NT - 19.10.1985, Blaðsíða 5
■ Valdemar Bjarnason, í miðjunni, ásamt starfsfélögum.
Meistarakokkur
eldar á Krákunni
■ Um helgina mun frægur mat-
reiðslumeistari, Valdimar Bjarna-
son, sjá um matreiðslu á veitinga-
húsinu Krákunni Laugavegi 22
hér í borg.
Valdimar starfar víðs vegar um
heiminn, m.a. á St. Francis hóteli
í San Franscisco og í Pcrigord í
Frakklandi en þaðan kemur fræg-
asta gæsalifur veraldar og hinir
frægu jarðsveppir eru ræktaðir
þar. Valdimar hefur einnig verið
einkakokkur ýmissa frægra
manna, m.a. nefna William Mill-
ard 3. ríksta manns heims sem
eignar sér 12 auðhringi-og Julio
Gallo stærsta vínframleiðanda
heims.
Valdimar hefur einnig matreitt
fyrir heldra fólk heimsins við hin
ýmsu tilefni s.s. á 25 ára brúð-
kaupsafmæli Ronalds Reagans og
frú Elísabetu Englandsdrottningu
er hún heimsótti San Francisco og
nú ætlar Valdimar að leyfa íslend-
ingum að smakka á hinum ýmsu
réttum sínum og mun matreiða á
laugardags- og sunnudagskvöld á
veitingahúsinu Krákunni.
Fiskvinnslufólk í Vestmannaeyjum:
Bíður eftir síldinni
Atvinnuástand gott á Suðurlandi
■ Fiskvinnslufólk í Vest-
mannaeyjum bíður nú í ofvæni
eftir síldinni - sem spakir menn
þar spá að komi nú um hclgina.
Hjól atvinnulífsins í Eyjum
komast þá væntanlega aftur í
fullan gang, eða rncira en það,
eftir hálfgerðan doða að undan-
förnu. Að sögn Jóhönnu Frið-
riksdóttur form. Snótar hefur
gætt óánægju meðal fiskverkun-
arfólks, sérstaklega þó kvenna,
með það að miklu af bátafiskin-
um og nokkru af tögaraaflanum
líka hefur að undanförnu verið
landað beint í gáma á Englands-
markað - á sama tíma og þær
konur sem ckki eru með kaup-
tryggingarsamning hafa aðeins
liaft 2-3 daga vinnu í viku að
undanförnu.
Uppi á fastalandinu - Suður-
landi - er hins vegar mikið að
gera hjá verkafólki í sláturtíð-
inni. Pótt virkjanavinnu sé nú
ekki lengur til að dreifa sagði
Siguður Óskarsson hjá Rang-
æingi ekki hafa verið mikið um
atvinnuleysi í Rangárþingi í
sumar. Enda hafi töluvert af.því
fólki sem þar vann nú flutt
suður- fylgt verktökunum sem
þ'að vann hjá inni á hálendinu -
og svo sé einnig unt marga
byggingarmenn. Pað sé heldur
ekki svo merkilegt að fólk fari
þar sem kaup í flestum störfum
sé um 60-100% hærra á Reykja-
víkursvæðinu en þar eystra.
Atvinnulcga kvaðst Sigurður
ekki kvíða vetrinum - iniklu
fremur afkomunni. „Pað er
mjög erfitt fyrir fjölskyldufólk
að lifa af um 30 þús. kr. á
niánuði. Þess vcgna skil ég ekki
harmagrátinn yfir þessurn 3%
hans Alberts, síst þó frá verka-
lýðsforingjum"
Á síðustu um 15 „virkjanaár-
um" sagði Sigðurður jafnframt
hafa komið til nýjar atvinnu-
greinar í smáiðnaði og ýmiss-
konar þjónustu sern nú veiti
orðið talsvert á þriðja hundrað
manns atvinnu þar eystra. Mest
nutni þar um prjóna- og sauma-
stofurnar sem nú.hafi um 90
manns í vinnu.
Fléstir nóg að gera
á Selfossi
Á Selfossi, þar sem nokkurt
atvinnuleysi hcfur verið að
undanförnu er ástandið riú stór-
um betra aö sögn Hafsteins
Stefánssonar hjá Verkalýðsfé-
laginu Þór. Pó sláturtíðín sé
langt komin ntuni margir sem
nú vinna í sláturhúsinu halda
þar áfram störfum í garna-
hreinsuninni, sern hins vegar
var ekki starfrækt s.l. sumar.
Einnig varð mikil breyting hjá
ræstingakonunum þegar
skólarnir byrjuðu á ný.
Brilljantín og orðabækur
Úr Þorlákshöfn fréttist að þar
sé nú svo mikið að gera að þeir
hafi ekki séð sér annað fært en
fá nokkrar atvinnulausar bresk-
ar bónusdrottningar til aðstoðar
í fiskvinnsluna . Pað hefur svo
aftur haft þær afleiðingar að
sala á brilljantíni og öðrum
herrasnyrtivörum og íslensk-
enskum orðabókum hefur stór-
aukist á staðnum, aö því er fram
kemur í 11. tölublaði Fréttamol-
ans.
Róm hefur verið kölluð
vagga vestrænnar menning-
ar og ekki að ástæðulausu
því þar talar sagan til þín á
hverju götuhorni, í formi stór-
brotinna listaverka og mánn-
virkja sem enn í dag vekja
furðu og aðdáun sökum feg-
urðar og hagleiks.
Það fylgja því einstök
hughrif að ganga um Forum
Romanum, sem á sínum
tíma var miðdepill heims-
veldisins, um Coloseum, þar
sem tugþúsundir féllu í val-
inn í ógurlegum hildarleik-
um, um Sistinsku kapelluna
þar sem meistaraverk Michel-
angelos skrýða loft og veggi
og um Péturskirkjuna, að
grafhýsi postulans. Hundruð
fleiri staða mætti nefna því
Róm er nánast samansafn af
sögulegum dýrgripum og
mestu listaverkum mann-
heima.
En Róm hefur líka á sér
léttan blæ og pótt ekki fylgi
allir ferðamenn því fordæmi
Anitu Ekberg að dansa í
Trevi brunnunum þá er höf-
ugt næturlíf Rómarborgar
lífsreynsla sem aldrei gleym-
ist.
ítalskur fatnaður hefur
löngum þótt fádæma glæsi-
legur tíg farþegar Arnarflugs
fá afhent sérstök verslunar-
kort sem veita afslátt í fjölda
verslana í Róm.
Borgin eilífa er nú innan
seilingar fyrir íslendinga eftir
samning sem Arnarflug hefur
gert við ítalska flugfélagið
Alitalfa. Flogið er með Arn-
arflugi til Amsterdam og það-
an áfram til Rómar með Al-
italia.
í Róm er gist á fyrsta flokks
hótelum sem flest eru 4 eða
5 stjörnu. Fyrir þá sem vilja
enn ódýrari ferð eru fjögur 3
sýörnu hótel, sem þó eru vel
búin. Ef menn vilja ferðast
um landið, í norðurátt, er
líka hægt að fljúga til Amster-
dam frá Mílanó.
Það er nokkuð víst að ís-
lendingar komast ekki til
Rómar á hagkvæmari hátt en
með Arnarflugi og Alitalia.
Nánari upplýsingar hjá ferða-
skrifstofunum og á söluskrif-
stofu Arnarflugs.
^&ARNARFLUG
Lágmúla 7, slmi 84477