NT


NT - 29.11.1985, Síða 23

NT - 29.11.1985, Síða 23
Stór-getraun í þættinum Léttir sprettir hringja inn svör við spurningu og eru verðlaun 500 kr. vöruút- tekt hjá Sportvöruversluninni Spörtu. Sá sem svarar rétt getur lagt 500 krónurnar undir og unnið 500 krónur að auki svari hann annarri spurningu rétt. Svari hann enn rétt fær hann möguleika á að bæta við enn einum 500 krónum og unnið sér inn 1500 krónur. í aðalhluta getraunarinnar verða lagðar 10 spurningar fyr- ir hlustendur á svipaðan hátt og verið hefur hingað til og þeir senda síðan lausnir til Rásar 2. Dregin verða út verð- laun fyrir hverja spurningu og eru það vörur frá Austur- bakka, t.d. Nike íþróttaskór, Charlton badmintonspaði, fót- boltaro.s.frv. Vinningar þessir eru að verðmæti 25.000 kr. Loks verður lögð fyrir hiust- endur spurning í nokkrum liðum, sem þeir svara einnig skriflega. Peir einir koma til greina sem vinningshafar sem einnig svöruðu öllum spurn- ingunum 10 í aðalhlutanum rétt. Verðlaun verða dúnjakki frá Don Cano, en þess má geta að þetta er fyrsti jakkinn þess- arar tegundar sem framleiddur er hérlendis. Heildarverðmæti vinninga er 40-45.000 krónur. Frá tónskáldum ■ Atli Heimir kynnir Árna Björnsson _ í þættinum Frá tónskáld- tm, í útvarpinu í kvöld, ætlar \tli Heimir Sveinsson stjórn- mdi þáttarins, að kynna tón- ;káldið Árna Björnsson, sem :r eitt elsta íslenska tónskáldið tg verður hann áttræður á jessu ári. Spiluð verða tvö verk eftir ^rna, Rómanza fyrir fiðlu og píanó sem flutt verður í hljóm- sveitarbúningi síðar í vetur hjá Sinfóníuhljómsveit íslands, þá mun Guðný Guðmundsdóttir spila á fiðlu. Hitt verkið sem spilað verður í þættinum, er hljómsveitarverk frá 1940, eitt af þeim fyrstu stóru verkum sem samin voru hér á landi. Heitir það „Á krossgötum“. Árni Björnsson starfaði mikið á fyrstu árum Sinfóníu- hljómsveitarinnar, spilaði á flautu og píanó, auk þess sem hann var mjög afkastamikið tónskáld, en eftir hann liggur nú fjöldi sönglaga, kórlaga, lúðrasveitalaga og margskonar tónverka. ■ Undanfarna mánuði hefur verið efnt til getraunaleiks í þættinum Léttir spretti á Rás 2 þar sem leitað hefur verið svara við spurningum um íþróttir og íþróttamenn. Þátt- taka í getrauninni hefur verið mjög góð og hafa borist inilli 250 og 450 svör vikulega. Nú er í ráði að hætta get- raunaleiknum í desember. Af því tilefni verður efni til stór- getraunar í síðasta þætti Léttra spretta í þessum mánuði, þ.e. í dag. í upphitun fyrir getraunina verður hlustendum boðið að ■ Goldie Hawn og Warren Beatty í hlutverkum Jill og George, í myndinni Lokkalöður. Útvarp kl. 21.30: Sjónvarp kl. 23.10: Lokkalöður - bandarísk bíómynd ■ Lokkalöður (Shampoo), heitir bandarísk bíómynd frá árinu 1975, sem sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 23.10. Leikstjóri er Hal Ashby, en með aðalhlutverk fara Warren Beatty, Julie Christie, Goldie Hawn og Jack Warden. Myndin fjallar um hár- greiðslumanninn og kvenna- gullið George sem rekur vin- sæla hárgreiðslustofu í Holly- wood. Hann vefur konum um fingur sér án þess að meina nokkuð með því eða festa sig við nokkra þeirra. Jill er ein þeirra sem elskar hann út af lífinu ogsnýst myndin m.a. um ástarsamband þeirra og flókin samskipti, eins og við er að búast þegar kvennabósi á í hlut. Pýðandi er Kristmann Eiðs- son. ■ Eins og sjá má verða veglegir vinningar í getrauninni í þættinum Léttir sprettir kl. 16.00 í dag. Rás 2, kl. 16. Föstudagur 29. nóvember 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn 7.15 Morgunvaktin 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna „Elvis, Elvis“ eftir Mariu Gripe. Sigur- laug M. Jónasdóttir les þýöingu Torfeyjar Steinsdóttur. (2) 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál Endurtekinn þátt- ur frá kvöldinu áður í umsjá Sigurð- ar G. Tómassonar. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Lesið úr forustugreinum dag- blaðanna. 10.40 „Sögusteinn" Umsjón: Har- aldur I. Haraldsson. (Frá Akureyri). 11.10 Málefni aldraðra Umsjón: Þórir S. Guðbergsson. 11.25 Morguntónleikar 'Fiðlusónata i G-dúr eftir Guillaume Lekeu. Arthur Grumiaux og Dinorah Varsi leika. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 14.00 Miðdegissagan: „Sögur úr lífi mínu“ eftir Sven B.F. Jans- son Þorleifur Hauksson les eigin þýöingu (5). 14.30 Sveiflur -Sverrir Páll Erlends- son. (Frá Akureyri). 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar 17.00 Helgarútvarp barnanna Stjórnandi: Vernharður Linnet. 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir 19.35 Tilkynningar 19.45 Þingmál Umsjón Atli Rúnar Halldórsson. 19.55 Daglegt mál Margrét Jónsdótt- ir flytur þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Viðtalsþáttur Pétur Pétursson ræðir við séra Einar Guðnason í Reykholti. b. Mannheimar Jóhannes Hann- esson les úr samnefndri Ijóðabók eftir Heiðrek Guðmundsson. c. Kórsöngur Árnesingakórinn syngur undir stjórn Lotts S. Lofts- sonar. d. Endurminningar frá Eiðum Torfi Jónsson les frásögn eftir Eirík Stefánsson kennara. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir Sveinsson kynnir Árna Björnsson. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags- ins. 22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. 22.25 Kvöldtónleikar a. „Fiðrildið", balletttónlist eftir Jacques Offen- bach. Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur. Richard Bonynge stjórnar. b. Lög eftir Stephen Foster. Mor- mónakórinn í Utah syngur. Ric- hard P. Condie stjórnar. 22.55 Svipmynd Þáttur Jónasar Jón- assonar. (Frá Akureyri). 24.00 Fréttir. 00.05 Djassþáttur - Jón Múli Árna- son. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00. Föstudagur 29. nóvember 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn- endur: Ásgeir Tómasson og Páll Þorsteinsson Hlé. 14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir 16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórn- andi: Jón Ólafsson Þriggja minútna fréttir sagðar klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00 Hlé 20.00-21.00 Hljóðdósin Stjórnandi: Þórarinn Stefánsson. 21.00-22.00 Djassspjall Stjórnandi: Vernharður Linnet. 22.00-23.00 Rokkrásin Stjórnendur: Snorri Már Skúlason og Skúli Helgason. 23.00-03.00 Næturvaktin Stjórnend- ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir Ástvaldsson Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar 1. 17.00-18.00 Ríkisútvarpið á Akur- eyri - svæðisútvarp. Föstudagur 29. nóvember 19.15 Á döfinni Umsjónarmaöur Karl Sigtryggsson. 19.25 Jobbi kemst i klipu Fjórði þáttur. Sænskur barnamynda- flokkur i fimm þáttum um sex ára dreng og tuskudýrið hans. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvis- ion - Sænska sjónvarpiö). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.45 Þingsjá Umsjónarmaður Páll Magnússon. 20.55 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður: Einar Örn Stefánsson. 21.30 Ljósið Finnskurlátbragðsleikur með Ulla Uotinen. (Nordvision - Finnska sjónvarpið). 22.05 Derrick Sjöundi þáttur Þýskur sakamálamyndaflokkur. Aðalhlut- verk: Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýðandi Veturliöi Guðna- son. 23.10 Lokkalöður (Shampoo) Bandarísk biómynd frá 1975. Leik- stjóri Hal Ashby. Aðalhlutverk: Warren Beatty, Julie Christie, Goldie Hawn og Jack Warden. Myndin er um hárgreiðslumann einn og kvennagull í Hollywood og flókin samskipti hans við veikara kyniö i starfi og leik. Þýðandi: Kristmann Eiðsson. 01.00 Fréttir í dagskrárlok. Föstudagur 29. nóvember 1985 23 Þjófurinn og fórnarlambið Thief of Hearts ■ Aðalhlutverk: Steven Ba- uer, Barbara Williams, John Gertz. Handrit og leikstjórn: Douglas Day Stewart. Tónlist: Harold Faltermeyer. Lengd: 106 mínútur Bandaríkin, 1984 Bönnuð yngri en 16 ára Douglas Day Stewart notaði sannarlega ímyndunaraflið þegar hann skrifaði og leik- stýrði Thief of Hearts. Stewart, sem einnig samdi handrit að myndunum An Off- icer and a Gentleman og Blue Lagoon, gefur gamalli sögu um atvinnuþjófa nýjan búning og þokka. Thief of Hearts hefst á því að atvinnuþjófurinn Scott Muller (Steven Bauer) brýst inn á heimili barnabókahöfundarins Ray Davis (John Gertz). Hann hefur á brott með sér þýfi að verðmæti 100.000 dollara og dagbækur húsmóðurinnar, Mickey Davis (Barbara Williams), sem innihalda leyndustu hugsanir og kynóra hennar. Scott les bækurnar og verður hugfanginn af dagdraumum konunnar, svo hugfanginn að jaðrar við þráhyggju. Scott einsetur sér að ná ástum Mickeyar. Hann gerir sér upp ríkidæmi og leggur í hann. Mickey verður ástfanginn af hinuni glæsilega en dularfulla manni, sem virðist þekkja leyndarmál hennar betur en eiginmað- urinn. ★★★ ■ Þjófurínn og fórnarlambið á góðrí stund (Barbara Williams og Steven Bauer). Persónur þessa ástarþríhyrnings eru dæmalaust vel úr garði gerðar. Barbara Williams er óvenjuleg og heillandi leikkona. Hún ljær Mickey dýpt og túlkar sálarflækjur hennar á eftirminni- legan hátt. John Gertz er einniggóður í hlutverki hins eigingjarna barnabókarhöfundar sem lifir og hrærist í sínum eigin hugarheimi og tekur vart eftir konu sinni. En hún er haldreipið við umheiminn og eina persónan í lífi hans sem hann hefur ekki sjálfur búið til. Steven Bauer er sjálfskipaður í hlutverk hins myndarlega glæpamanns, sem kaupir sér aðgang að millistéttinni og að hjarta konunnar. Ekki má gleyma hinni afgerandi persónu Buddy, sem leikinn er af David Caruso. Buddy er félagi Scotts á glæpabrautinni, eiturlyfjasjúklingur, sem er að missa tökin á raunveruleikanum. Hér sannast að Caruso er stórbrotinn leikari. Erótíkin í Thief of Hearts liggur í spennu eltingarleiksins og þeirri staðreynd að ástarsambandið er forboðið. Henni er viðhaldið allt til loka myndarinnar með góðri hjálp tæknivinnu og tónlistar Harolds Faltermeyer. Einn af höfuðgöllum myndarinnar er að Mickey áttar sig ekki strax á að Scott er þjófurinn. Hún er öll á iði við tilhugsunina um að ókunnur maður lesi dagbækurnar hennar, samt grunar hana ekki Scott þó hann endurskapi kynórana fyrir augum hennar. Endirinn er klaufalegur og verður ekki tíundaður hér. Líklega hefur hugmynd Stewarts dáið út og honum hefur legið á að ljúka myndinni af. En Thief of Hearts býður upp á húmor, rómantík, spennu og erótík í hæfilegum hlutföllum og í heildina er hún afbragðsgóð. ■ David Caruso og Stevcn Bauer í hlutverkum sínum í Thief of Hearts.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.