NT - 26.11.1985, Qupperneq 5
Þriðjudagur 26. nóvember 1985 5
Dagsbrún ræðir við Sambandið:
Gamli sveita-
síminn er
Harmar að slitnaði upp
úr viðræðum við Hafskip
Ólíklegt að samræður verði aftur hafnar við Hafskipsmenn
segir Valur Arnþórsson, stjórnarformaður Sambandsins
■ Valur Arnþórsson, stjórn-
arformaöur Sambandsins, sagði
NT í gær, að Sambandið væri
reiðubúið að ræða við Dagsbrún
um Hafskipsmálið, en stjórn
Dagsbrúnar hefur farið fram á
slíkar viðræður.
Valur bjóst við að viðræðu-
nefnd skipuð stjórnarmönnum
Sambandsins, myndi ræða við
stjórn Dagsbrúnar, en hann
kvaðst ekkert geta sagt um
hvort þessi málaleitan yrði til
þess að viðræður við íslenska
skipafélagið yrðu teknar upp
aftur. Bjóst hann síður við því.
í ályktun frá stjórn Dagsbrún-
ar segir, að það hafi valdið
vonbrigðum hjá félaginu þegar
ljóst var að Sambandið væri
ekki reiðubúið að ganga til liðs
við íslenska skipafélagið um
stofnun nýs sameiginlegs skipa-
félags.
Stjórn Sambandsins ákvað á
laugardag að hætta slíkum við-
ræðum en samkvæmt heimild-
um NT munu sex stjórnarmenn
hafa viljað hætta viðræðunum
en fimm viljað halda þeim
áfram.
Valur sagði að menn hefðu
talið að málið bæri of brátt að og
menn væru ekki í stakk búnir að
taka svona þýðingarmikla deild
út úr Sambandinu með svo stutt-
um fyrirvara, en tillagan sem til
umræðu var, gekk út á það að
stofnað yrði sérstakt hlutafélag
um skiparekstur Sambandsins
með aðild félaga utan og innan
hreyfingarinnar til samstarfs
með meirihluta Sambandsins.
Það að tillagan náði ekki fram
að ganga feiur í sér að enginn
grundvöllur er fyrir áframhald-
andi viðræðum við Útvegsbank-
ann og íslenska skipafélagið.
Valur sagði að tilfinningamál
hefðu blandast inn í þessar við-
ræður en stjórn Sambandsins
hefði metið málið í heild sinni
og út frá þeirn rökum sem fyrir
lágu. Sagði hann að stjórnin
felldi ekki neinn dóm á menn í
þjóðfélaginu og sorteraði þá út
sem væru viðræðuhæfir og
hverjirekki. Sagði Valur að það
hefði aldrei staðið til að flækja
Sambandið á neinn hátt inn í
hugsanlegt gjaldþrotamál Haf-
skips og að það hefði aldrei
tekið neina ábyrgð á skuldum
Hafskips.
Það kom mjög til álita fyrir
tveim árum, þegar höfuðskipu-
lagi Sambandsins var breytt, að
stofna sérstakt skipafélag um
skipareksturinn og bjóst Valur
við að þetta mál yrði aftur tekið
fyrir á næsta aðalfundi SÍS, en
þá á að ræða Samvjnnuhreyf-
ingu framtíðarinnar og verða
skipulagsmálin ofarlega á baugi
þá.
orðinn
Frá Magnúsi Magmissyni rrétlaritara
NT í Borgaifirói:
■ Nú fer ört fækkandi
þeirn sveitum sern enn
þurfa að búa við handvirk-
an síma. Hér í Borgarfirði
eru það Hálsasveit, Hvít-
ársíða auk Lundarreykja-
dals.
Póstur og sími vann að
því í sumar sem leið, að
leggja í jörð símastrengi
heim að bæjum og nú á
aðeins eftir að tengja inn
á heimilin.
Ástand gamla símans er
misjafnt en þó er það talið
verst í Hálsasveit, enda
segja símstöðvarstúlkur
að sú lína sé ein hin
versta á landinu.
lélegur
íbúar í Hálsasveit segja
að það sé háð tilviljunum
hvort náist á milli bæja og
ef næst samband á annað
borð, þá ntegi búast við að
það slitni þá og þegar,
fyrir utan það að orðaskil
séu ill-greinanleg. Þurfa
Hálssveitingar því oft að
leggja á sig aukakostnað
við að komast í sjálfvirkan
síma, t.d. í Reykholt.
Finnst mörgum notendum
símanna í fyrrgreindum
sveitum að Pöstur og sími
mætti gjarnan hraða verk-
uni sínum við tengingu
sjálfvirka símans hér í
uppsveitum Borgarfjarð-
ar.
Innbrot í Garðabæ:
Nakið par
staðið
að verki
■ Ölvað par var staðið að
verki á innbrotsstaö í Garðabæ
um helgina. Parið var nakið
þegar komið var að þeini. Lög-
regla í Hafnarfirði fékk tilkynn-
ingu um innbrot frá aðvörunar-
kerfinu í heita pottinum í sund-
laug Garðabæjar. Þcgar komið
var á staðinn fannst pariö heldur
lúpulegt í hnipri í skugga-skoti
við sundlaugina. Þau voru að
konia af skcmmtistaö, þegar
þeim datt í hug að fá sér
sundsprett í lauginni, aðfara-
nótt sunnudags, þegar klukkan
var langt gengin í sex. Stúlkan
sem fór í laugina gekk á aðvör-
unargeisla sern er viö heita
pottinn, og setti þar mcð að-
vörunarkerfið í gang. Málið er í
rannsókn.
Handtökurá
Hótel Esju
■ Fjórmenningar voru hand-
tcknir í anddyri Hótel Esju um
helgina, þar sem grunur leikur
á að ávísun sem þeir ætluðu að
greiða með hótelkostnað, væri
fölsuð. Fjórmcnningarnir voru
undir áhrifum áfengis, þegar
þeir framvísuðu ávísuninni.
Ekki er vitað hversu háa upp-
hæð er um að ræða, en þaö
kostar sitt að dveljast á hótel-
herbergi, og það sem fylgir því
er heldur ekki gefið. Málið er í
rannsókn hjá rannsóknarlög-
reglu og er verið að kanna
áreiðanleika ávísunarinnar.
Hálka í
Breiðholti:
Bjalla
valt
■ Volkswagen bifreið valt í
Jaðarseli aðfaranótt mánudags-
ins. Stúlka, sem var ein í bílnum,
slapp með óveruleg meiðsli eftir
veltuna. Talið er að sökum
hálku hafi ökumaður misst
vald á bifreiðinni með fyrr-
greindum afleiðingum. Bíllinn
skemmdist talsvert.
Á áttunda þúsund manns hafa skoðað afmælissýninguna „Meistari Kjarval 100 ára“ í Háholti í Hafnarfirði en þar sýnir
Þorvaldur Guðmundsson, forstjóri, rúmlega 150 Kjarvalsmálverk úr einkasafni sínu. Á dögunum heimsóttu börn úr Öldutúnsskóla
í Hafnarfírði sýninguna og hér niá sjá þau yngstu skoða þennan undraheim málverkanna sem rann úr pensli meistarans.
Afmælissýningunní lýkur um næstu mánaðamót. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-19 og aðgangur er ókeypis.
Flugleiðamótið í skák:
Búnaðarbankinn
vann örugglega
■ Búnaðarbankinn
vann Flugleiðamótið í
skák sem haldið var um
helgina. Búnaðarbank-
inn fékk 63V^ en sveit
Ríkisspítala var t' 2. sæti
með 59 vinninga. Sveit
Flugleiða varð í 3. sæti
með 55V5 vinning en hún
afsalaði sér verðlaunun-
um til sveitarTaflfélags
Akureyrar sem varð í 4.
sæti með^ó'Ávinning.Alls
tóku 24 sveitir þátt í mót-
inu.
Besta árangri á 1.
borði náði Jóhann Hjart-
arson eða 2VA vinning af
23. Margeir Pétursson
náði fullu húsi á 2. borði,
23 vinningum og á 3.
borði náði Davíð Ólafs-
son bestum árangri, 22Vi
vinning.
Sveit Búnaðarbankans
skipuðu Jóhann Hjartar-
son, Margeir Pétursson
og Bragi Kristjánsson.
Sveit Ríkisspítalanna
skipuðu Róbert Harðar-
son, Þröstur Þórhallsson
og Davíð Ólafsson. Sveit
Flugleiða skipuðu Karl
Þorsteins, Elvar Guð-
ntundsson og Björn Theó-
dórsson og sveit T.A.
skipuðu Guðmundur
Gíslason, Arinbjörn
Gunnarsson og Ásgeir
Överby.
Mosfellssveit:
Deilt um hreppamörk
og vatnsveitumál
- almennur borgarafundur í kvöld
■ Deilur hafa komið upp í
Mosfellssveit vegna væntan-
legra kaupa Reykjavíkurborgar
á landi í suðurhlíðum Úlfars-
fells. Þær jarðir sem hér um
ræðir eru Úlfarsá, Úlfarsfell,
Fellsmúli og Óskot.
Allar þessar jarðir, nema Úlf-
arsá eru í eign einkaaðila, en
ríkið í Úlfarsá. Reykjavík hefur
sýnt þessu landi talsverðan
áhuga fyrir framtíðaráætlanir
um þróun byggðar í borginni.
Mosfellshreppur á hins vegar
forkaupsrétt að jörðunum, en
hefur ákveðið að nýta sér hann
ekki. f viðræðum milli borgar-
innar og Mosfellshrepps hefur
komið fram að eignist Reykja-
vík landið muni Vatnsveita
Reykjavíkur sjá um vatnslögn
upp að hreppamörkum og þar
með leysist vatnsveituvandamál
sem Mosfellingar hafa átt við að
stríða á tiltölulega ódýran hátt.
Gert er ráð fyrir, að ef þetta
þróist á þennan veg, muni
hreppamörkum verða breytt og
suðurhlfðar Úlfarsfells falla
undir lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur.
Undirskriftarlisti gekk rneðal
Mosfellinga í gær þar sem þess-
um áformum um skerðingu á
lögsagnarumdæmi hreppsins er
mótmælt og bent á að aðrar
leiðir séu færar til að leysa
vatnsveitumál hreppsins. Óskað
er eftir almennum hreppsfundi
um vatnsveitumálin í undir-
skriftariistanum og sagt að um
leið og góð samvinna við nágr-
anna sveitarfélögin sé æskileg
þurfi Mosfellshreppur að koma
fram með fullri reisn sem full-
valda sveitarfélag.
Magnús Sigsteinsson oddviti
sagðist í samtali við NT í gær-
kvöld ekki hafa séð þennan
undirskriftarlistar, en engu að
síður hafi hreppsnefndin haft
frumkvæði að því að boða til
almenns hreppsfundar um
málið, þar sem ljóst væri að
misskilningur væri útbreiddur í
sveitinni. Hann sagði hreppinn
ekkert bolmagn hafa til að neyta
forkaupsréttarins á þessu landi
og að Reykjavík myndi kaupa
landið hvort sem vatnsveitumál-
in væru inni í myndinni eða
ekki.