NT - 29.11.1985, Page 1

NT - 29.11.1985, Page 1
NEWS SUMMARYIN ENGLÍSH SEEP. 6 Andstaðan gegn vörugjaldi bar árangur: Ríkisstjórnin fellur frá vörugjaldshækkun Komið til móts við launþega, segir Þorsteinn Pálsson ■ Hin mikla andstaða, sem fyrirhuguð breyting á vörugjaldi fékk, hefur orðlð til þöss að fjármálaráðherra hefur fallið frá hugmyndinni. Skiptir þar meginmáli að breytingin hefði haft í för með sér um 1,5% hækkun framfærsluvísitölu, og rýrt kaupmátt um 1%. Vöru- gjaldsbreytingin átti að færa ríkissjóði 750 milljóna króna hagnað og átti að nota hann til að lækka tekjuskatt .um 400' • milljóniroglækka aðflutnings- gjöld um 250 milljónir með breyttri .tollalöggjöf. Þorsteinn Pálsson, sagði við NT í gær, að ástæðan fyrir þessu væri fyrst og fremst að koma til móts við launþega nú þegar kjarasamningar standa1 fyrir' dyrum. Sagði hann að-vécðbólg- an hefði ekki gengið eins mikið niður Qgráð varíyrir gert og því teldi ríkisstjórnin að í þeirri þröngu stöðu, sem kjarasamn- ingar fara fram í sé ekki hætf- andi á að -gera ráðstafanir í tekjuöflunarmálum, sem valdi slíkri hækkuri á framfærslu- kostnaði. Þorsteinn vár spurður hvort skýrsla Alþjóða gjaldeyrissjóðs- ins, sem NT greindi frá í gær hefði haft áhrif. I skýrslunni ér mælt, með því að íslendingar nái jöfnuði í ríkisbúskapnum með skattahækkunum og aðhaldi í ríkisfjármálum og þeir ’greiði ! niður erlendar skuidir. Hann sagði að hún hefði ekki haft afgerandi áhrif á þetta, en hins- vegar væri ekki liægt að loka augunum fyrir þeim ábendingum sem þar koma fram. T Húsnæðisnefnd skilar brátt tillögum: Peningaflæði í fimm liðum ■ Nefnd sem Alexander Stef- ánsson, félagsmálaráðherra,_- skipaði til að vinn^ að úrlausn húsnæðisvandans *mun skila álitsgerð fljótlega. Segja má að nefndarmenn séu nokkurn veg- inn einhuga um þær aðgerðir sem mælt verður með við ráð- herra. í tillögum að álitsgerð sem nú liggja fyrir nefndinni er gert ráð fyrir fimm megin þáttum sem samstaða hefur náðst um. Þeir munu að öllum líkindum felast í eftirfarandi: í fyrsta lagi að auknu fjármagni verði veitt til aðstoðar við þá er hafa byggt eða keypt íbúðarhúsnæði á til- teknu tímabili og eiga í greiðslu- erfiðleikum, í öðru lági að við- skiptabankarnir verði hvattir til að auka lánveitingar sínar til þessara aðila, í þriðja lagi að skattakerfið verði notað til að Iétta byrði íbúðarhúsnæðis- byggenda og kaupenda, í fjórða lagi að flýtt verði afgreiðslu á lánum til þeirra sem eru að byggja eða kaupa í fyrsta skipti, í fimmta lagi að lánshlutfall þessara fyrstu lána verði hækkað. Félagsmálaráðherra átti fyrir skömmu fund með bankastjór- um viðskiptabankanna til þess að kanna hug þeirra til hugsan- legra aðgerða og til að hvetja þá til samstarfs við ríkisvaldið í ■ Sænskt stórfyrirtæki, Ram- lösa, hefur sýnt áhuga á að taka þátt í hlutafélagi um átöppunar- verksmiðju fyrir vatn á Sauðár- króki. Fyrirtæki þetta hefur í áratugi selt á markað um allan heim lindarvatn undir sama heiti og hafa fulltrúar þess verið í sam- bandi við ráðamenn á Sauðár- þessum efnum. Heimild NT hermir að ekki sé fyrirhugað að flokka á nokkurn hátt þá sem munu njóta ávaxtanna af starfi nefndarinnar í samræmi við mat á raunhæfni á byggingu eða kaupum fasteignar. króki. Þar og annars staðar þar sem NT bar niður í gær, vildu menn ekki tjá sig um málið. Samkvæmt heimildum NT vilja Svíarnir reisa verksmiðju sem gæti tappað á um tólf milljónum lítra af vatni árlega og yrði um mjög fullkomna verksmiðju að ræða. Sauðárkróksvatn til Svíþjóðar: Ramlösa með verksmiðju? ■ Ungur Ákureyringur í bæjarferð fékk heldur betur að kenna á því í gærkveldi þegar hann missti vald á bifreið sinni fyrir framan Hótel Esju. Sem betur fer urðu ekki slys á fólki en bifreið Fans skemmdist nokkuð þar sem hún hafnaði á hvolfí utan vegar. Skömmu eftir að atburðurinn átti sér stað lá við að önnur bifreið færi sömu leið en ökumanni hennar tókst að forða frekara óhappi eftir að bifreið hans var komin þversum á veginn. Ástæðan i bæði skiptin er talin hafa verið hálkublettur sem myndast hafði á þessum stað sem SÍðan hafði SnjÓað yfír. NT-mjnd: Svcmr. ■ Þessir tveir starfsmenn Hafskips fengu uppsagnarbréf í gær eins og allir aðrír starfsmenn félagsins. Þeir héldu samt ótrauðir áfram við vinnu sína og máttu varla vera að því að líta upp er Ijósmyndara bar að garði. NT-mynd: Árni Bjama Spáð í stjörnurnar í Hafskipsmálinu: Málirt skýrast í dag Stjórnarfundur Sambandsins í dag ■ Málefni Hafskips og fs- lenska skipafélagsins munu skýrast seinni partinn í dag, sagði Halldór Guðbjarnarson, bankastjóri Útvegsbankans við NT í gær. Þá var talið nokkuð víst í gærkvöldi að stjórn Sam-- bandsins kæmi aftur saman. til fundar í dag, í framhaldi af málaleitan Dagsbrúnar. Sagði Ólafur Sverrisson, varaformað- ur stjórnar Sambandsins, að ekki væri hægt að loka augunum fyrir ábendingum Dagsbrúýiar. . Allir starfsmenn Hafskips fengu uppsagnarbréf í gær og koma uppsagnir . nokkurra þeirra til framkvæmda strax í næstu viku. Eimskipafélagið hélt stjórn- arfund í gær en engin ákvörðun var tekin um framhald viðræðna á þeim fundi. Sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips við NT, að svo virtist sem menn væru að leita að réttri stöðu himintungla til að taka ákvörð- un. íslenska skipafélagið hefur farið fram á við Útvegsbankann að hann skýri hver staða félags- ins er. Sagði Halldór Guðbjarn- arson að þeim hefði ekki enn verið svarað neinu. Bankaráð Útvegsbankans vill fá að vita hvernig hlutafjársöfnunin geng- ur hjá íélaginu, áður en farið er að líta á það sem hugsanlegan viðsemjanda, en enn hafa spilin ekki komið upp á borðið og þau svör sem fengist hafa um söfnunina verið mjög loðin. NT hefur eftir bankaráðsmanni að þeir vilji sjá sterka aðila í hluta- fjársöfnuninni ef eitthvað á að verða úr samningum. Bankaráð pressar nú mjög á að þetta mál verði leyst svo þeir geji farið að snúa sér að öðrum málum sem varða bankann, t.d.' hvort leggja beri hann niður eða sameina hann öðrum banka í kjölfar Hafskipsmálsins.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.