NT - 29.11.1985, Síða 4
Trivial Pursuit:
NT og Birna unnu
fyrstu keppnina
■ Hvað hét Vaðlavík til borgaði mannræningjum 270
forna? þús. bandaríkjadala í lausnar-
Hvaða bandaríski söngvari gjald fyrir son sinn?
■ Ólöf Guðmundsdóttir Salmon, hjá Eskifelli, kannar hvernig
lcikurinn gengur hjá íhugulum keppendum eins borðsins.
■ Guðmundur Guðveigsson, forstjóri Eskifells, útskýrir gang
leiksins fyrir þátttakendum.
Hvað hétu synir Ásmundar Þor-
grímssonar og Ásdísar Bárðar-
dóttur frá Bjargi í Miðfirði?
Hvaða skip var 300 álnir á
lengd, 50 álnir á breidd og 30
álnir á hæð?
Hvað getur verið gatrifað eða
kýlað?
Hver sigraði í víðavangshlaupi
ÍR árið 1981?
Spurningaleikurinn Trivial
Pursuit kom formlega út á ís-
landi s.l. laugardag, þegar
íslenska útgáfan var spiluð í
hófi sem innflytjandinn Eskifell
hf. boðaði til. Þar voru mættir
til leiks fulltrúar allra helstu
fjölmiðla landsins auk fulltrúa
frá framleiðendum crlendis og
ýmsum menningarstofnunum
hérlendis s.s. menntamálaráðu-
neytinu, Útvegsbankanum og
tómstundaversluninni Hjá
Magna.
Eins og frarn hefur komið
áður í NT er Trivial Pursuit
spurningaleikur, sem átt hefur
ótrúlegum vinsældum að fagna
hvar sem hann hefur komið, og
munu nú liafa selst yfir 40
milljón eintök af spilinu í hinum
ýmsu löndum hcims.
Fyrir þá scm ekki hafa heyrt
af þessum leik felst hann í því
að keppendum er gert að svara
spurningum um hin margvísleg-
ustu málefni, úr sex málaflokk-
um.
Hver keppandi hcfur sérstakt
trog, sem liann þarf að fylla af
sex mislitum fleygum, en fleyg-
ana getur hann aðeins fengið ef
hann svarar rétt spurningu úr
viðkomandi málaflokki. Mála-
Föstudagur 29. nóvember 1985 4
■ Guðmundur Guðveigsson, forstjóri Eskifells, afhendir Birnu Hrólfsdóttur fulltrúa fyrstu formlegu
sigurvegaranna guðaveigar í verðlaun. Liðsmenn Birnu, NT kempurnar Róbert og Birgir, standa henni
á hægri hönd en fulltrúar framleiðenda í Bretlandi, Jane Pickup og Chris Berger-North eru henni á
vinstri hönd.
flokkarnir eru, landafræði;
dægradvöl, saga, bókmenntirog
listir, vísindi; og íþróttir og
leikir.
Islenska útgáfan er unnin
þannig að um 50-75% spurning-
anna eru samin sérstaklega fyrir
íslenska keppendur, en restin af
spurningunum er þýdd úr
erlendum útgáfum. Það var
Lárus Thorlacius sem sá um að
þýða og semja spurningarnar,
en honum til aðstoðar voru
Þóra Árnadóttir og Haukur
Arason. Lárus og Haukur eru
cðlisfræðingar en Þóra nemur
jarðeðlisfræði. Þau unnu
íslensku útgáfuna á u.þ.b. 8
mánuðum.
Vinsældir þessa leiks hafa
breiðst út með ótrúlegum hraða
og hefur hann víða slegið met í
sölu teningaleikja. Ovíst er
hvað veldur þessum vinsældum
en að dómi þeirra Chris og John
Haney og Scott Abbots, sem
fundu leikinn upp fyrir fimm
árurn eða svo, er það einfald-
lciki spurninganna sem mestu
skiptir.
Svo mikið er víst að enginn
þarf að hafa áhyggjur þó hann
gati eða geti ekki svarað spurn-
ingu, því þær eru allar um
eitthvað smáatriði sem yfirleitt
skiptir ekki sköpum í framvindu
hins daglega amsturs. Þeir eru
margir sem hafa lýst því yfir að
þeir spili leikinn mikið, og má
þar nefna ekki minni menn en
Ronald Reagan og Larrý Hag-
man sem er betur þekktur undir
nafninu J.R.
íslenska útgáfan er að ytri
búnaði eins útlítandi og erlend-
ar útgáfur, og er spilið mjög
vandað. Spurningaspjöldin
koma oft skemmtilega á óvart,
en ekki virðast hafa slæðst mjög
margar prentvillur eða spurn-
inga-svara ruglingur á þau, þó
slíkt finnist.
Sern fyrr segir, var leikurinn
formlega spilaður í íslenskri út-
gáfu á laugardaginn og var
keppt á fjórum borðum þar sem
þrír voru í liði. Svo sem vænta
mátti urðu fulltrúar NT með
góðuni liðstyrk frá Birnu
Hrólfsdóttur úr sjónvarpinu
fyrstir til að vinna andstæðinga
sína og urðu þar með fyrstu
formlegu sigurvegarar í íslensku
Trivial Pursuit. Alls var þrem
liðum veitt verðlaun, þrjár
kampavínsflöskur, en þar sem
þrír voru í liði þurftu liðin að
skipta verðlaununum bróður-
lega með sér áður en haldið var
heimleiðis.
Svör viö spurningum:
Krossavík;
Frank Sinatra;
Atli, Grettir, Illugi;
Örkin hans Nóa;
Eyra á sauðkind;
Ágúst Ásgeirsson
Grímudansleikurinn í Þjóðleikhúsinu:
Ragnar Björnsson
tekur við stjórn
Maurízio Barbacini hverfur til verkefna á Ítalíu
Votheysverkun til
að draga úr heymæði
■ Ragnar Björnsson tekur við
hljómsveitarstjórn í uppfærslu
Þjóðleikhússins á óperunni
Grímudansleik eftir G. Verdi
miðvikudaginn 4. desember, en
þann dag þarf Maurizio Barbac-
ini að hverfa af landi brott til að
sinna verkefnum á Ítalíu.
Ragnar Björnsson hefur
margoft verið hljómsveitarstjóri
í sýningum Þjóðleikhússins og
nægir í því sambandi að nefna
Sumar í Týrol, Leðurblökuna,
I Alls 1.760.000 Sovétmenn
verða væntanlega komnir með
nýjan íslenskan ullartrefil frá
Álafoss um jólin. í lok október
hafði Álafoss lokið við að fram-
leiða og skipa út þeim 1.380.000
sem samið hafði verið um við
Raznoexport í Sovétríkjunum.
En seinni hluta október var samið
um 380.000 trefla í viðbót. Auk
þess er búið að senda 20.000
Sardasfurstinnuna, Carmen,
Helenu fögru, óperuna Orfeus
og Evridísi og ballettinn Blind-
ingsieik eftir Jón Ásgeirsson og
Jochen Ulrich en að auki hefur
hann stjórnað hljómsveitinni í
fjölmörgum ballettsýningum.
Ragnar var dómorganisti í
fjölda ára en hefur jafnframt
farið í tónleikaferðir, m.a. til
Rússlands, Bandaríkjanna,
Kanada, Þýskalands, og
Norðurlandanna. Undanfarið
ullarpeysur, sem samið var um
fyrr á þessu ári. Alls hljóða
þessi viðskipti upp á 4,8 millj.
dollara, eða um 200 milljónir
króna á þessu ári.
Framleiðsla upp í framan-
greinda samninga hefur gengið
mjög vel, að sögn forráðamanna
Álafoss. Raunar voru þeir á
undan áætlun með útskipanir.
Viðbótarsamningurinn er sagður
■ Ragnar Bjömsson organisti
og hljómsveitarstjóri.
ár hefur Ragnar verið skóla-
stjóri Nýja tónlistarskólans.
hafa komið sér mjög vel, þar
sem hann hafi brúað þá 2ja til
3ja mánaða eyðu sent myndast
hafi í framleiðslunni á milli
samninga á undanförnum árum.
Vonast Álafossmenn til áfram-
haldandi samvinnu á næsta ári,
en samningaviðræður við Razn-
oexport hefjast í Moskvu 2.
desember n.k.
■ „Sterkar líkur eru á því að
draga megi úr bráðaofnæmi og
heysótt með því að minnka ryk
í heystæðum og sérstaklega með
því að taka upp votheysverk-
un,“ segir m.a. í áfangaskýrslu
um rannsóknir á heysjúkdóm-
um. í rannsóknum hefur m.a.
komið í Ijós að hjá flestum sem
fengið höfðu einkenni af hey-
mæði var það í sambandi við
þurrhey eða myglað þurrhey -
93% - en aðeins fáum - 7% í
sambandi við vothey. Þótt all-
mikil þekking hafi fengist með
rannsóknum á eðli heysjúk-
dóma og orsakir þeirra séu nú
að verulegu leyti þekktar, er
enn ekki vitað hvers vegna
lungnaþemba er algengari með-
al bænda en annarra starfs-
stétta.
Á síðasta ári var könnuð
tíðni bráðaofnæmis meðal
bændafjölskyldna - annars veg-
ar í Vestur-Skaftafellssýslu og
hins vegar Strandasýslu - og
jafnframt hverjir ofnæmisvaldar
yllu oftast ofnænii. Einnig var
kannað hvort samband væri
milli heyverkunaraðferða og
einkenna frá öndunarfærum.
Svæðin voru valin vegna ólíkra
veðurskilyrða og heyskaparað-
ferða. í V-Skaft. voru 61%
þátttakenda eingöngu með
þurrhey, en á Ströndum voru
80% þátttakenda með yfir 90%
votheysverkun.
Allir þátttakendur svöruðu
sérstökum spurningalista um
einkenni frá öndunarfærum,
ofnæmiseinkenni og einkenni
frá lungum, nefi eða augum
tengdum vinnu í heyi. Einnig
var spurt um hvort einkenni
tengdust ákveðinni tegund fóð-
urs og um heyverkunaraðferðir.
Þeir sem höfðu einkenni um
hugsanlegt ofnæmi voru húð-
prófaðir með 24 ofnæmisvök-
um, þar af 12 sem fundist hafa í
íslensku heyi. Munur á tíðni
ofnæmiseinkenna eðajákvæðra
húðprófa er ekki sagður mark-
tækur á milli héraða.
Algengustu ofnæmisvaldar
reyndust; Maur sem lifir í heyi
38% prófaðra, húsryk 30%,
nautgripir 21%, heymaurar
18%, og túnvingull 13%. Sterk
fylgni reyndist milli jákvæðra
húðprófa og einkenna frá nefi
og augum.
Meðal þeirra verkefna sem
æskilegt er talið að ljúka áður
en rannsóknarhópurinn hættir
störfum er að mæla rykmagn í
innönduðu lofti við vinnu í
heystæðum og bera saman ryk-
magn í heyi, sem verkað er með
mismunandi aðferðum. Að
halda málþing um heysjúk-
dóma, t.d. í sambandi við bún-
aðarþing. En forgangsverkefni
á næsta ári verður að gera
heildarúttekt á gerlagróðri í úti-
húsalofti hjá bændum er þjást af
heymæði og öðrum hópum sem
ekki hafa þau. í undirbúningi er
dánarmeinarannsókn meðal
bænda.
Nýtt Jafnréttisráð
■ Nú hefur nýtt Jafnréttisráð geirsson framkvæmdastjóri.
verið skipað til tveggja ára Sigurveig Sigurðardóttir
samkvæmt lögum nr. 65/1985. hjúkrunarfræðingur er skipuð
Verður ráðið þannig skipað: af Bandalagi starfsmanna ríkis
Ólöf Pétursdóttir héraðs- og bæja og yaramaður hennar
dómari skipuð af Hæstarétti er Guðrún Árnadóttir meina-
sem formaður og varamaður tæknir.
hennar er Guðjón Steingríms- Ingibjörg Magnúsdóttir hús-
son hæstaréttarlögmaður. móðir er skipuð af Kvenfélaga-
Gerður Steinþórsdóttir sambandi Islands og varamað-
cand.mag. er skipuð af félags- ur hennar er Magdalena Ingi-
málaráðherra og varamaður mundardóttir gjaldkeri.
hennar er Ingibjörg Pálma- Esther Guðmundsdóttir
dóttir hjúkrunarfræðingur. þjóðfélagsfræðingur er skipuð
Lára V. Júlíusdóttu lög- af Vinnuveitendasambandi ís-
fræðingur er skipuð af Alþýðu- lands og varamaður hennar er
sambandi fslands og varamað- Guðrún Lárusdóttir útgerðar-
ur hennar er Jóhannes Sig- maður.
Nær2millj. Rússa
með Alafosstrefil