NT - 18.09.1985, Page 3
Starfsmenn skattaeftirl itsins:
Heimsækja um 400fyrir-
tæki á næstu 2 vikum
■ Rúmlega 400 fyrirtæki úr 27 at-
vinnugreinum, sem eiga mikil við-
skipti við almenna neytendur og eru
skyldug til að gefa út reikninga í þeim
viðskiptum, eiga næstu tvær vikurnar
von á heimsókn starfsmanna skatta-
eftirlitsins sem hyggjast líta á bók-
haldið hjá þeim. Fyrst og fremst er
ætlunin að kanna hvort fyrirtækin
hafa farið eftir þeim reglum sem gilda
um skyldu fyrirtækjanna að skrá við-
skiptin á nótur, reikninga og önnur
gögn. En sem kunnugt er hefur
fjármálaráðuneytið að undanförnu
rekið mikinn áróður fyrir því að
almenningur biðji um nótur og reikn-
inga í samskiptum við fyrirtæki, og er
könnun þessi gerð í framhaldi af
þeirri herferð, að sögn Garðars
Valdimarssonar, skattrannsóknar-
stjóra.
Skattrannsóknarstjóri kvaðst m.a.
vænta þess að þessi víðtæka könnun
muni hafa almenna varnaðaráhrif -
ekki bara í þeim greinum sem nú
verða athugaðar heldur og öðrum
atvinnugreinum. Hann taldi að út-
koman úr þessari könnun myndi m.a.
gefa vísbendingu um heildarstöðu
þeirra greina sem athugaðar verða og
í framhaldi af því hvort ástæða væri
til að skoða bókhald einhverra þeirra
með sérstakri athygli á hverju ári.
Komi fyrirtæki illa út mega þau síðan
eiga von á víðtækari rannsókn síðar.
Spurður hvort hann teldi mikil
brögð að því að nótur væru ekki
gefnar og söluskatti stolið undan
sagði Garðar að sjálfsagt könnuðust
t.d. flestir húsbyggjendur og fleiri við
tregðu manna og fyrirtækja á að gefa
nótur í viðskiptum. „Söluskatturinn
er orðinn mjög hár - hættulega hár að
okkar áliti - og því mikil freisting
fyrir menn að sleppa við greiðslu
hanst'
Hin 400 fyrirtæki sem skoða á eru
valin úr rúmlega 3.700 sem starfandi
eru í umræddum atvinnugreinum í
Reykjavík, Reykjanesi og Norður-
landsumdæmi eystra - allt frá þeirn
allra smæstu til hinna stærstu. Af
fyrirtækjum sem von eiga á heimsókn
eru flest eða 66 sem veita ýmisskonar
tæknilega þjónustu, 57 út hópi verk-
taka og 56 í húsasmíði. Þær 27
atvinnugreinar sem hér um ræðir eru
m.a. allar iðngreinar. Af öðrum má
nefna: Ferðaskrifstofur, tannlækna,
lögfræðinga og fasteignasala, bók-
hald og endurskoðun, innheimtu-
starfsemi, Ijósmyndastofur og heilsu-
ræktarstarfsemi.
■ Fjórir voru fluttir á slvsadeild eftir harðan árekstur sem varð á Kópavogsbrúnni ■ gærdag laust eftir hádegi.
Meiðsli fólksins töldust ekki alvarleg, og fengu allir að fara heim eftir skoðun. Eins og myndin ber með sér, eru
báðir bflarnir mikið skemmdir. NT-mynd: Ámi Bjama
■ Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri, og Skúli Eggert Ólafsson,
deildarstjóri hjá skattaeftirlitinu, en starfsmönnum þess hefur á tveim árum
verið fjölgað Úr 18 í 27. NT-mynd: Róberl
Miðvikudagur 18. september 1985
Til FISKVERKENDA og
ÚTGERÐARMANNA
Höfum áhuga á kaupum á öllum
rauösprettuflökum sem þér getið framleitt,
dökka hliðin af. Einnig smáþorski,
heilfrystum, slægðum með haus á.
Sendist vikulega með íslenskum skipum
til Bandaríkja N-Ameríku (Austurströnd)
Vinsamlega tjáið oss
hve mikið magn er hægt að fá
ÓLAFUR JOHNSON
40 WALL STREET, SUITE 2124
SÍMI: 212 344 6676, 718 622 0615
TELEX: 4945457
Raufarhöfn:
Lenti í
hakkavél
■ Tvö vinnuslys urðu á Raufarhöfn
í gær. Fyrra slysið varð snemma um
morguninn. Maður sem var einn við
vinnu sína í fóðurverksmiðjunni Æti
fél! niður um rist á gólfi, og lenti með
annan fótinn í hakkavél. Honum
tókst að ná í neyðarrofa, og stöðva
hakkavélina. Maðurinn var fluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri. Ekki var
vitað fullkomlega hversu alvarleg
meðsli hann hlaut.
Háseti á Skarðsvík frá Hellissandi
handleggsbrotnaði í gær, þegar verið
var að landa loðnu úr skipinu á
Raufarhöfn. Hásetinn ætlaði að
húkka vír í lestarhlera, en gætti ekki
að sér, og varð á milli með hendina,
þegar krani kom á fullri ferð.Hann
verður sendur meö flugi til síns
heima.
Það er fleira að frétta frá Raufar-
höfn. Smygl fannst um borð í flutn-
ingaskipinu Valur sem kom til Rauf-
arhafnar á mánudag. 372 flöskur af
vodka fundust og 12 kassar af bjór.
Þá fundust þrjú myndsegulbandstæki.
Fimm skipverjar af sjö hafa játað á
sig smyglið. Skipið var að koma frá
Hollandi og Frakklandi.
Ballingslöv -
sænskar gæðavörur
Afsláttur 10% - 30%
Afhent samsett - þarf bara
að hengja upp
Góð greiðslukjör.
Seljum einnig nokkrar, lítið
gallaðar baðinnréttingar með
50% afslætti.
VATNSVIRKINN/J
ÁRMÚLI 21 — PÓSTHÓLF 8620 — 128 REYKJAVlK
SlMIAR: VERSLUN: 686455, SKRIFSTOFA: 685966
SOLUM: 686491