NT - 01.12.1985, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 1. desember NT
Vísnaþáttur
Björn frá Sléttu flutti til Ameríku, þar
var mormónaprestur er reyndi mjög
aö fá Björn til aö gerast mormóni,
það vildi Björn ekki og reyndi aö
kveöa prest af sér.
Leggðu mér ekki hlekki um háls
hjarða gættu þinna.
Þvi ég vil Guði færa frjáls
fórnir bæna minna.
Ekki lét prestur sér segjast og Björn
kvað.
Við skulum ekki tala um trú
taktu því eins og gengur
Andskotinn er eins og þú
allra besti drengur.
Og hér kemur síðasta visa Björns í
bili.
Lífsins glima liðiner |
léttir stími nauða
Best er í tima að sjá að sér
syrtir af grimu dauða.
Hér kemur svo ein gömul v;sa sem
ég veit ekki höfund aö.
Ragnheiður með rjóða kinn
rífst hún oft við bónda sinn.
Ætlar að rifa af honum skinn
er það Ijöti várgurinn.
Næstu vísur eru eftir Eystein Gisla-
son í Skáleyjum fyrsta visan heitir
Forystugrein.
Skjótum allar ær og kýr
enda bættur skaðinn
Snikju-mein- og möppudýr
mætti rækta i staðinn. .
Hagræðing.
Seinlegt er að yrkja Ijóð
álag veldur tjóni
Tölvuvæðing væri góð
i visnagerð á Fróni.
: Haust
Hallar sumri haustar að
. herðir tökin reiður Kári
En til hvers er að þusa um það
þetta er svona á hverju ári.
Haustkyrrð
Kríur flognar, fjöllin grá
fölnuð bogna strá og detta
Bliðalognið brosir á
bæjarvognum rennislétta.
Er umsjónarmaður þáttarins las
ein af af greinum Baldurs Hermanns-
sonar varö þessi til.
Með lítið vit og litla sál
hann lýði svekkir.
Þvi skrif hans fjalla mest um mál
sem minnst hann þekkir.
Jósep Jónsson bóndi á Melum í
Hrútafirði um og uppúr síðustu alda-
mótum orti eftirfarandi hestavísur.
Aldrei skeikar fótum fram
fögrum eyk i halla, gjám,
stikar Bleikur bryddum tám,
bregður á leik i klungri og gjám.
Og hér kemur sléttubandavisa eftir
Jósep.
Ljómi blakar storðarstein
stiklar klakan bláa.
Rómi vakran hófa-hrein
hrannarþakið gljáa.
Stefán Eyjólfsson frá Efri-Brunná í
Dalasýslu orti um mann er mikið vildi
láta á sér bera, einkum með ræðu-
höldum.
Steinn þótt tali æði oft
og einnig visur riti.
Sjaldan útum klúran kvoft
kemur neitt af viti.
Stefán Jóhannesson
Kleifum
371 Dalasýslu.
Sími 93-4772
TEKUR TIL STARFA
Ágæti, nýtt fyrirtæki sem annast mun heildsölu á innlendum og innfluttum
matiurtum hefur starfsemi sína nú um mánaðamótin.
Markmið okkar er einfalt-að auka ágæti og úrval grænmetis á íslenskum markaði!
Með það að leiðar[jósi vonumst við til að geta átt gott samstarf við I
framleiðendur, verslunarmenn og neytendur í framtíðinni. f
i
FRA HOL
HAFÐU ALLTAF ANNAN PAKKA VIÐ HENDINA
ÞVÍ HOLTAKEX HVERFUR EINS OG DÖGG FYRIR SÓLU
KEXVERKSMIÐJAN HOLT
REVKJAVlK SiMI 81266
ÉKBKBBDMMMHHHBMMMÉÉflHllMBBMnkBÉBÉMBHHBHBHMBMnUMBHHBMMMHÉBHIflBBMflBBÉMHMMMÍHttlMÉMHÉBHBÍI