NT - 03.12.1985, Page 3
fff? Þriðjudagur 3. desember 1985 3
uJJ Fréttir
Afnám vísitölubindingar á skammtímabankalánum:
Fjármálaráðherra tekur
undir sjónarmið framsóknar
- sagði AlexanderStefánssonfélagsmálaráðherra
i
Af þingi
Fyrir-
spurnir
■ Eftirfarandi fyrirspurnir hafa
verið lagðar fram á Alþingi:
Lánsfjárfyrirheit vegna kaupa á
togaranum Má er efni fyrirspurnar
frá Eiði Guðnasyni.
Kaup á Dauphin-þyrluLandhelgis
gæslunnar er efni fyrirspurnar sem
Guðrún Helgadóttir hefur lagt
fram.
Upptaka ólöglegs sjávarafla er
efni fyrirspurnar sem Skúli Alex-
andersson stendur að.
■ „Ég fagna því að núverandi
fjármálaráðherra taki undir það sjón-
armið okkar framsóknarmanna að
það beri að fella niður verðtryggingu
á lánum sem veitt eru til skemmri
tíma. Ég hef hvað eftir annað lagt til
að lán upp að fimm árum verði utan
lánskjaravísitölu," sagði Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra í sam-
tali við NT. „Þáð er eðlilegra að þessi
skammtímalán verði sett undir for-
vaxtakjörin. Menn hafa lengi rætt
slíka ráðstöfun en það hefur aldrei
náð fram að ganga.“
Tillaga Þorsteins Pálssonar fjár-
málaráðherra um afnám vísitölubind-
ingar skammtímabankalána mun
væntanlega verða lögð fyrir ríkis-
stjórnina í dag. Umfjöllun um hag
byggjenda og kaupenda íbúðarhús-
næðis hefur leitt í ljós að það eru fyrst
og fremst slík lán sem valda greiðslu-
erfiðleikum um þessar mundir.
„Framkvæmd þessarar breytingar
mun að sjáifsögðu ekki verða vand-
ræðalaus. Það þarf að samræma með-
ferð vaxta svo eitthvað sé nefnt.
Miðað við lýsingar sem maður hefur
heyrt er ljóst að meðferð á þessum
verðbótaþætti er misjöfn í þjóðfélag-
inu og ýmsir samningar eru með-
höndlaðir þannig í skjóli verðtrygg-
ingar að vafasamt getur talist," sagði
Alexander. „Ef breyta á notkun láns-
kjaravísitölunnar verður auðvitað að
setja um það ákveðnar reglur en það
yrði jákvætt spor ef þetta yrði hvati til
heildarendurskoðunar á notkun
hennar. Ég vil þó taka fram að allt tal
um að taka lánskjaravísitöluna úr
sambandi í heild sinni hlýtur að
miðast við stórkostlegar breytingar á
öllum sviðum fjármála."
Er félagsmálaráðherra var spurður
um gildi þess að heyrst hefðu
óánægjuraddir innan peningakerfis-
ins vegna fyrirhugaðs afnáms vísitölu-
bindingar skammtímalána þá benti
hann á að nýlega hefði veri haldinn
fundur með fulltrúum viðskiptabanka
og sparisjóða. Fundurinn var haldinn
að frumkvæði félagsmálaráðherra í
sameiningu með viðskiptaráðherra.
Alexander sagði að þeim ulmælum
hefði verið beint til fyrrnefndra full-
trúa að stofnanir þeirra kæmu inn í
lausn á húsnæðisvandanum með
skuldbreytingum og lengingu lána.
Þetta yrði gert í samstarfi við ráð-
gjafastofnun Húsnæðisstofnunar.
„Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
ríkisvaldið leitar til fulltrúa viðskipta-
banka og sparisjóða í þessum tilgangi
og nú sem áður voru viðtökur þeirra
til þessa máls mjög jákvæðar," sagði
Alexander.
Hafskipsmálið:
w
Oljóst af hverjum
Eimskip kaupir
- Útvegsbankinn lofar að upplýsa málið þegar samningar nást
■ Þrátt fyrir miklar fundarsetur
Eimskipafélagsmanna og banka-
stjórnar Útvegsbankans um helgina,
er enn allt á huldu hvernig samkomu-
lag bankans og Eimskips verður, en
allt bendir til að það ráðist í dag eða
á morgun.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskip, sagði við NT í gær að verið
væri að skoða allar lagahliðar á mál-
inu, en enn er óljóst hvort Eimskip
kaupir af Hafskip, íslenska skipafé-
laginu eða Útvegsbankanum. Sagði
hann að í sjálfu sér skipti það Eimskip
engu hver seljandinn væri, eða hvort
Hafskip yrði gert gjaldþrota er kaupin
El Salvador-nefndin:
Söfnun fyrir
sjúkrastöð
■ E1 Salvador- nefndin á íslandi,
hefur í samráði við launþegasamtök-
in, m.a. BSRB og ASÍ, ákveðið að
vera með fjársöfnun um allt land til
stuðnings sjúkrastöð í Santa Barbara,
í nágrenni höfuðborgarinnar San Sal-
vador. Þetta er gert í framhaldi af
beiðni sem barst frá sjúkrastöðinni og
er ætlunin að safna um 400 þúsund
krónum, sem á að nægja til þriggja
mánaða reksturs sjúkrastöðvarinnar.
Borgarastríð geisar í E1 Salvador
og vaxandi loftárásir stjórnarhersins
gera stríðið enn mannskæðara en
áður. Loftárásirnar beinast að þeim
svæðum sem hafa losað sig undan
ógnarstjóminni, en þar reyna íbúar að
halda uppi skólastarfi, heilbrigðis-
þjónustu og annarri félagslegri þjón-
ustu.
Loftárásirnar hafa margfaldað þá
erfiðleika sem heilbrigðisþjónustan á
við að etja og voru þeir ærnir fyrir.
Til sveitar er t.d. aðeins einn læknir á
hverja 25 þúsund íbúa.
Læknadeild Háskólans í San Salva-
dor var eyðilögð af stjómarhernum
1980 og hefur engin formleg lækna-
menntun verið í landinu síðan.
íbúar hafa brugðist við þessu með
að byggja upp sínar eigin sjúkrastöðv-
ar oft með stuðningi hjálparsamtaka
erlendis. Sjúkrastöðin í Santa Bar-
bara er ein þessara sjúkrastöðva og
verður þetta heilsugæslustarf stutt
með söfnuninni nú.
Gíróreikningar söfnunarinnar er
303-26-10401.
ættu sér stað. Það væri hinsvegar á
hreinu að Eimskip keypti ekki eign-
irnar með áhvílandi skuldum.
Ef Eimskip tekur yfir eignir Haf-
skips mun þurfa að fjölga starfsfólki
hjá Eimskip um nokkra tugi. Var
Hörður spurður hvort starfsmenn
Hafskips og íslenska skipafélagsins
hefðu forgang um atvinnu. Taldi
Hörður það ekkert óeðlilegt.
Halldór Guðbjarnarson, banka-
stjóri Útvegsbankans, sagði við NT í
gær, að bankastjórar Útvegsbankans
væru í erfiðri aðstöðu, að þurfa að
sitja undir stöðugri gagnrýni án þess
að geta borið hönd yfir höfuð. Sagðist
hann ekki geta tjáð sig um einstaka
þætti málsins, en lofaði að ef og þegar
samningar við Eimskip nást, sem
hann bjóst við að yrði nú á næstu
dögum, yrði málið upplýst, að svo
miklu leyti sem bankanum er heimilt
samkvæmt lögum.
Halldór var spurður hversvegna
viðvaranir bankaeftirlitsins hefðu
verið hafðar að engu, en það kom
fram í samtali við Þórð Olafsson,
forstöðumann Bankaeftirlitsins, í
sjónvarpinu, að bankastjórn Útvegs-
bankans hefði ítrekað verið vöruð við
þeirri hættu sem fælist í hinni miklu
fyrirgreiðslu við Hafskip.
Sagðist Halldór ekki geta svarað
fyrir fyrirrennara sína í bankastjóra-
stólunum en hann gæti svarað fyrir þá
skýrslu sem bankanum barst um mitt
þetta ár. Sagði liann að það hefði
verið rútínurannsókn og ekki beinst
neitt sérstaklega að Hafskipsmálinu.
■ Jólaskreytingarnar hefðbundnu í Austurstræti voru settar upp í fyrrinótt af borgarstarfsmönnum og þá er jólaösinni
ekkert að vanbúnaði. nt mynd Svemr.
Jólaljósin farin að lýsa
- og verslunin blómgast
■ Starfsmenn á vegum Reykjavík-
urborgar eru farnir að huga að jóla-
Ijósunum í borginni því hátíð fer í
Itönd.
Það sýnir sig líka að fólk er farið að
undirbúa jólahátíðina því undanfarna
daga hefur mátt sjá óvenjumargt fólk
að versla í miðborginni.
NT hafði samband við nokkra
verslunarstjóra og segja þeir að allt
bendi til þess að verslunin verði með
svipuðu sniði og undanfarin jól. Um-
ferðin um neðri hluta Laugavegarins
tók mikinn kipp þegar gatan var aftur
opnuð eftir lagfæringarnar sem á
henni voru gerðar en kaupmenn þar
um slóðir hafa nú opið til klukkan 16
á laugardögum eins og tíðkast víðast
í nágrannalöndum okkar.
„Mér finnst þetta vera heldur fyrr
á ferðinni hjá okkur ef eitthvað er,“
segir Árni Einarsson framkvæmda-
stjóri hjá Máli og menningu.
„Við fórum nokkuð fyrr af stað
með auglýsingar nú en áður og það
hefur greinilega haft sitt að segja auk
þess sem verslunin á laugardögum
hefur verið tíföld á við það sem hún
hefur áður verið. Miðað við útkom-
una síðastliðna þrjá laugardaga held
ég að sérverslanirnar þurfi ekki að
kvíða neinu.“
Sigurður Magnússon verslunar-
stjóri hjá Geysi segir að verslunin
virðist vera að taka kipp þessa dag-
ana. „Við fundum vel fyrir þessu nú
um helgina en það er það fyrsta sem
maður verður var við að jólin fari í
hönd. Síðasti mánuður var þó ekki
eins kraftmikill og í fyrra þannig að
það bendir margt til að fólk velti
betur krónunum fyrir sér en oft áður.
Hjá okkur er það þó þannig að
verslunin fer ekki að taka verulega
við sér fyrr en eftir 10. desember en
mér sýnist allt benda til þess að þetta
verði með svipuðu sniði og verið
hefur undanfarin ár.“
Leitað að tvítugum
manni í ofsaveðri
' fannst eftir
Jfklst
hrakn
heil/
inga
é húfj
■ Leitarflokkar voru kallaðir út frá
Egilsstöðum, Vopnafirði, og Nes-
kaupstað seint á laugardagskvöldið
til leitar að tvítugum manni, Viggó
Má Eiríkssyni, eftir að félagar hans
sem komu til móts við hann á Hellis-
heiði eystra, urðu ekki varir við hann.
Viggó hafði þá lagt upp á vélsleða
frá Hólmatungu í Jökulsárhlíð kl.
17.30 fyrr um daginn, og ætlaði yfir
Hellisheiði til Vopnafjarðar, en slæmt
veður varð til þess að hann villtist af
leið.
„Rétt fyrir miðnætti fóru menn frá
Vopnafirði af stað til leitar á þremur
snjósleðum," sagði Jón Hávarður
Jónsson formaður björgunarsveitar-
innar á Egilsstöðum, í samtali við
NT. „Skömmu seinna bættust við
menn frá Jökulsárhlíð sem röktu slóð
hans að snjósleða sem hann hafði
skilið eftir. Tókst þeim að rekja
slóðina að Jökuldal, sem er þarna
skammt frá þeim stað sern Viggó
lagði upp. Þegar líða tók á nóttina
versnuðu mjög leitarskilyrði og þótt
enn fleiri leitarmenn bættust við, þeir
urðu um 110 alls, varð leitin að mestu
leyti að liggja niðri þangað til að birta
fór á ný.
Þáð var því ekki fyrr en um kl.
14.20 á sunnudag, sem Viggó fannst í
Fagradal, sem er afdalur frá Jökuls-
árdal, en þar hafði hann grafið sig í
snjó, en var samt furðu málhress þótt
hann væri gegnkaldur og blautur eftir
21 klst. hrakninga og varð honum
ekki meint af volkinu að nokkru
ráði,“ sagði Jón að lokum, en í
gærkvöldi var haldinn fundur meðal
þeirra sem tóku þátt í leitinni, og var
mál manna að í heild hefði leitin
tekist vel.