NT - 29.11.1985, Side 17
Prinsessa í óþekktarkasti!
■ Börn eiga þaö til að ganga í
gegnum þrjóskuskeið þegar þau eru
að prófa mátt sinn og rnegin í
samskiptum við fullorðna fólkið.
Og þó aldrei nenia maður sé af
konungakyni er ástæðulaust að gera
undantekningu frá þessari reglu.
Madeleine, yngsta dóttir sænsku
konungshjónanna er einmitt að
ganga í gegnum slíkt skeið þessa
dagana, þriggja ára gömul. Hún
hefur sjálfstæðan vilja og fer sínu
fram eftir bestu getu - og eins og
venjulega stendur fullorðna fólkið á
öndinni yfir óþekktinni í stelpunni.
Það gerðist ekki alls fyrir löngu
að sú stutta lagði af stað út í heim
og eini förunauturinn var eftirlætis-
vinur hennar, tuskubangsi sem hún
skilur helst ekki við sig. í höllinni
■ Besti vinur Madeleine er tusku-
bangsi og hann tók hún með sér
þegar hún iagði af stað til að kynna
sér heiminn.
Föstudagur 29. nóvember 1985 17
varð uppi fótur og fit þegar í Ijós
kom að prinsessan sat ekki pen og
prúð á sínum stað. Leitarleiöangur
var sendur út af örkinni, en korn
tómhentur til baka. Silvia drottning
hringdi í örvæntingu í mann sinn í
vinnuna sem kom óðar heim til að
hjálpa til við leitina. Pað var elda-
buska í höllinni á leið í vinnnuna
sem fann litlu prinsessuna í eins
kílómetra fjarlægð frá heimili sínu.
Og nú fékk sú litla heldur betur
skömm í hattinn. Hún féll í hreina
ónáð. Og refsingin var af því tagi
sem jafnvel þriggja ára darna á
þrjóskuskeiði skilur. Hún fékk ekki
að fara með mömmu sinni og stóru
systkinum á mikla hestasýningu, en
þar var margt skemmtilegt að sjá og
heyra. M.a. fengu þau mamma
hennar, Victoria og Carl Philip að
sitja í glæsilegri kerru, sem dregin
var af fjórum hestum. „Madeleine
er í stofufangelsi," hvíslaði bróðir
hennar, og kannski hefur honum
ekki þótt það svo afsakplega leitt!
■ Fyrir óþekktina var Madeleine
refsað með því að fá ekki að fara
meö í hestakerrutúrinn.
HÚN GERIR
BLÓMIN
„EILÍF“!
■ Kerstin Carlsson hefur nóg að gera við að uppfylla óskir viðskiptavina
um víða veröld sem langar til að gefa blómum „eilíft líf“.
■ Það mætti halda að rósin hefði
verið skorin af stilk sínum fyrir
andartaki, en sannleikurinn er sá,
að það var gert fyrir mörgum árum.
Hér er ekki um gerviblóm að ræða
- þessi rós blómstraði á stilk sínum
eins og allar aðrar.
Pað er Kerstin Carlsson, sænsk 37
ára gömul kona sem býr í grennd
við Gautaborg, sem á heiðurinn af
þessu „kraftaverki“. Faðir hennar,
uppfinningamaður og mikill blóma-
aðdáandi, eyddi löngurn tíma og
hugviti í að finna aðferð til að ganga
þannig frá afskornum blómum að
þau héldu frísklegu útliti sínu árum
saman, og Kerstin hefur endurbætt
aðferð föður síns.
Kerstin hefur fengist við mörg
verkefni urn dagana. Stöku sinnum
berast henni í hraðpósti brúðar-
vendir sem hún er beðin að ganga
þannig frá, að á silfurbrúðkaupinu
séu þeir eins og á sjálfan brúðkaups-
daginn. Fyrir slíkt viðvik tekur hún
að launum sem svarar 15.000 ísl. kr.
Og henni hafa verið boðnar himinhá-
ar fjárfúlgur fyrir einkaréttinn á
þessari aðferð til að gera blómin
„eilíf“. Þeim tilboðum hefur hún
neitað staðfastlega og segir að
krakkarnir hennar eigi eftir að erfa
leyndarmálið.
Kerstin hefur gert blómaskreyt-
ingar sem finna má í glerskápum í
náttúrufræðisöfnum um víða
veröld. Þar má m.a. finna margar
jurtategundir sem nú orðið eru í
mikilli útrýmingarhættu og væri í
framtíðinni sennilega ekki að finna
nema á myndum hefði kunnáttu
Kerstin Carlson ekki notið við.
Varðveisla og efling
íslenskrar tungu
Menntamálaráðherra boðar til ráðstefnu um varðveislu og
eflingu íslenskrar tungu, sunnudaginn 1. desember nk.
Ráðstefnan verður haldin í Þjóðleikhúsinu og hefst kl.
14.00.
Allir þeir sem vilja stuðla að varðveislu og eflingu tungunnar eru
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Notaðar búvélar til sölu
ZETOR 3511 40 hö.
I.H. 444 45 hö.ekinn1000vst.
URSUS C362 65 hö.ekinn 250 vst.
URSUS C362 65 hö.ekinn 360 vst.
URSUS C360 60 hö.
URSUS C1004 100hö.4WD- 1000 vst,
IMT. 540 47 hö.
WELGER heyhleðsluvagn 24m3
CARBONI fjölhnífavagn með 32 hnífum,
2hásinga
DUKS baggatína
BRITIS LALY sláttuþyrla 165
NEW HOLLAND 841 rúllubindivél
árg. 1973, verð 45.000.-
árg. 1977, verð 135.000.-
árg. 1981, verð 115.000.-
árg. 1984, verð 160.000.-
árg. 1977, verð 60.000.-
árg. 1982, verð 300.000.-
árg. 1983, verð 180.000.-
árg. 1978, verð 100.000.-
árg. 1984, verð 300.000.-
árg. 1984, verð 45.000.-
árg. 1982, verð 18.000.-
árg. 1983, verð 280.000.-
Bútækni hf. Sími 686655/686680