. Verið líka dugleg að senda frásagnir í ÞVÍ GLEYMIÉG ALDREI og munið að senda helst Ijósmynd með. Og teikningunum í NÚTlMAVERK má alls ekki gleyma. Hittumst aftur í næstu viku, bless, bless

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.