NT - 01.09.1985, Síða 3
og skjöldur sem birtast á sviðinu,"
sagði Einar.
Ekki vildu þeir meina að „Sérðu
hvað ég sé“ væri eitt heildarverk að
öðru leyti en því aö það væri safn af
popp lögum sem ættu það sammerkt
að vera unnin upp af þessum hópi á
tiltölulega skömmum tíma gagngert
fyrir hljómleikana. Þannig væri auð-
vitað ákveðin samfella og heildar-
svipur yfir þessu.
Jákvæö tónlist
Þegar Helgarblaðið spurði hvort
pólitíkur gætti í textunum hjá þeim og
hvort í þeim fælist ádeila, þvertóku
þeir fyrir það og sögðust ekki deila á.
Vitaskuld væri aldrei alveg hægt að
forðast pólitík í víðasta skilningi, en
ádeilu músík væri ekki á dagskrá hjá
þeim. Megas sagðist hafa lesið í
Þjóðviljanum að það væri í tísku að
vera jákvæður og að því leytinu
fylgdu þeirtískunni. Þegar við spurð-
um um hvað lögin fjölluðu svöruðu
þeir því til, að þeir væru einfaldlega
„um“. Kannski heims „um“ (ból), og
þóttust ekki taka eftir skilningsleysi
Helgarblaðsins, sem fannst þeir
minna sig á guðina í Atómstöðinni
þegar hér var komið sögu.
Aðspurðir sögðu þeir að þetta yrði
einn allsherjar gjörningur. Það sem
augu fólks myndu nema yrði ákaflega
ánægjulegt fyrir sjóntaugarnar, og að
menn kæmu betri menn út af tón-
leikunum en þeir voru áður.
Guðlaugur sagði að tónlistin og
látbragð og raunar sýningin í heild
væri mjög jákvæð og sjálfsagt væri
fyrir fólk að taka þátt í, humma með
o.s.frv. Hinirtóku í sama streng. „Það
hefur lengi verið í tísku að vera í fýlu,
og sá sem hefur verið fúlastur hefur
notíð hvað mestrar virðingar. En
bæði líður viðkomandi fýlusjúklingi
mjög iila sjálfum og svo er náttúrulega
vond lykt í kringum hann. En góðu
heilli hefur þróunin á síðustu árum
verið aðeins bjartari. Það er ekki það,
að heimurinn hafi batnað eitthvað á
þessum tíma. Það er svo sem alltaf
nóg efni til að vera í fýlu út af, en
málið er einfaldlega að það er enginn
ávinningur af fýlunni," sagði Megas.
Ekki sögðu þeir þremenningarnir að
Ijósadýrðin yrði meiri á þessum
hljómleikum en gengur og gerist á
hljómleikum en það mætti heldurekki
gleyma því að þarna væri fallegt fólk
á sviðinu sem nautn væri að horfa á.
Listaverk augnabliksins
Helgarblaðið vildi fá að vita hvort
framhald yrði á þessu samstarfi og
hvort plötuútgáfa væri ef til vill í
undirbúningi. Ekki sögðu þeir það
vera og að Megas-Kukl einbeittu sér
að því að „gera hljómleika". Þetta er
listaverk augnabliksins sögðu þeirog
ekkert ráðgert um framtíðina. En þó
væri Ijóst að ekki yrði framhald á
þessu á næstunni í það minnsta.
„Það er ekki mikill sjéns á að þessir
hljómleikar verði endurteknir út frá
stundatöflu Kuklsins og ekki út frá
stundatöflu Megasar. Sem stendur
höfum við skipulagt tímann fram að
hljómleikunum og gefum okkur alfarið
að þessu," sagði Einar Örn. „Kukl
hefur aldrei áður æft eins stíft fyrir
tónleika og við erum sem sagt í
þessu 24 tíma á sólarhring." Þegar
Einar talar um að stundatafla Kukls-
ins leyfi ekki endurtekningu er hann
að vísa til þess að í haust fer
hljómsveitin í þriggja vikna hljóm-
leikaferð um Evrópu. „Síðan verður
hljómsveitin leyst upp,“ segir hann
„eins og undanfarin ár, en við vinnum
í lotum, í ákveðinn tíma, svona
þrisvar eða fjórum sinnum á ári.“
Kukl rnun spila í Kaupmannahöfn,
Berlin, Hollandi, Sviss og Englandi.
Þess má geta að í Englandi mun Kukl
spila með „Psychic TV“ á fimm
mismunandi stöðum og að öllum
líkindum enda túrinn i hinu hávirðu-
lega Royal Albert Hall.
Ekki vildi Megas fjölyrða um sína
dagskrá að tónleikunum loknum, en
sagði að það væru allt saman hlutir
sem yrði byrjað á þegar þessir tón-
leikar væru afstaðnir. En hins vegar
væru þessir tónleikar fyrir augnablikið
og upplagt fyrir fólk að nota tækifærið
og koma og sjá það sem Megas-Kukl
sjá.
Helgarblaðið er hreint ekki frá því
að það gæti verið alveg ágætis
hugmynd.
B.G.
NT Sunnudagur 1. september 3
Umsjónarmenn Helgarblaðs:
Atli Magnússon
Birgir Guðmundsson
Jón Ársæll Þórðarson
og
Auður Hermannsdóttir
■Hann er nærri jafngamall öld-
inni og rannsóknir á jurtum hafa
veriö aðaláhugamál hans og
jafnframt lífsstarf. Sjá viðtal við
Ingólf Davíðsson grasafræðing
bls. 6 og 7.
■ Maraþon í Reykjavík. NT
fylgist með á sjötta hundrað
langhlaupurum sem hlupu um
götur borgarinnar um síðustu
helgi. Sjá bls. 14 og 15.
Forsíðumynd Róbert.
■ Samkvæmt nýjustu kenn-
ingum er alheimurinn langtum
stærri en gert hefur verið ráð
fyrir fram til þessa. Allt um það
á bls. 18 og 19.
Hér nýtur japanskt hugvit sín til fulls. Elektrónískar ritvélar með
minni gerast ekki léttari og fyrirferðaminni. Brother verksmiðjurnar
framleiða um eina milljón véla árlega, sem er um 15% af markaðs-
þörf. Það ætti ekki að þurfa fleiri meðmæli.
Og hér er sú nýja litla BP — 30
Sú fyrsta í heiminum sem skrifar og teiknar í fjórum litum. Nú getur
þú skilað skýrslum fallega vélrituðum með viðeigandi línuritum og
allt í lit. Líttu inn til okkar og kynntu þér þessa litlu og léttu kjörgripi.
BORCARFELL HF.
SKÓLAVÖROUSTÍG 23 - SÍMI 11372
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
n
NÝBVLAVEGI 16 • P.O. BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SIMI 641222
SUNNUHLÍÐ, AKUREYRI, SÍMI 96-25004