NT - 18.08.1985, Page 4
4
Þekkirðu mig
Nafn: Jón Bjarni Atlason
Fæddur: 1. janúar 1971
Heimili og skóli: Hraunteigur 24, Reykjavík,
Laugalækj arskóli
Áhugamál: Tölvuleikir, borðtennis og badminton
Skemmtilegast í skólanum: Danska
Uppáhaldsmatur: Appelsínuönd
Besta bíómynd: Dr. NO me James Bond
Uppáhaldshljómsveit: Frankie goes to Hollywood
Uppáhaldssöngvari: John Lennon
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Dallas
Hvert langar þig að ferðast? Til London
Hvenær ferðu að sofa? Um 11-leytið og alveg til 3
Hvað dreymdi þig í nótt? Alls ekki neitt
Ertu safnari? Já, ég safna plötum og á nú orðið
dágott safn
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir í happdrætti?
Fara út að borða, kaupa mér föt og að sjálfsögðu
plötur líka.
Hvað langar þig að verða? Hagfræðingur
Hvað lestu helst? Andrés blöð
Hvað er leiðinlegast? Að vakna á morgnana til að
fara í vinnuna.
Hvað er skemmtilegast? Fara út að borða
Hvað hefur þú gert í dag? Ég hef unnið í
unglingavinnunni og horft á sjónvarpið.
Besti brandari? Bara Hafnfirðingabrandarar. Til
dæmis þessi:
Hafnfirskur lögreglumaður handsamaði bófa og
var um það bil að bregða á hann handjárnum
þegar, skyndilega, vindurinn feykti af honum
hattinum.
- Á ég að fara að ná í hattinn?
spurði bófinn hjálpfús.
- Heldurðuaðégséeinhverbjáni?
svaraði löggan.
- Þú bíður hér á meðan
ég sæki hann!!!
Svona teikna ég mynd af mér:
Hvaða leið áfíllinn að fara til að komast á áfangastað?
Svar aftast
(