NT


NT - 26.11.1985, Side 2

NT - 26.11.1985, Side 2
 w Þriðjudagur 26. nóvember 1985 2 L lU Fréttir Góður gestur Á vegum íslenska dansf lokksins ■ Á miðvikudag frumsýnir ís- lenski dansflokkurinn ballett- sýningu sem stjórnað er af hin- um heimsfræga dansara Chinko Rafique sem jafnframt dansar á sýningunni. Því miður eru að- eins fyrirhugaðar þrjár sýningar á þessari uppfærslu en á efnis- skrá eru atriði úr klassískum ballettum auk ballettsins Paquita sem ekki hefur veriö sýndur áður hér á landi. Dagskráin hefst með frum- flutningi á dansi sem Rafique hefur samið við brot úr Silunga- kvintett Schuberts en síðan kemur Pas de Deux úr La Sylphide eftir Filippo Taglioni við tónlist eftir Schneitzeffer og síðan ýmsir ballettar eftir Ivan- ov, Petipa ogMaziliervið tónlist Tchaikovsky, Minkus og Adolphe Adam. Dansarar á sýningunni auk Cltinko Rafique eru Ásdís Magnúsdóttir, Ásta Henriks- dóttir, Birgitte Heide, Guð- munda Jóhannesdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Helena Jóhannsdótt- ir, Ingibjörg Pálsdóttir, Katrín Hall, Lára Stefánsdóttir, Lilja ívarsdóttir, Ólafía Bjarnleifs- dóttir, Sigrún Guðmunsdóttir, Soffía Marteinsdóttir, Einar Sveinn Þórðarson og Örn Guðmundsson. Chinko Rafique sem fæddur er á Indlandi stundaði nánr í Stanislavski-leikhúsinu í Moskvu auk þess sem hann var samtíma þeim Nönnu Ólafs- dóttur og Baryshnikov í skóla Kirov ballettsins í Lcningrad undir stjórn Alexanders Pushkins. Rafique var um þriggja ára skeið sólódansari við Konung- lega ballettinn í Covent Garden í Lundúnum auk þess sem hann er nú fastráðinn sólódansari við Stokkhólmsóperuna og aðal- dansari óperunnar í Zurich. Síðastliðin 10 ár hefur hann ferðast um heiminn og dansað ýmiss stjörnuhlutverk við frá- bærar undirtektir og góða dóma. Það er óhætt að fullyrða að mikill fengur er að komu Chinko Rafique hingað til lands þó svo að sýningarnar verði því miður ekki margar. Leiðrétting ■ Þau leiðu mistök urðu í laugardagsblaði NT í grein um Jón Kjartansson að sagt var að hann Itefði látist í Reykjavík en hið rétta er að hann lést á hcimili sonar síns í Hantborg. Þá var sagt að hann hefði látið af störfum scm forstjóri ÁTVR árið 1984 en hið rétta er að hann gengdi þeim störf- unt til dauðadags. Hlutaðeigandi aðilar cru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Eftirlifandi kona Jóns er Þórný Þuríður Tómasdóttir og eignuðust þau fjögur börn. Banaslys í umferðinni ■ Tuttugu og eins árs gamall maður lést í umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut aðfara- nótt mánudags. Sautján ára gamall ökumaður ók Benz bif- reið suður Reykjanesbrautina. Rétt norðan við Fögruvík, í grennd við Kúagerði, missti ökumaður stjórn á bifreiðinni, og fór hún fram af sjö til átta metra háum kanti og rakst á klett talsvert frá veginum. Þegar sjúkrabifreið kom á slysstað var farþeginn látinn. Hálka var og svört þoka, þegar slysið varð. Ökumaður var fluttur á slysa- deild, en meiðsli hans munu ekki vera alvarleg. Maðurinn sem lést hét Steinar Skúlason til heimilis að Kúrlandi 18 í Reykjavík. ■ Frá slysstað. Gins og mynd- in ber með sér, er mjög hátt fall fram af veginum, og niður, þar sem bíliinn hafnaði. Efst á myndinni sést sjúkrabfll sem staðsettur er á Reykjanesbraut- Ínni. NT-mynd: Sverrir ■ Rafíque stjórnar ballett í Þjóðleikhúsinu sem aðeins verður sýndur í þrjú skipti. DlUH’AU Kaldhæðni krossgötunnar Er aðalfundur Hafskips var haldinn í febrúar á jjessu ári voru hluthafar fengnir til að draga upp ávísanaheftin og skrifa út um 80 milljónir króna. Það var ekki síst hin fræga skýrsla Á krossgötum sem virkaði svo örvandi á fjármála- jöfrana og jafnvel hafa banka- stjórar látið hrífast. í skýrslu þessari segir m.a.: „Kappkostað hefur verið að reka félagið fyrir opnum tjöldum, jafnt í meðlæti sem mótlæti". Kaldhæðni eða íron- ía er gamalkunnugt fyrirbrigði í heimsbókmenntunum. Það er ekki til sá maður á íslandi sem lætur sér detta til hugar að skýrsluhöfundur fari svo vísvit- andi með ósatt mál að kalla svart fyrir hvítt. Það er því miklu nærtækara að ætla að einhver nákunnugur bók- menntunum hafi átt hlut að máli. Einhver sem gerði kröfur til lesenda og atlaðist til að fullkominn skilringur kitlaði hláturtaugarnar. Það var óheppilegt þetta með milljón- irnar, en bókmenntalegt inn- sæi kostar. Hvers virði er kúlt- úrlaus aðalfundur? Hlegið dátt Á krossgötum var enginn ómerkilegur einblöðungur. Nei, ekki aldeilis. Skýrslan var myndarleg eins og bókmennta- verk eru yfirleitt og þar er af nógu að taka. Eins og fyrra dæmi sýnir bregst höfundi ekki bogalistin í kaldhæðnislegum gullkornum sínum. Veraldar- vanir og víðlesnir hafa líklega einhverjir verið á aðalfundin- um, þá emjandi og tárfellandi af óstöðvandi hlátri. Það er engan veginn sanngjarnt að einungis milljónerar njóti spaugilegra skrifa krossgötu- höfundar. NT-lesendum skal einnig skemmt og því fylgir hér önnur stutt málsgrein: „Sagt hefur verið að of hratt hafi verið farið í erlendu upp- bygginguna - það valdi nú m .a. erfiðleikum félagsins. Alröng fullyrðing og minni ég reyndar á ómálefnalega gagnrýni, sem félagið varð fyrir þegar fyrstu skrifstofur þess erlendis voru opnaðar. Var þá talað um gönuflan, mont og sýndar- mennsku og spáð hrakförum. Þessi uppbygging er nú grund- völlur stærstu tekjuöflunar fé- lagsins í dag“. Niðurskurður Yfirlögregluþjónn í Hafnar- firði yar beðinn að velja úr umsóknum afleysingamanna í sumar, og um leið ákveða hversu marga menn þyrfti til afleysinganna. Yfirlögreglu- þjónninn valdi sex manns, og taldi það duga. Listinn var sendur dómsmálaráðuneyti, °g fékk þar sína vanalegu meðferð. En þegar listinn kom til baka, voru afleysinga- mennirnir orðnir átta talsins. Listanum fylgdi dagskipunin að auka skyldi niðurskurð hjá embættinu!

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.