NT


NT - 03.12.1985, Side 1

NT - 03.12.1985, Side 1
Eldur í fjölbýlishúsi við Laugarnesveg Mikið tjón af völdum reyks - fjórir fluttir á slysadeild ■ Mikill reykur var í stiga- gangi hússins að Laugarnesvegi 37 þegar Slökkvilið Reykjavík- ur var kallað þangað skömmu eftir miðnætti, aðfaranótt sunnudagsins. I ljós kom að kviknað hafði í geymslu í kjallara hússins og hafði eldurinn komist í íbúð á annarri hæð. Var íbúum scm í hættu voru eldsins vegna hjálp- að niður stiga, þremur af annarri hæð og einum af fyrstu hæð. Reykkafarar fóru strax inn í húsið og eftir að hafa komist að geymslunni sem í logaði, með því að fara inn um glugga í kjallara og á fyrstu hæð, tókst þeim að ráða niður- lögum eldsins. Þrír íbúar ásamt einum lög- reglumanni voru fluttir á slysa- deild vegna gruns um reykeitr- un, en svo var ekki og fengu þeir að fara heim daginn eftir. Stigagangurinn og geymslu- húsnæðið í húsinum eru mjög illa farin af völdum elds og reyks, sérstaklega olli reykurinn miklu tjóni. Verið er að rannsaka elds- upptök, en þau eru enn ókunn. ■ Fjórum íbúum var bjargað með stíga af svölum, á meðan eldurinn logaði, en ekki urðu slys á mönnum. NT-mynd: Sverrir. NEWS SUMMARYIN ENGUSH SEEP.6 Fullkomið rán var 400 milljóna virði Paris-Reuter. ■ Vopnaðir ræningjar stálu 70 milljónum franka (tæplega 400 milljónum ísl. króna) frá fyrir- tæki sem sér um að flytja pen- inga fyrir banka og önnur fyrir- tæki í París. Ránið var framið af næstum vísindalegri nákvæmni og uppskeran var einn mesti ránsfengur í reiðufé sem um getur í Frakklandi. Að sögn lögreglu réðust ræningjarnir fyrst inn á heimili tveggja stafsmanna fyrirtækis- ins, vopnaðir rifflum og marg- hleypum og neyddu þá til að aka til skrifstofuhúsnæðis fyrir- tækisins og opna þar geymslu- hólf. Á meðan héldu aðrir með- limir glæpaflokksins eiginkon- um starfsmannanna tveggja í gíslingu. Þegar peningarnir höfðu ver- ið hreinsaðir út úr hólfinu, nokkmm klukkstundum síðar, var gíslunum sleppt. Lögreglan telur að ránið hafi verið framið með hjálp úr fyrir- tækinu. Ránið var vel skipulagt og framið og lögreglan hefur á litlu að byggja, getur ekki einu sinni sagt til um hve rnargir voru í ræningjahópnum. Útför Jóns Kjartanssonar ■ Jón Kjartansson, for- stjóri Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins, sem bráð- kvaddur varð á heimili sonar síns í Hamborg, verður jarð- sunginn frá Háteigskirkju í Reykjavík í dag. Athöfnin hefst klukkan þrettán þrjátíu. Útförina munu annast þeir séra Ólafur Skúlason vígslu- biskup og séra Tómas Sveins- son sóknarprestur. Jóns er minnst á bls. 10-12 í dag. Jólaljósin lýsa ■ Austurstræti í Reykjavík er nú oröiö uppljómað af jólaljósum en unnið var að því í alla fyrrinótt að koma upp jólaskreytingunum hefðbundnu yfir götuna. Þessi mynd var tekin þegar verið var að ganga frá jólaskreytingunum, en nánar er sagt frá komandi jólaös á bls. 3. NT-mynd Sverrir. Frumvarp á Alþingi: Enga alþingismenn í bankaráð ríkisbanka ■ Guðmundur Einarsson þingmaður BJ hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að lögum um viðskiptabanka verði breytt á þann veg að viðskiptaráðherra skípi banka- ráð ríkisviðskiptabankanna og að honum sé ekki heimilt að skipa alþingismenn í þau. Eins og málum er nú háttað kýs Alþingi fulltrúa í fyrrnefnd bankaráð og margir þeirra eru og hafa verið alþingismenn. í greinargerð að frumvarpinu segir m.a.: „Seta alþingismanna og annarra fulltrúa þingflokka í bankaráðum hefur verið rök- studd þannig að þinginu sé nauðsyn á beinu eftirliti með starfi bankanna og á þennan hátt fáist milliliðalaus aðgangur að upplýsingum. Þessi staðhæf- ■ing er fróðleg nú í ljósi Haf- skipsmálsins því að bankaráð Útvegsbankans hefurekkert að- hafst til að upplýsa þingmenn í þessu máli. Það litla sem þeir vita, er að þakka duglegum blaðamönnum. Bankaráðs- menn þessa banka þögðu í júní s.l. þegar spurt var á Alþingi um áhættu Útvegsbankans vegna Hafskíps. Ekki er heldur svo að sjá að þeir hafi upplýst flokks- systkini sín í trúnaði á þing- flokksfundum því að þingmenn allra flokka krefjast nú upplýs- inga í þessu máli. Niðurstaðan virðist sú að fulltrúar þingflokk- anna í stjórnum og ráðum koma í veg fyrir eðlilegt aðhald flokks- systkina sinna á Alþingi vegna þess að þeir mynda skjaldborg og verjast utanaðkomandi eftir- liti í stað þess að opna ráðin og stjórnirnar í upplýsingaskyni. U m þetta höfum við fleiri dæmi. Það voru t.d. ekki bankaráðs- menn sem sögðu frá því hvaða reglur giltu um bílafríðindi né heldur um lífeyrismál banka- stjóra ríkisbankanna."

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.