NT - 04.09.1985, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 4. september 1985 15
■ Á flotkví skammt frá landi við Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Frá vinstri til hægri Pétur Georgsson og Stefán Teitsson á Akranesi og í
bátnum situr séra Jón Einarsson í Saurbæ. MVnd- Kínar Hannevwn
Lagaákvæði um fisk-
eldi hér á landi
■ Fiskeldi hér á landi liefur
aukist mjög mikið seinustu árin,
sem kunnugt er. Þó hefur fjár-
stuðningur hins opinbera ekki
verið umtalsverður fyrr en sein-
ustu misseri. Reyndar má segja
að þetta hafi ekki gerst fyrr en
nokkrir fjársterkir aðilar höfðu
ráðist í framkvæmdir á þessu
sviði. Þannig er dæmigert, að
brautryðjendur verða að brjót-
ast áfram, án verulegs bak-
stuðnings hins opinbera í formi
góðra lána eða styrkja. Nú er
verið að stíga risaskref í fisk-
eldismálum, sem fróðlegt verð-
ur að fylgjast með á næstu
misserum, hvernig heppnast;
hversu fótfestan verður góð.
Oft hefur heyrst á seinni
tímum, að setja þurfi löggjöf
um fiskeldi hér á landi. Hljómar
þetta hjá ýmsum, eins og alls
engin ákvæði séu um fiskeldi í
íslenskum lögum. Svo er þó
ekki raunin, því að um fiskeldi
er fjallað í lögum um lax- og
silungsveiði. Landbúnaðarráð-
herra fer með þennan mála-
flokk, sem kunnugt er.
Viðurkenning
á fiskeldisstöð
í 66. grein nefndra laga er
gert ráð fyrir því, að hver sá,
sem tekur upp fiskeldi (á laxi
silungi eða ál) skuli tilkynna
veiðimálastjóra um það, og
jafnframt senda með skilríki
um landsafnot, vatnsafnot og
uppdrætti af ráðgerðum mann-
virkjum. Séu þessi plögg full-
nægjandi og fyrir liggi jákvætt
álit Náttúruverndarráðs og
Hollustunefndar, gefur veiði-
málastjóri út viðurkenningu á
fiskeldisstöðinni. Þar með öðlast
stöðin réttindi með undanþágu
innan stöðvar frá ýmsum
ákvæðum fyrrnefndra laga, er
snertir að jafnaði villtan fisk í
ám og vötnum landsins.
• Fyrrnefndur fyrirvari gagn-
vart Náttúruverndarráði og
Hollustunefnd byggist á ákvæði
laga frá 1971 um náttúruvernd
og lögum um hollustuhætti og
heilbrigðiseftirlit frá 1984. Þar
er gert ráð fyrir, í báðuni tilvik-
um, að leitað sé álits þessara
aðila, t.d. um hvert frárennsli
fer og þá hvernig það sé hreins-
að. Sömuleiðis um hugsanlega
mengun, sem gæti stafað frá
fiskeldisstöð.
Athyglisvert erþegargildandi
lög um fiskeldi, þ.c. lax- og
silungsveiðilög frá 1970 voru í
endurskoðun fyrir 1983, en frv.
var lagt frani á Alþingi 1983, að
sáralitlar efnislegar breytingar
voru geröar á kaflanum um
fiskeldi. Þar var bætt inn í
ákvæði: kvíaeldi og hafbeit. Þá
var gert ráð fyrir, að landbúnað-
arráðherra staðfesti viðurkenn-
ingu veiðimálastjóra á eldisstöð
og einnig að ráðherra væri rétt
að setja vegna staðfestingar skil-
yrði í reglugerð: í endurskoðun-
arnefnd laxveiðilaganna voru
hinir hæfustu menn í hópi al-
þingismanna, embættismanna
og hagsmunaaðila.
Frá því að greinarflokkur um
fiskeldisstöðvar í landinu birtist
hér í blaðinu í vetur, hafa
nokkrir aðilar bæst við og verða
þeir taldir hér á eftir: Fiskeldis-
félagið Strönd h.f., Akranesi,
sem er með kvíaeldi á laxi í
Hvalfirði, hjá Saurbæ. Laxeldis-
stöð, sem þeir Þorvaldur
Vestmann og Þórhallur Óskars-
son á Húsavík hafa stofnað.
íslenska fískeldisfélagið að Læk
í Ölfushreppi. Kvíaeldi á laxi
sem Gylfi Gunnarsson á Nes-
kaupstað stendur fyrir. Þá eru
fiskeldisfyrirtæki á Bakka í Ölf-
usi og í Þorlákshöfn; annarsveg-
ar er það Snorri Ólafsson á
Selfossi (á Bakka), en hinsvegar
Smári hf. í Þorlákshöfn. Og að
síðustu má nefna Silfurlax h.f.
að Núpum í Ölfushreppi og
ísþór h.f. Þorlákshöfn. Þar með
eru klakhús, cldis- og hafbeitar-
stöðvar orðnar 57 talsins.
í upphafi þessa pistils var
vikið að fjárstuð.
í upphafi þessa pistils var
vikið að fjárstuðningi hins opin-
bera, sem hefur lengst af verið
lítilL Nú hafa hins vegar orðið
umskipti í þessum efnum þar
sem nokkurt fjármagn hefur
verið tryggt til þessara hluta.
Hjá Framkvæmdasjóði og
Byggðasjóði hafa nú verið veitt
lán og lánsheimildir að fjárhæð
rúml. 92 millj. króna. Það skil-
yrði hefur verið sett fyrir lán-
unum, að eldisfyrirtækin hafi
hlotið viðurkenningu, eins og
lög gera ráð fyrir.
EH
Fóstrufélagið og 11. deild SFR:
Skora á borgar-
yfirvöld að viður-
kenna vandann
- vegna starfsmannaskortsins
á dagvistarheimilum borgarinnar
■ Starfsfólk dagvistarheimila
Reykjavíkurborgar hefur skor-
að á borgaryfirvöld að viður-
kenna vandann sem skapast hef-
ur í starfsmannahaldi dagvistar-
heimilanna og væntir þess að
tafarlaust verði skipaður hópur
allra þeirra sem málið varðar,
þ.e. Fóstrufélag íslands, For-
eldrasamtök barna á dagvistar-
heimilum borgarinnar, viðkom-
andi stéttarfélög og borgaryfir-
völd með það í huga að leiðir
finnist til úrbóta.
Stjórn Fóstrufélags íslandsog
trúnaðarmenn 11. deildar
Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar, en sú deild hefur með
dagvistarmál að gera, héldu
sameiginlegan fund á föstudag,
þaðan sem áskorun starfsfólks-
ins er runnin.
Fundurinn ályktaði ennfrem-
ur að starfsfólk dagvistarheimil-
anna hefði ítrekað bent á vand-
ann og leiðir til úrbóta en borg-
aryfirvöld hefðu ekki brugðist
við sem skyldi þó svo að ákveðn-
ar leiðréttingar hafi átt sér stað
svo sem varðandi vistunargjöld
fyrir börn starfsfólks.
^Fréttaflutningur borgaryfir-
valda og Dagvistar barna hefði
verið afar villandi og borið vitni
um að lítið mark hefði verið
tekið á aðvörunum starfsfólks
um stöðuna 1. september. Enn
væri óráðið í 30 stöður á dagvist-
arheimilunum og þótt þau væru
enn opin væri starfsfólk víða að
bjarga málunum með bráða-
birgðalausnum eins og viðgeng-
ist hefði undanfarna mánuði.
Frá
grunnskólum
Reykjavíkur
Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 5.
september nk. sem hér segir.
9. bekkur komi kl. 9.00
8. bekkur komi kl. 10.00
7. bekkur komi kl. 11.00
6. bekkur komi kl. 13.00
5. bekkur komi kl. 13.30
4. bekkur komi kl. 14.00
3. bekkur komi kl. 14.30
2. bekkur komi kl. 15.00
1. bekkur komi kl. 15.30
Fornámsnemendur í Réttarholtsskóla komi
kl. 13.00. Forskólabörn (5 og 6 ára), sem
hafa verið innrituð, verða boðuðí skólana
símleiðis.
Staða fulltrúa hjá Veðurstofu íslands er laus
til umsóknar. Góð vélritunar- og íslensku-
kunnátta nauðsynleg. Kunnátta í ensku og
einu norðurlandamáli æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 20. september 1985.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Veðurstofu íslands.
Veðurstofa íslands.
Almennir stjórnmálafundir
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Jón Kristjáns-
son alþingismaður boða til almennra funda á Fljótsdalshéraði
vikuna 8.-15. september.
Fundarefni: Landbúnaðarmál og önnur þjóðmál.
Fundirnir verða sem hér segir:
Sunnudagur8. september kl. 16.00 í Hjaltalundi.
Sunnudagur 8. september kl. 21.00 barnaskólinn Eiðum.
Mánudagur 9. september kl. 21.00 í Tungubúð.
Þriðjudagur 10. september kl. 16.00 í Hálsakoti.
Þriðjudagur 10. september kl. 21.00 á Skjöldólfsstöðum.
Fimmtudagur 12. september kl. 21.00 á Iðavöllum.
Föstudagur 13. september kl. 16.00 í Végarði.
Föstudagur 13. september kl. 21.00 á Rauðalæk.
Laugardagur 14. september kl. 16.00 á Arnhólsstöðum.
Einnig verður fundur á Borgarfirði eystra föstudaginn 6.
september kl. 21.00 og á Vopnafirði sunnudaginn 15.
september kl. 21.00.
Fundarefni: Sjávarútvegur og landbúnaðarmál og önnur
þjóðmál.
Laus staða
Við embætti bæjarfógetans í Ólafsfirði, erfrá
1. janúar 1986 laus staða lögregluþjóns.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 25. sept-
ember n.k. á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum.
Bæjarfógetinn í Ólafsfirði,
3. september 1985,
Barði Þórhallsson.