NT

Ulloq

NT - 21.09.1985, Qupperneq 8

NT - 21.09.1985, Qupperneq 8
21. september 1985 Harðviðarval í nýju húsnæði ■ Nýlega flutti Harðviðarval hf. í nýtt og glæsilegt húsnæði að Krók- hálsi 4. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í innflutningi á innanhúss gólf-, loft- og veggklæðningum og hin nýja verslun mun nú verða sú stærsta sinnar teg- undar hér á landi. Gottskálk Eggertsson, forstjóri fyrirtækisins hefur haft á höndum innflutning á tréinnréttingum í ein 22 ár og við hlið hans í rekstri verslunar- innar standa kona hans og sonur, þau Guðrún Einarsdóttir og Einar Gott- skálksson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Smekklegur frágangur Nýja verslunarhúsnæðiö er um 1000 fermctrar að grunnfleti. 'Auk sýningarsals eru þar skrifstofur og lager, en önnur hæð er í byggingu og áætlað er að flytja skrifstofurnar þangað síðar. Að sögn Guðrúnar Einarsdóttur, sem sýndi blaðamanni húsnæðið og vöruúrvalið, var verslun- in hreinlega búin að sprengja utan af sér gamla húsnæðið að Skemmuvegi 40. - Allur frágangur á nýja húsnæð- inu hefur heppnast mjög vel. Það sem kannski er mest um vert er að vörur eins og panell og parket og innihurðir hafa verið sett upp í fleti. Fetta auðveldar fólki mjög að skoða útlit vörunnar og bera saman við aðrar, í stað þess að sýnd væri ein og ein spýta. Geysimikið úrval cr af innréttingar- efni í versluninni og ber þar hæst vörur frá þrem stærstu innréttinga- fyrirtækjum Svíþjóðar, það er Jabo, Tarkett parket og Svenska Dörr. Hvíta línan Guðrún segir að hvíti liturinn verði nú sífellt vinsælli. í vcrsluninni fást fjórtán gerðir af panel frá Jabu, bæði, innan- og utanhússpanell. Til dæmis er það gamli kúlupanellinn, en hann hurðarhúna velur fólk sjálft. Hvít, slétt hurð kostar um 4.700 krónur, en fulningahurðirnar eru dýrari. Pæreru með ýnisu lagi þar á meðal bogafuln- ingum. í furu er hægt að velja um þrjár tegundir og svo kvistalausa og kvistótta furu. Hurðirnar koma frá fyrirtækinu Svenska Dörr og þær er einnig hægt að sérpanta. Þá má nefna marmara í hvítu línunni ásamt öðrum áferðum. Úrval er af límtré bæði úr beiki og furu í þykktum frá 18mm upp í 40 mm. Ótal gerðir af listum, hornlistum, kverk- listum. kíllistum og hvað annað sem nefna má, er einnig til sýnis og sölu í versluninni. Þetta er heppilegt þar sem listar koma alltaf tii með að fylgja bæði panel og parketi. Listarnir eru dönsk gæðavara. Lengi mætti enn telja upp það sem sjá má í versluninni en lýsingu skal hér lokið, fólk er heldur livatt til að koma og skoða sjálft. Tískusveiflur Harðviðarval fylgist náið með öll- um þeim breytingum sem verða á tískunni í tréinnréttingum. Farið er út minnst fjórum sinnum á ári og þá á stærstu byggingavörusýningarnar sern haldnar eru í Brússel, París og Kaupmannahöfn. Að sögn Guðrúnar breytist tískan í þessum efnum svo að segja jafn hratt og fatatískan. Hvíta línan er nú vinsæl og frændur okkar á Norðurlöndum mjög léttir og Ijósir um þessar mundir. Vestanhafs ber einnig á þessu, sem dæmi um það hefur ljósa parketið Norðureik orðið geysivinsælt þar. Unga fólkið í dag hefur mjög ákveðnar skoðanir á hvað það vill hafa í híbýlum sínum og fylgist vel með. Guðrún segir að það kaupi helst nýjustu línurnar í stað þess að kaupa eitthvað ódýrara, það bíður þá bara með að kaupa þar til það hefur efni á. leitt 1100-1300 krónurfermetrinn. Þó er þar ljóst birki á kynningarverði, tæpar 900 krónur. - Þá er það Tark- wood-klub í litlum bútum eða flísum, sérstaklega styrkt og ætlað á staði þar sem mikið mæðir á, svo sem hol og eldhús. í gólfefnununt eru ótaldar kork- flísarnar, en af þeim fást þrjár gerðir. Þær eru franskar en unnar í Portúgal þannig að þær eru tiltölulega ódýrar. ■ Hin nýja verslun er að Krókhálsi 4 í Árbæjarhverfinu. Fleira í hvítu línunni Hvíta línan í hurðum er rnjög áberandi í Harðviðarvali. Á boðstól- um eru einar fjórar gerðir af hvítum hurðurn, sléttum og með fulningum. Hurðirnar eru seldar með öllum búnaði, körmum og gereftum, en fæst einnig í hvítu línunni, hvítmálað- ur. Þá er þar panell brenndur og burstaður. Állur þessi panell er full- pússaður, og endanlega þurrkaður. Verðið á panelnum er yfirleitt tæpar 400 krónur fermetrinn. Einnig er á boðstólum franskur panell í hnotu, eik og hvítur. Þetta er lúxus-panell og seldur fulllakkaður. Verksmiðjan hefur framleitt parket í stíl við hvíta panelinn, nefnist það Norðureik og er með hvítum blæ. Alls eru fjórtán tegundir af parketi í versluninni, allar frá Tarkett-parket. Á því er ný gerð af lakki sem framleiðsla var hafin á í fyrra. Lakkið er eldbrennt inn í parketið og talið um þrisvar sinnum sterkara en önnur lökk. Áferðin á því er eins og örlítið hömruð eða mött, ástæðan er að það hefur verið styrkt sérstaklega með burstun. Verðið á parketinu er yfir- ■ Gottskálk Eggertsson, forstjóri og Kristinn Sigurðsson, sölustjóri í verslun- inni. NT-myndir: Róbcrt.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.