NT - 29.11.1985, Page 15
nr Föstudagur 29. nóvember 1985 15
ui Helgin framundan
Tilburðir
Paquita
■ Sýning íslenska dansflokksins á
ballettinum Páquita og fleiri verkum
verður á fjölunum í annað sinn laug-
ardaginn 30. nóv. ki. 15.00. Athygli
er sérstaklega vakin á því, að sýning-
artíminn er óvenjulegur, svo og að
börn innan við fermingu geta fengið
miða á sama verði og á barnasýning-
ar. Það er Chinko Rafique, heims-
þekktur dansari, sem stjórnar þessari
sýningu og dansar jafnframt með
Islenska dansflokknum. Auk þessa
verða í Þjóðleikhúsinu tvær sýningar
á óperunni Grímudansleik nú um
helgina á föstudags- og sunnudags-
kvöld, og er löngu uppselt á þær
báðar. Næstu sýningar verða þriðju-
daginn 3. desember og miðvikudag-
inn 4. des. og er einnig uppselt á þær.
Sunnud. 1. des. hefst sala á síðustu
sýningar óperunnar, en þær verða 14.
og 15. desember.
Með vífið í lúkunum, breski farsinn
eftir Ray Cooney verður sýndur laug-
ardagskvöldið 30. nóv. Næstsíðasta
sýning fyrir jól.
leikritínu Tilburðum
■ Leikfélag Neskaupstaðar, sem
um þessar mundir er 35 ára, hefur að
undanförnu æft leikritið Tilburði eftir
Kristin Reyr. Leikendur eru sex.
Leikritið er nokkuð nýstárlegt,
„spuni leikara um Tilburðina með
fléttu af ljóðum og tónlist", segir í
frétt frá leikfélaginu.
Leikstjóri er Magnús Guðmunds-
son frá Neskaupstað.
„Tilburðir“ voru frumsýndir sl.
þriðjudag í Egilsbúð á Neskaupstað
og önnur sýning á fimmtud. á sama
stað.
Um helgina verða sýningar á Stöðv-
arfirði og Breiðdalsvík.
■ Chinko Rafique dansar og stjórn ar ballettsýningunni.
Ymislegt
Laugardagsganga
Hana nú
Þessi óvenjulega jólahugvekja hefur
hlotið einróma lof gagnrýnenda, og
þá ekki síst leikur Árna Tryggvasonar
í hlutverki nirfilsins Scrooges. Auk
hans taka þátt í sýningunni fjöldi
leikara, dansara, barna og hljóðfæra-
leikara, í allt um 40 manns.
Sýningarnar verða föstudags- og
laugardagskvöld kl. 20.30, og sunnu-
dag kl. 16.00.
Dansleikir og
leiksýning í Veitinga-
húsinu Ríó
■ í kvöld, föstudagskvöld, er al-
mennur dansleikur í Ríó kl. 22.00-
03.00. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar
leikur.
Á laugardagskvöld kl. 20.00 verður
Leikfélagið Hallvarður Súgandi frá
Suðureyri með leiksýningu. Sýnt
verður leikritið „Saklausi svallarinn“
eftir Arnold og Back, en leikstjóri er
Hörður Torfason. Síðan eða um kl.
22.00 hefst almennur dansleikur,
hljómsveitin Goðgá leikur fyrir dansi,
með þeim verður Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, sem áður var með
hljómsveitinni BG og Ingibjörg. Hús-
ið er opnað kl. 19.00 en leiksýningin
hefst kl. 20.00.
Miðasala verður í Ríó (sími 46500)
frá kl. 17.00 sýningardaginn.
■ Vikuleg: laugardagsganga frí-
stundahópsins Hana nú í Kópavogi
verður á morgun, laugardaginn 30.
nóvember. Lagt verður af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10.00. í svartasta
skammdeginu verður molakaffi á
könnunni í upphafi göngunnar. Búið
ykkur hlýlega. Ungir og aldnir Kóp-
avogsbúar velkomnir.
Óháði söfnuðurinn
minnist Matthíasar
■ Laugardaginn 30. nóvember kl.
15.00 gengst Óháði söfnuðurinn í
Reykjavík fyrir miðdegissamkomu í
kirkju safnaðarins við Háteigsveg í
tilefni af 150 ára ártíð þjóðskáldsins
sr. Matthíasar Jochumssonar.
Dagskráin verður eftirfarandi: Ein-
leikur á orgel. Friðrik Stefánsson,
tónlistarmaður leikur.
Sr. Matthías Jochumsson. Sr.
Valdimar Hreiðarson flytur erindi
um skáldið eftir Játvarð Jökul Júl-
íusson, rithöfund. Guðmundur
Pálsson, leikari les úr verkum
skáldsins.
Einsöngur. Anna Júlíana Sveins-
dóttir, óperusöngkona, syngur við
undirleik Friðriks Stefánssonar.
í landinu helga. Hjónin og guð-
fræðingarnir Yrsa Þórðardóttir og
Carlos Ferrer segja frá ferð sinni til
fsraels og sýna litskyggnur úr ferð-
inni.
Kaffiveitingar.
Safnaðarmeðlimir sem og aðrir eru
hvattir til að koma og njóta þessarar
menningarstundar.
Stjórn óháöa safnaðarins.
Flóamarkaður
Kvenfélags Karlakórs
Reykjavíkur
■ Flóamarkaður og kökubasar
verður haldinn að Freyjugötu 14 a kl.
14.(X) laugardaginn 30. nóvember.
Mikið af góðum munum og kökum.
50 ára afmæli
slysavarna
í Mosfellssveit
í Hlégarði
■ Slysavarnadeild Lágafellssóknar
heldur hátíðlegt 50 ára afmæli sitt í
Hlégarði Mosfellssveit sunnudaginn
1. desember. Jafnframt verður hús
Björgunarsveitarinnar Kyndils vígt
og afhent Slysavarnafélagi íslands.
Kaffiveitingar verða í Hlégarði kl.
15.30-18.00.
Sunnudagsferð
F.í. á Skálafell
v/Esju
■ Á sunnudag stendur Ferðafélag
íslands fyrir gönguferð á Skálafell við
Esju (774 m) Gönguferð í skammdeg-
inu hressir og bætir líkama og sál.
Veriö hlýlega klædd, með húfu og
vettlinga. Hafið með ykkur nesti,
heitt á brúsa.
Farið verður frá Umferðarmiðstöð-
inni að austanverðu. Farmiðar við
bílinn. Frítt fyrir börn og unglinga í
fylgd með foreldrum sínurn.
Basar á Dalbraut
■ Basar verður haldinn í Þjónustu-
íbúðum aldraðra, Dalbraut 27, á
morgun, laugardaginn 30. nóv. kl.
14.00. Urval góðra muna, gott verð.
Hátíð
hestamanna í
Fák
■ Meiriháttar skemmtihátíð fyrir
hestamenn og velunnara þeirra verð-
ur haldin í nýja félagsheimili Fáks á
Víðivöllum í kvöld, föstudag 29.
nóv. Þar munu koma fram margir
góðir skemmtikraftar. Skemmtunin
byrjar kl. 20.30. Veitingar verða á
boðstólum og einnig stiginn dans.
Miðar verða scldir í félagsheimilinu.