NT - 01.09.1985, Qupperneq 10
10 Sunnudagur 1. september NT
Snerting
Hvaða viðhorf
hefur þú til snert-
ingar og nálægðar
annarra?
M Hefur þú einhvern tímann verið í sundi og allt í einu synt upp í
fangið á bláókunnugri maneskju? Eða fengið ungbarn í hendurnar
og ekkert vitað hvað þú ættir að gera við ungann? Eða verið í
troðfullum strætó og fundið nána og mikla snertingu fólks? Hvernig
leið þér? Var þetta erfitt, allt í lagi eða bara gaman? Hér á eftir eru
12 spurningar um viðhorf þín til snertingar og nálægðar annars fólks.
Það sem þú átt að gera er að lesa yfir alla möguleikana fjóra, a, b,
c og d. Síðan merkir þú við þann sem hæfir þér best og leggur síðan
saman hversu mörg a þú færð, b og svo framvegis. Fyrir neðan sérðu
töfíu og einnig útskýringar á hverju stigi fyrir sig. Þar getur þú séð
hvernig manneskja þú ert og livað er til ráða. Að þessu búnu er t.d.
ágætt fyrir hjón að bera saman bækur sínar og kanna hvort mikið
beri á milli. Best er auðvitað að viðhorfín falli sem mest saman en ef
svo er ekki þá er að reyna að fínna leið sem hentar báðum. Góða
skemmtun...
1) Hraða tegund líkamlegra upp-
lýsinga eru mikilvægastar fyrir
Þig?
a) stærðin, fatanúmer, litir, tíska.
b) blóðflokkur, matarsmekkur,
sjúkrasaga, erfðafræðilegur bak-
grunnur.
c) líkamleg nálægð og snerting, eggj-
andi tónlist, kynlífsform.
d) líkamleg áhrif skipta engu heldur
uppeldi, trú, menntun og svo
framvegis.
2) Hvernig líður þér í troðfullum
strætó?
a) þú reynir að finna þér horn þar
sem þú getur verið í friði og losnað
við snertingu annarra.
b) þú reynir að draga þig í hlé með
því að einbeita þér að eigin hugs-
unum og Iætur sem þú vitir ekki af
hinum.
c) þú nýtur þess að finna alla þessa
snertingu.
d) þú reynir að ná augnsambandi við
einhverja aðlaðandi manneskju
og einbeitir þér að því.
3) Hvað er það fyrsta sem rekur
athygli þína þegar þú ert kynt(ur)
fyrir nýrri persónu?