NT - 01.12.1985, Blaðsíða 14
t«» V/ i 5 v \ I ' "A ' * < / »*» f <*.* -V-Ii^v.*** aíijrMy» •»-■»% , . v. •• ^ "affwfgyfff" xsœ*
Sunnudagur 1. desember
Glæsimeyjar í glæsilegum náttkjólum frá Glæsimeyjunni Glæsibæ. Og það
er stiginn dans áður en þær smeygja sér í bólið. Glæsilegt ekki satt.
Þetta er ekki mynd úr Bugsy Mallone heldur af þeim Daníel, Halli Erni, Helenu
og Hildigunni í fötum frá Öndum og höndum.
Það er í tísku að vera í líkamsrækt og því hefur tískan haldið innreið sína þangað. Eva tekur létta æfingu undir
stjörnubjörtum himni.
ALLT LEYFILEGT
í\0WK<A YV^
Grátt og elegant fyrir konur á öllum aldri frá Verðlistanum. Sígildur enskur
stíll sem hentar íslenskum aðstæðum.
Sif Huld t litrlkri satindragt frá First. Glæsilegur kvöldklæðnaður fyrir sannar
dömur og til vinstri má sjá Steinunni í dragt frá First og blússan er úr satini. En
satin er í tísku ef einhver er í vafa.
Og börnin verða að tolla i tiskunni Ifka. Helen, Gunnur, Berglind og Katrín í
fötum frá Öndum og höndum.
í síðustu viku héldu Módel-
samtökin sína árlegu uppskeruhátíð
og sýndu okkur vetrartískuna frá
nokkrum verslunum og framleið-
endum.
Ljósmyndari NT, Sverrir Vilhelms-
son, brá sér uppí Broadway og festi
nokkur af atriðum sýningarinnar á
filmu og sést árangurinn hértil hliðar.
Óþarft er að fara mörgum orðum
um klæðnaðinn og vænni kostur að
láta myndirnar tala. En skylt er að
geta þess að Bára Kemp lagði hár
sýningarfólksins og þær Ellen Helena
og Kolfinna Knútsdóttir snyrtu það.
Skartgripirnir sem sýningarfólkið ber
eru frá Hermanni Jónssyni gullsmið
og þó þeir líti glæsilega út og virðist
ekta gull og gersemar er ekki svo
heldur er hér um einkar vandaðar
eftirlíkingar að ræða. Svo nú getur
fólk slegið um sig án þess að hafa
efni á því.
Yfirumsjón með sýningunni hafði
Unnur Arngrímsdóttir og henni til
aðstoðar við leikstjórn var Inga
Hrönn.
En einhvernveginn svona á að
klæða sig um jólin.
; v %. * % >•-. x .**?%, **
V. - ... ; 5 •, , V T •