NT - 29.11.1985, Síða 24
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT ?
HRINGDU ÞÁ fi SÍMA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til
fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495
Rauði krossinn vinnur
mál fyrir Hæstarétti
- Óskyitaðgreiðaverðbæturálífeyrissjóðsgreiðslurfyrirárið 1965
Rauði kross íslands þarf
ekki að taka þátt í að greiða
verðbætur á lífeyri sem Lífeyris-
sjóður hjúkrunarkvenna hefur
greitt hjúkrunarkonum sem
störfuðu hjá Rauða krossinum
áður en lög um lífeyrissjóði
voru sett árið 1965 þar sem
kveðið var á um verðtryggingu
lífeyrissjóðsréttinda. Þetta var
niðurstaða Hæstaréttar í máli
sem Lífeyrissjóður hjúkrunar-
kvenna höfðaði á hendur Rauða
krossinum.
Um er að ræða fimm konur
sem unnu í þjónustu Rauða
krossins á árunum 1929 til 1956.
Rauði krossinn greiddi í lífeyris-
sjóðinn meðan konurnar störf-
uðu þar en þær fengu síðan
lífeyrisgreiðslur úrsjóðnum allt
frá sjöunda áratugnum.
Þegar Rauði krossinn neitaði
að taka þátt í að greiða verðbæt-
ur á lífeyri þessara hjúkrunar-
kvenna höfðaði Lífeyrissjóður
hjúkrunarkvenna mál. Rauði
krossinn var sýknaður í undir-
rétti og nú einnig í Hæstarétti.
í dómsorðum segir m.a.:
„Þeir sem réðu málefnum
Rauða krossins, þegar (hjúkr-
unarkonan) var í þjónustu fé-
lagsins, gátu ekki séð fyrir eða
haft ástæðu til að búast við að
félagið þyrfti einhvern tíma síð-
ar að greiða kostnað vegna
uppbótar í lífeyri liennar af
völdum verðlagsþróunar í land-
inu. Þvert á móti máttu þeir
gera ráð fyrir að greiðsLum væri
lokið.“
14'PcforÁtt'jrrlnmorornir
Magnús Þ. Torfason, Björn
Sveinbjörnsson, Guðmundur
Skaftason, Magnús Thoroddsen
og Þór Vilhjálmsson dæmdu í
málinu. GuðmundurogMagnús
Torfason skiluðu sératkvæði þar
sem þeir lýstu sig sammála
niðurstöðu meirihlutans en á
þeim forsendum að: „Það er þó
lögskýringaratriði aðnýjum lög-
um verði ekki beitt afturvirkt
þjóðfélagsþegnum'til óhagræðis
ef lögin mæla ekki fyrir um
annað.“
Samkomulag milli
björgunarsveita:
Sameiginleg
leitarstjórn
■ Landssamband flug-
björgunarsveita, Lands-
samband Hjálparsveita
skáta og Slysavarnafélag ís-
lands undirrituðu í gær sam-
komulag um leit og björgun
á. landi. Samningurinn var
undirritaður af fulltrúum fé-
laganna f' ráðherra-
bústaðnum í Tjarnargötu
urn hádegi í gær.
Viðstaddir undirritunina
voru fulltrúar allra þeirra
embætta sem hafa með
komulagið felur m.a. í sér
að þar sem fleiri en ein sveit
er starfandi, skal skipuð
sameiginiega leitarstjórn
þegar um fjölsveitaaðgerðir
er að ræða. Þetta á ekki við
þcgar einungis cín sveit er
til staðar á landssvæðinu,
þá stjórna fulltrúar þeirrar
sveitar leitinni.
Samkomulag þetta hefur
verið til athugunar hjá fé-
lögunum í nokkurn tíma,
en undirskrift dregist þar til
■ Undirskriftin. Frá vinstri: Einar Gunnarsson form. Landssambands flugbjörgunarsveita, Haraldur Henrýsson forseti SVFI og Tryggvi
Páll Friðriksson formaður L.H.S.
Fyrir aftan þá standa frá vinstri: Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Almannavarna, Pétur Einarsson flugmálastjóri, Jón Helgason
dómsmálaráðherra, Gunnar Bergsteinsson forstjóri Landhelgisgæslunnar og YVilliam Möller aðalfulltrúi lögreglustjóra. NT-mynd: Róbcri
Sölumiðstöðin kaupir
Brekkes Idt í Hull:
Staðan styrkist á
Bretlandsmarkaði
■ Icelandic Freezing Plants
Itd., dótturfyrirtaíki Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í
Bretlandi, mun íesta kaup á
einu elsta og þekktasta fisk-
sölufyrirtæki Bretlands,
Brekkes Itd. í Hull, ásamt
þremur dótturfyrirtækjum
þess.
Endanlegt kaupverð liggur
enn ekki fyrir, en búist er við
að yfirtaka eigi sér stað um
næstu áramót.
Með yfirtöku S.H. á
Brekkes, mun staða Sölumið-
stöðvarinnar styrkjast mjög á
Bretlandsmarkaði, þar sem
Brekkes hefur víðtæk við-
skiptasambönd og hefur í ára-
tugi verið með stærri kaupend-
um þar í landi á íslenskum
freðfiski. Einnig mun með
þéssum kaupum skapast að-
staða fyrir S.H. í Bretlandi
varðandi ferskfiskútflutning
en Brekkes gctur tekið á móti
og annast sölu á uppboðs-
mörkuðum sem venjulegur
umboðsaðili.
Brekkes hefur yfir að ráða
20 sölumönnum með langa
reynslu í fisksölumálum ogi
þekkingu á breska fiskmar-
kaðnum, ekki hvað síst á sölu
og dreifingu á fiski úr frysti-
togurum. Heildarstarfs-
mannafjöldi Brekkes og dótt-
urfyrirtækjanna þriggja er um
100 manns en framkvæmda-
stjóri Icelandic Freezing
Plants Itd. er Ólafur Guð-
mundsson.
Hafnarfjörður:
Apríl varð
að Víði HF
■ Togarinn Víðir HF-
201, sem þar til í fyrradag
hét Apríl HF-347, fór á
veiðar í fyrrakvöld. Skipið
sem fylgdi með í kaupum
Hvaleyrarinnar hf á
Bæjarútgerð Hafnarfjarð-
ar hefur að mestu íegið
óhreyft við bryggju síðan
í fyrrasumar.
Talið hefur verið að
skipið þarfnaðist lagfær-
ingar, en af þeim hefur
ekki orðið ennþá, og sagði
Þorsteinn Már Baldvins-
son hjá Hvaleyrinni í sam-
tali við NT að með því að
senda skipið á veiðar væri
verið að reyna að tryggja
frystihúsinu hráefni og þar
með að halda því í rekstri.
Þorsteinn sagði að skipið
hefði fengið haffærnisskírt-
eini og að það fullnægði
þeim kröfum sem Sigl-
ingamálastofnun hefði
gert.
Lítið hefur verið gert
fyrir skipið og sagði Þor-
steinn að lokum að það
yrði að koma í Ijós hvernig
gengi.
Samdráttur hjá Landsvirkjun:
Verkfræðistofur
missa verkefni
Uppsagnir hjá verkf ræði- og byggingardeild kannaðar
■ Landsvirkjun hcfur fellt
niður allar fjárveitingar á næsta
ári til sjálfstæðra verkfræði-
stofa, sem hafa verið með ein-
stök hönnunarverkefni í gangi
fyrir fyrirtækið, einsog Fljóts-
dalsvirkjun, Búrfell tvö, Vatns-
fellsvirkjun ogSultartangavirkj-
un. Þetta er gert til að mæta
samdrættinum í virkjanafram-
kvæmdum.
Á stjórnarfundi Landsvirkj-
unar í gær var lögð fram hag-
ræðingarskýrsla, sem hefur ver-
,ið unnið að að undanförnu.
Kristján Benediktsson, stjórn-
armaður í Landsvirkjun er í
undirnefnd sem ætlað er að
skoða skýrsluna rnilli funda.
Hann sagði við NT í gær, að eitt
af vandamálum Landsvirkjunar
núna væri að á vegum fyrirtækis-
ins væru 30 manns starfandi hjá
verkfræði, byggingar- og þróun-
ardeild fyrirtækisins. Sagði
hann að það væri augljóst að
Landsvirkjun hefur ekki þörf
fyrir svona öflugan rekstur á
meðan engar framkvæmdir
væru í gangi.
Nú er talið nokkuð augljóst
að Blöndu verði frestað form-
lega upp úr áramótum til 1990
og jafnvel kemur til greina að
fresta virkjuninni til 1991.
Sfjórn fyrirtækisins er því að
skoða það hvernig best er að
draga saman seglin. Engin
endanleg ákvörðun hefur verið
tekin enn heldur mun það skýr-
ast á næsta stjórnarfundi.
Dræmt
w
a
loðnunni
■ Frekar dræm loðnu- j
veiði var síðasta sólar-
hring en í eftirmiðdaginn í
gær höfðu .12 bátar til-
kynnt um samtals 6.900 I
tonna afla. Það hvessti á
miðunum í fyrrakvöld og
því fóru bátar í land með
minna en annars hefði |
orðið. í birtingu í gær-
morgun hafði veður skán-
að og fengu nokkrir bátar I
þá ágætis köst. Bátarnirl
halda sig að mestu á sama I
svæði og undanfarnarl
víkur, norð-austur af|
Horni.