NT - 19.10.1985, Page 23
Uppskeruhátíð Hattar
■ Höttur hélt uppskeruhátíd
yngri flokka fyrir nokkrum
dögum. Á knattspyrnuhátíðinni
voru afhent verðlaun fyrir besta
ástundun/framfarir og einnig
fékk efnilegasti leikmaður hvers
flokks verðlaun.
Á myndinni eru piltarnir sem
hlutu viðurkenningu frá tann-
læknastofunni á Egilsstöðum.
Aftari röð frá vinstri: Ragnar
Steinarsson tannlæknir, Jóna-
tan Vilhjálmsson (4.fl.), Kári
Hrafnkelsson (4. fl.), Hilmar
Gunnlaugsson (3.fl.), Magnús
Jónasson (3. fl.) og Víðir
Guðmundsson formaður knatt-
spyrnudeildar. Fremri röð frá
vinstri: Eysteinn Hauksson
(5.fl.) Sigmar Vilhjálmsson (6.
fl.) og Elvar Ingason (5. fl.). Á
myndina vantar Kristján Jóns-
son (5.fl.).
Að verðlaunaafhendingu lok-
inni voru snæddar glæsilegar
tertur sem bakaðar voru af for-
eldrum leikmanna og drukkið
mikið af gosdrykkjum. Síðan
þegar allir voru orðnir mettir
var sest/lagst fyrir framan videó
og horft á knattspyrnuskóla
KSÍ:
S.l. sumar sigraði Höttur í 3.,
4. og 5. flokki í Austurlandsriðli
íslandsmótsins og varð Austur-
landsmeistari í sömu flokkum.
Höttur hefur ráðið Emil
Björnsson s'em þjálfara fyrir
meistaraflokk og 2. flokk næsta
keppnistímabil en félagið er um
þessar mundir að leita sér að
þjálfurum fyrir yngri flokka
félagsins.
Handknattleikur:
íslendingar sigruðu
- Lemgo auðveldlega með 26 mörkum gegn 16 - Páll skoraði 11
Frá Guftmundi Karlssyni fréttaritara
NT í V-Þýskalandi:
■ íslenska landsliðið vann
Zico skorinn?
■ Brasilíski knatt-
spyrnusnillingurinn Zico
gæti þurft að gangast
undir skurðaðgerð vegna
hnémeiðsla sem hann
hlaut fyrir mánuði. Þetta
var haft eftir lækni Flam-
engo, liðsins sem Zico
leikur með, í gærdag.
Læknirirnn, Celio Cot-
ecchia, sagði í sjón-
varpsviðtali að Zico
hefði verið skoðaður í
Bandaríkjunum fyrr í
þessari viku og myndi
einnig vera rannsakaður í
Ríó De Janeiro í næstu
viku.
„Eg tel persónulega að
uppskurður sé óhjá-
kvæmilegur,“ sagði
læknirinn í áðurnefndu
viðtali.
auðveldan sigur á Lemgo, liði
Sigurðar Sveinssonar, en leikið
var í Lemgo fyrir framan 1600
áhorfendur sem voru vel með á
nótunum. Leikurinn fór 26-16
eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 14-10 okkar mönnum í
hag. íslendingar voru mun
sterkari, komust fljótlega í 5-2
og slepptu ekki forystunni eftir
það.
í þessum leik var mikið gert
af því að prófa yngri leikmenn-
ina og stóðu þeir sig með ágæt-
■ Alsír og Marokkó tryggðu
sér í gær sæti í úslitum Heims-
meistarakeppninnar sem fram
fara í Mexíkó næsta ár.
Alsír sigraði Túnisbúa örugg-
lega 3-0 en þetta var síðari
viðureign þjóðanna. Hina fyrri
um, sérstaklega Júlíus Jónasson
sem skoraði 5 mörk'. Páll Ólafs-
son var annars markahæstur
með 11 mörk, þar af 6 úr vítum.
Þorgils Óttar gerði 5 stykki.
Brynjar og Kristján skiptust á í
markinu og vörðu báðir með
ágætum. Erfitt var að hefja
síðari hálfleikinn þar sem aðdá-
endur Lemgo voru í hópum
inná vellinum að ná í eiginhand-
aráritun Sigurðar Sveinssonar
sem fylgdist með leiknum í
hjólastól.
vann Alsír einnig 4-1. Alsírbúar
voru með á Spáni 1982 og
sigruðu þar sjálfa V-Þjóðverja.
Marokkó tapaði fyrir Líbýu-
mönnum 1-0 en vann samanlagt
3-1 og krækti sér þar með í sætið
mikilvæga. Marokkó komst
einnig til Mexíkó árið 1970.
Undankeppni HM í knattspyrnu:
Tvö lid enn í úrslitin
Laugardagur 19. október 1985 27
Úrvalsdeildin i körfu:
fsak dreif menn
áfram í síðari hálfleik - Það nægði Njarðvík til sigurs í gærkvöldi
Frá Ólafi Þór Johannssym í Njardvík:
■ Njarðvíkingar unnu enn
einn sigurinn á heimavelli í
gærkvöldi er liðið lagði bar-
áttuglaða en óhittna ÍR-inga af
velli með 102 stigum gegn 84.
Það ætlar að reynast Reykjavík-
urliðunum erfitt að ná í stig á
Suðurnesjunum enda eru bæði
Njarðvíkingar og Keflvíkingar í
ágætu formi um þessar mundir.
Fyrri hálfleikurinn var dapur
á að horfa og leikmenn beggja
liða áttu erfitt með að senda
knöttinn rétta boðleið. ÍR-ingar
gáfu heimamönnum lítið eftir
en voru þó undir 33-39 í hálf-
leik.
Síðari hlutinn var líflegri á
allan hátt. ÍR náði forystunni í
upphafi en Njarðvíkingar tóku
þá við sér og sigu jafnt og þétt
framúr. ísak Tómasson var afar
duglegur á þessum kafla og
dreif aðra með sér. ÍR-ingar
...Á fundi Alþjóða
Ólympíunefndarínnar fyr-
ir stuttu var haldin leyni-
leg atkvæðagreiðsla um
hvaða borg væri líklegust
til að hreppa Ólympíu-
leikana árið 1992. Þegar
atkvæðin voru talin þá
kom í Ijós að Barcelona á
Spáni var langcfst á
blaði...
...Eoin Hand þjálfari
írska landsliðsins hefur
ákveðið að hætta störfum
hjá landsliðinu eftir leik
þess gegn Dönum í næsta
mánuði. Hand sagðist
hafa orðið fyrir miklum
vonbrigðum með tapið
fyrir Sovétmönnum í
fyrradag...
...Chilc sigraði Urug-
uay í vináttuleik f knatt-
spyrnu í fyrradag 1-0. Þá
sigraði Paraguay Perú í
vináttuleik sama kvöld 1-
0. Þess má geta að Perú,
Chile og Paraguay spila
um eina lausa sætið sem
S-Ameríka á eftir í HM í
Mexíkó. Leikir þeirra
fara fram í næsta mán-
uði...
...Bjarni Sigurðsson,
landsliðsmarkvörður, var
kosinn besti markvörður í
Noregi af íþróttablaða-
mönnum í Verdens Gang
og þriðji besti leikmaður-
inn vflr allt...
reyndu pressuvörn útum allan
völl sem svar en það kom heima-
mönnumekki úr jafnvægi. Und-
ir lokin kom styrkleikamunur-
inn svo enn betur í Ijós og
sanngjarn sigur 102-84 var í
höfn.
Leikurinn í heild var frekar
dapur. ísak Tómasson stóð upp
úr í liði Njarðvíkinga og Valur
skoraði grimmt að venju. Hann
átti þó mjög misjafna kafla í
þessum leik. Ragnar Torfason
var bestur hjá ÍR-ingum og
virðist.fara fram með hverju
árinu. Valur gerði 24 stig fyrir
Njarðvík og Isak 23. Þeir Árni
og Helgi gerðu 16 hvor. Ragnar
skoraði 24 stig en Hjörtur,
Björn og Karl 11 hvor fyrir ÍR.
Janus til Sviss
■ Þær sögur sem gengið hafa
um að Janus Guðlaugsson ætl-
aði sér í atvinnumennsku og
leika með svissnesku liði reynd-
ust vera sannar.
NT skýrði frá þessu fyrir
nokkru en allt var þó nokkuð
óljóst um samninga. í gærkvöldi
skrifaði Janus hinsvegar undir
samning við Lugano og mun
leika með liðinu fram á vor.
Áframhaldið er óráðið en ef
báðum aðilum líkar vel getur
farið svo að Janus ílengist í Sviss
enda á hann heilmikið eftir sem
knattspyrnumaður.
Fyrsti leikurinn
■ Fyrsti opinberi körfu-
knattleiksleikurinn í glæsi-
legu nýju íþróttahúsi í
Grindavík verður á sunnu-
daginn. Þá mæta heima-
nienn nágrönnum sínum úr
Sandgerði í 1. deild karla.
Leikurinn hefst kl. 14.00
^ EUROCARD
I Fyrirtækið Kreditkort sf. ætla að styrkja Badmintonsambandið
Fjárstuðningur
við badminton
- ■ Kreditkort sf. Iiafa ákveðið
að veita Badmintonsambandi
íslands fjárhagsstuðning á þessu
starfsári og auk þess gefa
Kreditkort sf. landsliði íslands í
badminton búninga, sem merkl-
ir eru fyrirtækinu.
Badmintonsamband íslands
cr eitt af stærstu sérsamböndum
Í.S.I. og fer fjöldi þeirra er iðka
badminton vaxandi með hverju
ári. Þá er íslenskt keppnisfólk í
íþróttinni í stöðugum framför-
um, og er t.d. TBR nteð eitt af
átta stcrkustu félagsliðum í Evr-
ópu í bandminton.
Á myndinni er Vildís Guð-
mundsdóttir formaður BSÍ að
þakka markaðsstjóra Kredit-
korta Grétari Harajdssyni fyrir
veittan stuöning. Á myndinni
cru einnig Sigfús Ægir Arnason
og Sigríður Jónsdóttir úr stjórn
BSÍ.
Hafið þið skoðað blómin okkar
og kynnt ykkur verðið?
Pottaplöntur t.d.:
Mahoníburkni .... kr. 200,- Rósir 1 fl .... kr. 95,-
Kóngavínviður ... kr. 285.- Rósir II fl .... kr. 85,-
Drekatré kr. 400,- Rósir III fl ... kr. 75,-
Nílarsef kr. 270,- Rósabúnt ... kr. 260,-
Hedera stór kr. 380,- Krusi st ... kr. 135.-
Við veljum hverja plöntu! Krusabúnt .... ... kr. 260,-
Liljur ... kr. 135,-
Fresjur 1 fl ... kr. 75,-
Fresjubúnt .... ... kr. 260.-
Afskorin blóm t.d.: Blómaskreytingar
viö öll tækifæri.
T.d.kransa- og kistu-
skreytingar. Þurrskreytingar
í úrvali. Pottahlífarog margt
fleira. Viðkaupum inn
daglega og seljum aðeins
ný afskorinblóm.
Haustlaukar,
Við erum fagfólk.
Síminn er 82895.
P.S.sjáumst.
Gróðrastöð við Hagkaup, Skeifunni.