NT


NT - 18.09.1985, Side 4

NT - 18.09.1985, Side 4
r~- Miðvikudagur 18. september 1985 4 Norræna Ijóðlistarhátíðin: Hátíðin haldin annað hvert ár - og alltaf á íslandi ■ Framkvæmdanefnd Norrænu ljóðlistarhátíðarinnar og þátttakend- ur á hátíðinni sem stóð yfir í Norræna húsinu í síðustu viku hafa ákveðið að stefna að því að Norræna Ijóðlistar- hátíðin verði að föstum viðburði, og haldin annað hvert ár á íslandi. Einnig ákváðu þeir að fara þess á leit við Norðurlandaráð að hátíðin fengi fasta fjárveitingu á fjárlögum ráðsins. Knut Ödegard framkvæmdastjóri ljóðlistarhátíðarinnar sagði á fundi með fréttamönnum að þeir hefðu líka rætt vanda sovésku Tarkowskyhjón- anna og ákveðið að árita mótmæla- og bænaskjal þar sem þess yrði farið á leit við sovésk yfirvöld að hjónin fengju son sinn til sín frá Sovétríkjun- um. Öll skáldin sem til máls tóku á fundinum þökkuðu framkvæmda- nefndinni fyrir störf sín og ítalska skáldið Mimmo Morina sem er heims- forseti Alþjóðasamtaka skáldanna sagði frá heimsþingi skálda sem hald- ið veðrur á Corfu á Grikklandi um næstu mánaðamót. ■ Austur á Norðfirði var véibundið hey sett í stóra svarta plastpoka til geymslu og til hvers gæti einhver spurt? Jú, bóndinn á Skálateigi, Leifur Jónsson,sagði að með því kæmi mikið betra hey vegna þess að það er sett hálfþurrt í pokana og síðan er bundið fyrir. Þannig eru pokarnir geymdir þar til að gjöf kemur og sagði Leifur að kýrnar lítu ekki við öðru. Leifur sagði að vísu að þetta væri dálítið seinleg vinna því þetta er gert með handafli. Hann sagði að ekki væri hægt að taka mikið fyrir í einu, 3^t menn önnuðu að setja í poka yfir 3-400 bagga á dag. Leifur sagðist hafa prófað þetta lítillega í fyrra og aðeins einn annar bóndi hafi verið með þessa vinnslu þar í sveit. Aðeins lítill hluti heysins er verkað- ur á þennan hátt og annað hey er bundið í venjulega bagga. Leifur sagðist ekki vera viss hvort þeir yrðu áfram með þessa verkun, þó þeir væru mjög ánægðir með hana. „Við ætlum að reyna að komast yfir rúllubindivél fyrir næstu hey- skapartíð. Það er miklu meiri tækni,“ sagði Leifur að lokum. ■ Nokkrir þátttakenda og aðstandenda á fundi með fréttamönnum. Frá vinstri: Östen Sjöstrand, Thor Vilhjálmsson, Mimmo Morina, James Tate, Justo Jorge Padrón og Knut Ödegard. Nær 100 tonn af fiski á hverja vísitölufjölskyldu í Eyjum: Nær helmings aflasam- dráttur í Hafnarfirði ■ Nærri helmingi minni botnfiskafli hefur borist á land í Hafnarfirði það sem af er þessu ári en í fyrra, eða 9.933 tonn nú á móti 17.083 tonnum á sama tíma 1984. í Reykjavík er samdráttur um rúmlega 2 þús. tonn á sama tíma, samkvæmt tölum Fiskifé- lagsins. Þótt botnfiskafli sem landað hefur verið hér á landi það sem af er árinu sé mjög svipaður og á sama tíma 1984, eða rúm 412 þús. tonn á móti rúmlega 403 þús. tonnum í fyrra kemur fram umtalsverður munur í einstökum verstöðvum á landinu. Lang mest hefur aukningin verið á Hólmavík, úr 124 þús tonnum í 2.170 tonn nú. Af öðrum stöðum þar sem aflaaukning milli ára hefur verið yfir fjórðung má nefna: Árskógsströnd 2.365 tonn 108% aukning, Siglufjörð- ur 9.365 tonn 68% aukning, Höfn 12.123 tonn 37% aukning, Grímsey 1.646 tonn 35% aukning, Bakka- fjörður 1.528 tonn 32% aukning, Dalvík 9.332 tonn 28% aukning, Neskaupstaður 9.408 tonn og Rif 7.994 tonn, um 27% aukning á hvor- um stað. Vegna mikilla umræðna um atvinnuleysi á Ólafsfirði að undan- förnu og framundan má geta þess að botnfiskafli sem borist hefur á land þar nú er 7.532 tonn sem er 766 tonnum minna en í fyrra. Vestmannaeyjar halda örugglega sínu sæti sem lang stærsta verstöð landsins með um 37.400 tonna botn- fiskafla í ágústlok, eða rúmlega 9% botnfiskaflans. Að viðbættum uni 68 þús. tonnum af loðnu höfðu í ágústlok borist þangað samtals urn 105.480 tonn af fiski sem er rúmlega 8. hluti alls afla sem borist hefur á land á árinu og um 22 tonn á hvern íbúa eyjanna, það sem af er þessu ári. Með sama skammti á hvern íslending ætti heildaraflinn í ár að vera orðinn um 5,3 milljónir tonna, í stað 832 tonna eins og hann er. Aðrar verstöðvar með yfir 10 þús. tonna botnfiskafla í ár eru: Reykjavík um 29.100, Þorlákshöfn um 26.300, Grindavík um 23.400, Keflavík um 20.700 (erlendis 20.600), Sandgerði 20.500, Akureyri 18.300, ísafjörður 14.700, Ólafsvík 14.500, Akranes 12.600 og Hornafjörður með 12.200 tonn mánuðina janúar til ágúst í ár. Hvað loðnuveiði snertir er Seyðis- fjörður næst á eftir Vestmannaeyjum með um 51.200 tonn, Eskifjörður um 44 þús. tonn, (erlendis 37 þús. tonn), Raufarhöfn 32.200 tonn, Neskaup- staður 29.700 tonn og Siglufjörður 21.300 tonna loðnuafla. En alls höfðu veiðst tæp 375 tonn af loðnu í lok ágúst. VERÐ Á ÓSVIKNUM FRÖKKUM HEFUR ALDREI VERIÐ HAGSTÆDARA X 3 £ Citroén Axel árgerð '86 kostar nú aðeins 285.000,- kr. Það er afar hagstættverðfyrirjafn góðan bíl. Frá því að Axel var kynntur í sumar hefur jafnt og þétt komið í Ijós hvílíkur kostagripur hann er. Framhjóladrifið skiiar honum yfir erfiða hjalla og sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólunri skapar þægindi í akstri. Axel er sterkbyggður og öruggur fararskjóti í umferðinni, IG/obusa SÍMI81555 sætin eru sérstaklega þægileg og útsýni úr bílnum er gott. Þú gerir varla betri bílakaup. 285.000,- kr. fyrir ósvikinn Citroén - ryðvarinn, skráðan og með fullan bensíntank. Einnig er mögulegtaðfá 35% af kaupverði lánað í allt að átta mánuði. Japanskur útsaumur kenndur ■ Hannyrða-oglistakonanToshiko Hayashi frá Japan ferðast nú um landið til að sýna og kenna nýstárleg- an útsaum sem á japönsku hetir „Bunka-shishu“. Aðferðinni við sauminn er í fáum orðum lýst þannig, að efnið senr saumað er í er fyrst strekkt á ramma. Ahaldið sem saum- ar er með er nál með holu skafti og er ísaumsþráðurinn - sem er fínn og teygjanlegur - þræddur í gegn um nálina. Þegar saumað er, er haldið á nálinni svipað og penna og hefur saumurinn þessvega hlotið nafnið pennasaumur á íslensku. Frú Hayashi hefur þegar sýnt pennasauminn í Bolungarvík og á Akureyri. í dag, miðvikudag, verður hún á Húsavík, fimmtudag á Egils- stöðum og föstudag á Höfn. Nk. mánudag og þriðjudag verður kynn- ingin í hannyrðaversluninni Stramma í Reykjavík, en næstu þrjá daga þar á eftir í hannyrðaverslunum: á Sel- fossi, Borgarnesi og Keflavík.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.