NT - 29.11.1985, Blaðsíða 3
Föstudagur 29. nóvember 1985
3
Kauphöll
í tölvu
- Verðbréfaþing tekur til starfa á næstu dögum
■ Verðbréfaþing Islands tekur til
starfa á næstu döguni, en hlutverk
þess verður svipað og í kauphöllum
erlendis. Þeir sem standa að Verð-
bréfaþinginu eru m.a. Fjárfestinga-
félagið, Kaupþing og nokkrir bankar.
Að sögn Sigurgeirs Jónssonar, að-
stoðarbankastjóra Seðlabankans, er
þarna um að ræða tölvuskráningu á
þeim verðbréfum sem boðin eru til
sölu á markaðinum og verða reglu-
lega upplýsingar birtar um gangverð
bréfanna. Viðskiptin ntunu svo fara
fram milli tveggja miðlara. Sagði
Sigurgeir að Verðbréfaþingið hefði
ekkert sérstakt húsnæði undir starf-
semina, heldur færi hún fyrst og
fremst fram í tölvunni.
í>á má búast við frumvarpi frá
viðskiptaráðherra nú fyrir jól um
verðbréfaviðskipti, en fram að þessu
hafa engin lög verið um slík viðskipti.
Sigurgeir er formaður þeirrar nefndar
sem unnið hefur að frumvarpinu og
sagði hann að starfi nefndarinnar
væri lokið. í frumvarpinu er kveðið á
um að þeir sem stundi verðbréfavið-
skipti þurfi að sækja um leyfi þar að
lútandi til ráðherra og til að fá leyfið
þurfa umsækjendur að uppfylla
ákveðin skilyrði, menntun eða reynslu
af verðbréfaviðskiptum. Pá eru ýmis
tæknileg atriði í frumvarpinu sem
eiga að tryggja hagsmuni allra aðila
sem hlut eiga að máli í verðbréfavið-
skiptum.
Athugasemd:
■ Jón Guðnason bóndi í Götu í
Hvolhreppi hefur beðið NT fyrir
eftirfarandi athugasemd:
„í síðasta tölublaði Eiðfaxa er
fjallað um kappreiðahestinn Lótus
sem setti íslandsmet í 250 metra
skeiði í sumar í unghrossahlaupi.
Þar segir að ágreiningur sé um
aldur hestsins og sagt að bóndinn
sem hann sé fæddur hjá hafi sagt
hann 7 vetra.
Lótus er fæddur hjá mér og
alinn upp til þriggja vetra aldurs.
Fyrir u.þ.b. þrem árum fór hann
frá mér.
Enginn úr mótanefnd L.H. hef-
ur ómakað sig til að tala við mig
um þetta mál. Ég hef því ekkert
sagt þeim um aldur hestins og
engin skilaboð sent þeim.“
BÆNDUR
Graskögglarnir eru góður kostur,
ódýrt og kjarnmikið íslenskt fóður
Vekjum sérstaka athygli á graskögglum
blönduðum innlendum fóðurefnum,
svo sem meltu, fiskimjöli og byggi
Leitið nánari upplýsinga
, / verksmiðiunum oa hiá söluaðilum
IVIIKJÐ URVAL MYNDA
_____E3
í 6(ú1u oq stríðu
300 titlar
á staðnum.
Auk þess
400 titlar
sem hægt er
að panta
með 3ja daga
fyrirvara
AÐAL-BETALEIGAN HRINGBRAUT 119