NT - 18.09.1985, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 18. september 1985
12
Kúabændur á Suðurlandi með NT til varnarliðsins:
íslenskt nautakjöt
ódýrara en amerískt?
Félag kúabænda á Suðurlandi kynnti sér samkeppnisstöðu íslenska nautakjötsins
vegna hugsanlegrar sölu til varnarliðsins
■ Hluti af kjötinu er geymdur í frystigeymslum. Hér skoða
Commdr. Otts, birgða- og innkaupastjóri, Guðmundur Lárusson
og Hannes Guðmundsson, sendifulltrúi frá varnamálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, birgðir.
■ „Þetta lítur miklu betur út,
en við héldum. Fáist tilskilin
leyfi er ekkert því til fyrirstöðu,
að íslenskir bændur geti séð
heimilum og mötuneytum á
Keflavíkurflugvelli fyrir nauta-
kjöti," sagði Guðmundur
Lárusson, formaður Félags kú-
abænda á Suðurlandi. Hann og
Bergur Pálsson, bóndi í Hólma-
hjáleigu og stjórnarformaður í
félaginu, heimsóttu varnarsvæð-
ið á Keflavíkurflugvelli í gær,
ræddu við innkaupastjóra og
kjöteftirlitsmann varnarliðsins
og skoðuðu geymslur og kjör-
búð vurnarliðsins. Með í för-
inni voru þeir Hannes Guð-
mundsson, sendifulltrúi og
Helgi Pétursson, ritstjóri NT,
en þeir höfðu milligöngu um að
koma á fundi með kjötfram-
leiðendumogfulllrúum varnar-
liðsins.
Nautakjötsneysla
minnkað
Á fundi með Commdr. Otts
birgðastjóra og Christiansen
kjöteftirlitsmanni voru rakin
helstu atriði varðandi kjötinn-
flutning varnarliðsins hingað til
lands. Neysla á nautakjöti hefur
dregist örlítið saman frá því í
fyrra, eða um sjö prósent í rétt
rúmar tvö hundruð lestir. Um
það bil helmingur af kjötinu er
íluttur inn verkaður og pakkaður í
neytendaumbúðir fyrir mötu-
neyti og einstaklinga og þá
fryst . Þetta kjöt var flutt með
skipum. Helmingur af kjötinu
er flutt inn kælt í heilum og
hálfum skrokkum með flugi á
hverjum fimmtudegi og hefur
svo verið um langa hríð.
Það er þetta kjöt, scm ís-
lenskir bændur gætu að líkind-
um séð varnarliðinu fyrir, því á
■ Mjólkurvörur hafa verið seldar á Keflavikurflugvelli lengi. Mikil eftirspurn er eftir íslenskri jógurt og ostum. í verslun varnarliðsins
hefur verið komið fyrir stóru skilti þar sem áletranir eru þýddar á ensku.
gera,“ sagði Bergur Pálsson eftir
fundinn. Hann sagði, að um tólf
hundruð dýr þyrfti til þess að
fullnægja eftirspurn varnarliðs-
ins og það væri framleiðsla frá
um tólf til þrettán meðalbúum.
Þá sýndist sér í fljótu bragði um
270 dagsverk skapast einungis
við slátrunina.
Fyrir utan nægilegt framboð
af íslensku nautakjöti og nokkr-
ar birgðir í frystigeymslu, hefur
það mikið að segja.að nú eru tvö
hraðvirk sláturhús starfrækt á
Suðurlandi, á Selfossi og á
Hvolsvelli. Fram kom hjá þeim
Guðmundi og Bergi, að slátur-
húsin verða starfrækt alla virka
daga árið um kring og því hægt
að tryggja framboð af nýslátr-
uðu allt árið.
Áhugihjá vamarliðinu
Christiansen, kjöteftirlits-
’allt því ungneyti og engar kýr
vildu menn éta.
Þá þyrftu sláturhúsin þegar
að fara fram á viðurkenningu
eftirlitsmanna hersins fyrir nýju
sláturhúsin vegna nautakjöts-
framleiðslunnar, en eins og
kunnugt er, hafa slík leyfi verið
veitt vegna lambakjötsins og
fisksölu í verslanir varnarliðs-
ins.
Sala á lambakjöti í verslun
varnarliðsins og í mötuneytum
hefur aukist frá 4,5 lestum í
fyrra í um ellefu lestir í ár og
Varnarmáladeild Utanríkis-
ráðuneytisins hefur unnið mikið
að því að auka sölu á landbún-
aðarvörum til varnarliðsins.
Ljóst er, að verðþróun á nauta-
kjöti veldur því, að það ætti að
þykja hagstætt fyrir innkaupa-
deild varnarliðsinsogkomfram
mikill áhugi þeirra manna á því
að kanna þetta mál til hlftar.
■ Christiansen, kjöteftirlitsmaður, Guðmundur Lárusson og
Bergur Pálsson, fylgjast með kjötskurði á amerísku nautakjöti.
fundinum komu fjölmargar at-
hyglisverðar tölur fram.
íslensk framleiðsla
samkeppnisfær
Meginniðurstaðan er sú, að
varnarliðið greiðir um sjö doll-
ara fyrir kílóið af amerísku
nautakjöti í gæðaflokki hingað
komið og er flutningskostnaður
þá innifalinn. Það svarar til um
294 krónum. Heildsöluverð á
nautakjöti í gæðaflokki á kílóið
frá Sláturfélagi Suðurlands er
189 krónur og er þeir Bergur og
Guðmundur upplýstu þetta á
fundinum kom það flatt upp á
fulltrúa varnarliðsins. Rétt er
að taka fram að hér er um
gamalt verð að ræða, og má
búast við einhverri hækkun á
innlendum markaði þegar bú-
vöruverð verður ákveðið.
Hins vegarer Ijóst, að íslensk
framleiðsla á nautakjöti virðist
á þessu sviði vera samkeppnis-
fær við þá amerísku.
Eftir er að reikna hugsanleg-
an llutningskostnað suður til
Keflavíkur af Suðurlandi og
eins myndi einhver kostnaður
bætast á vegna pökkunar.
„Það er óhætt að segja það,
— .............. go. «... ...u
girnilegar steikur, sem þeir Bergur og Guðmundur töldu sjálfsagt,
að íslenskir bændur gætu framleitt.
að við munum kanna þetta mál
mjög vandlega og gera ráðstaf-
anir til þess að fá í hendur allar
upplýsingar um staðla og aðrar
kröfur, sem Bandaríkjamenn
maður sagði að meginkrafan
sem gerð væri til gæða kjötsins
frá Bandaríkjunum, væri að
dýrin væru ekki eldri en þriggja
vetra þegar þeim væri slátrað,