NT


NT - 03.12.1985, Síða 6

NT - 03.12.1985, Síða 6
Þriðjudagur 3. desember 1985 6 </> S </> s Wj ’NEWS IN BRIEF---------- December 2, Reuter. LUXEMBURG - A bomb exploded about 100 metres from the conference centre where leaders of 12 countries were holding a European Community (EC) summit me- eting. No casualties were rep- orted and the conference went on. The summit aims to reform the Community’s structure but a preliminary meeting of For- eign Ministers left wide divis- ions. British Prime Minister Marg- aret Thatcher and EC Com- mission President Jacques Delors called at the meeting for a cut in EC bureaucratic red-tape to help entrepren- eurs. • JOHANNESBURG - Police reported more rioting in South Africa last night as residents of a black township near Pretoria prepared for a mass funeral of 12 unrest victims tomorrow. • ROME - Yelena Bonner, wife of dissident Soviet Physicist Andrei Sakharov, has lefft Moscow by air on a flight to Milan and Rome, Italian air- line officials said. • CAIRO - Egypt has signalled an easing of tension on its western frontier with Libya by allowing some troops to take leave, military sources said. • EAST BERLIN - East Germ- an Defcnce Minister General Heinz Hoffmann died of heart failure, cousing a meeting of Warsaw pact military leaders he was to host in East Berlin to be delayed by a day until tomorrow. He is to be buried on Friday. Western Diplomats said they expected the meeting to disc- uss pact strategy after last month’s Soveit-U.S. Summit in Geneva. • BONN - A spy-hunter who defected to East Berlin betr- ayed two agents who had worked their way into the personal circle of East German leader Erich Honecker, the weekly magazine Quick said. • BHOPAL, India - Burning effigies of Union Carbide Cha- irman Warren Anderson wear- ing an American cowboy hat were carried through the stre-' ets in protests before the first anniversary tomorrow of the city’s lethal gas leak tragedy. • CHANDIGARH, India - Punjab authorities extended a ban on foreigners entering the state and ordered many scho- ols shut as Sikh extremists kept up attacks, killing a right- wing Hindu political worker. The ban does not apply to foreign reporters. • PARIS - Polish leader Gener- al Wojciech Jaruzelski will hold talks at his own request with French President Franco- is Mitterrand in Paris on We- dnesday, a Spokeswoman at the Elysee Palace said. The announcement appeared to be a change in Jaruzelski’s prog- ramme. • MOSCOW - Soviet leader Mikhail Gorbachev will visit Italy next March or April, Westem diplomatic sources said in Moscow. • PARIS - Armed raiders stole 70 million francs (nine million dollars) from the Brinks arm- oured transport company in one of the biggest cash houls in a robbery in France. • NEWSINBRIEF____________ Filipseyingar reiðir: Herforingjar dæmdir alsaklausir af morði Marcos lætur frænda sinn aftur fá yfirherstjórn Manila-Reuter: ■ Mikil reiði er nú á Filipseyjum eftir að sérstakur dómstóll sýknaði þrjá herforingja og 22 óbreytta borg- ara af morði Benignos Aquinos ■ Fabian Ver yfirhershöfðingi hefur nú aftur tekið við embætti sem yfir- maður herráðsins á Filipseyjum eftir að dómstóll sýknaði hann af morði. stjórnarandstöðuleiðtoga sem var skotinn til bana eftir að hermenn tóku hann í vörslu sína á flugvellinum í Manila í ágúst 1983. Dómstóllinn neitaði ákæruvaldinu um leyfi til að leggja fram stóran hluta sönnunargagnanna gegn her- foringjunum á þeirri forsendu að sönnunargögnin væru byggð á þeirra eigin framburði fyrir nefnd sem var skipuð til að rannsaka morðið á Aquino. Samkvæmt dómstólnum mátti ekki nota vitnisburð sakborn- inga í ákæru gegn þeim. Dómstóllinn neitaði líka að taka til greina vitnisburð konu sem sá morðið út um glugga flugvélarinnar, sem Aquino kom með til Filipseyja. Kon- an segist greinilega hafa séð hermann skjóta Aquino í höfuðið. Herinn á Filipseyjum heldur því fram að smáglæpamaðurinn Roland Galman hafi myrt Aquino. Galman var sjálfur skotinn rétt á eftir Aquino. Engin skýring hefur fengist á því hvernig Galman, sem herinn segir að hafi verið útsendari kommúnista, komst inn á flugvallarsvæðið sem var umkringt af hermönnum. Fabian Ver yfirhershöfðingi, frændi og vinur Marcosar forseta Filipseyja, var einn af sakborningun- um í þessu máli. Strax nokkrum klukkustundum eftir að úrskurður dómsins var lesinn upp skrifaði hann bréf til Marcosar og bað hann um að vera aftur skipaður í embætti yfir- manns herráðsins sem hann vék úr þegar hann var ákærður. Marcos varð umsvifalaust við þess- ari beiðni frænda síns sem margir telja að beri ábyrgð á lélegum árangri hersins í baráttunni gegn skæruliðum kommúnista sem stöðugt eru að sækja í sig veðrið. Corazon ekkja Benignos Aquinos sagði á blaðamannafundi eftir að hermennirnir höfðu verið sýknaðir að eiginmaður sinn hefði verið fórnarlamb réttarhaidanna. Hún bættf því við að hún grunaði Marcos sjálfan um að standa á bak við morðið. Corazon, sem er þekkt sem Cory á Filipseyjum, skoraði á heiðarlega hermenn, sem hún vonaði að væri enn að finna í hernum, að hjálpa sér til að komast að sannleikanum í þessu máli. Corazon Aquino er nú talin einn hættulegasti andstæðingur Marcosar forseta þar sem stjórnarandstæðingar hafa gert hana að eins konar samein- ‘ ingartákni í baráttu sinni gegn Mar- cosi. Það er nær öruggt að hún mun bjóða sig fram gegn Marcosi í forseta- kosningunum sem líklega verða haldnar í febrúar á næsta ári. Sin erkibiskup í Manila, einn helsti trúarleiðtogi á Filipseyjum, þar sem 80% íbúa eru kaþólskir, lýsti í gær yfir vonbrigðum með niðurstöðu dómstólsins. Hann sagði að sögulegt tækifæri stjórnarinnar til að vinna traust almennings og uppfylla þrá fóíks eftir sannleika og réttlæti hefði glatast. Charles Redman talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins gagn- rýndi sýknun herforingjanna harð- lega í gær. Hann sagði þá ákvörðun Marcosar að skipa Ver aftur í embætti yfirmanns herráðsins furðulega og ekki í samræmi við yfirlýsingar hans um mikilvægi raunverulegra umbóta. Suður-Kórea: Stjórnarandstaðan sveltur á þinginu Fjárlagafrumvarp samþykkt á 2 mín. á lokuðum fundi Seoul-Reuter: Herráðherra A-Þýskalands bráðkvaddur Austur Berlín-Reuter. ■ Heinz Hoffmann varnarmála- ráðherra Austur-Þýskalands varð bráðkvaddur í gær 75 ára að aldri skömmu áður en varnarmálaráð- herrar Varsjárbandalagsins komu saman í Austur-Þýskalandi til að ræða um árangur viðræðna Gorbac- hevs Sovétleiðtoga og Reagans Bandaríkjaforseta í Genf í seinasta mánuði. Hoffmann átti að vera gestgjafi ráðherrafundarins, ÍAustur-Berlín. Þrátt fyrir fráfall hans var samt ákveðið að halda fundinn eins og ráð var fyrir gert. Hoffmann var æðsti yfirmaður austur-þýska hersins sem telur alls 180.000 hermenn. Hann var einnig háttsettur embættismaður í austur- þýska kommúnistaflokknum. Bonner jendir á Ítalíu Róm-Reuter. ■ Yelana Bonner, eiginkona And- rei Sakharovs eðlisfræðings og bar- áttumanns fyrir mannréttindum í So- vétríkjunum, kom til Rómar í gær-; kvöldi. Bonner hefur að undanförnu dval- ist í útlegð ásamt eiginmanni sínum í Gorky sem er um 400 kílómetrum fyrir austan Moskvu. Hún fékk leyfi til að fara til Vesturlanda til að leita sér lækninga við augnsjúkdómi sem hrjáir hana. Andrei Sakharov fór í hungur- verkfall í útlegðinni til að fá sovésk stjórnvöld til að veita Bonner farar- leyfi og óttuðust þá margir um heilsu hans. ■ Stjórnarandstöðuþingmenn í Suður-Kóreu fóru í 24 klukkstunda hungurverkfall í gær til að mótmæla ólöglegri meðhöndlun stjórnarflokks- ins á fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar. Þingmenn í Nýja kóreska lýðræðis- flokknum, sem er stærsti stjórnar- andstöðuflokkurinn í Suður-Kóreu, hafa verið í setuverkfalli í helstu fundarherbergjum suður-kóreska þingsins frá því í lok seinustu viku. Setuverkfallið var til þess að tefja umræður um fjárlagafrumvarpið og neyða Lýðræðislega réttlætisflokk- inn, sem er í stjórn, til að fallast á kröfu stjórnarandstæðinga um breyt- ingar á stjórnarskránni til að heimila beinar og milliliðalausar forsetakosn- ingar. Stjórn Suður-Kóreu lét að lokum samþykkja fjárlagafrumvarpið á tveimur mínútum á lokuðum fundi Lýðræðislega réttlætisflokksins þar sem dyrum var meira að segja læst til að halda stjórnarandstæðingum úti að sögn sjónarvotta. Stjórnarandstöðuþingmenn segja að samþykkt fjárlagafrumvarpsins, sem hljóðar upp á 15 milljarða doll- ara, sé með öllu ólögleg. En talsmað- ■ ísraelsmenn hafa beðið Banda- ríkjamenn afsökunar á ísraelskum njósnum í Bandaríkjunum og boðið bandarísku stjórninni að yfirheyra Rafael Eitan yfirmann þeirrar deildar sem hlut átti að máli. Það mun vera einstakt í sögu njósna að ríkisstjórn leyfi stjórnvöld- um annars ríkis að yfirheyra leyni- ur stjórnarflokksins segir að stjórnar- andstæðingar hafi ekki viljað taka þátt í umræðum um frumvarpið og ekki hafi verið hægt að fresta sam- þykkt þess lengur vegna tímasetning- arákvæða í lögum. Stjórnarandstöðuþingmenn segjast þjónustumann eins og nú verður gert. Ljóst er að ísraelsmönnum þykir mikilvægt að njósnir Bandaríkja- mannsins Jonathans Pollards fyrir ísrael verði ekki til að spilla samskipt- um við Bandaríkjamenn sem árlega veita þeim milljarða dollara í efna- hags- og hernaðaraðstoð. Eitan mun hafa að baki sér langan munu.halda áfram setuverkfalli sínu í fundarherbergjum þingsins. Þeir ákváðu að fara líka í 24 stunda hungurverkfall eftir að forseti Nýja kóreska lýðræðisflokksins lýsti því yfir að flokkurinn hefði hafið herferð út um allt land gegn stjóminni. feril innan ísraelsku leyniþjónustunn- ar og deildin sem hann veitti forstöðu var svo leynileg að hennar hafði aldrei verið getið opinberlega. Það hefur því verið erfið ákvörðun fyrir ísraelsku stjórnina að gefa Bandaríkj- um leyfi til að yfirheyra Eitan og svipta þannig hulunni af þessari vel földu deild leyniþjónustunnar. ■ Leiðtogar stjórnarandstæðinga í Suður-Kóreu ræða leiðir til að berjast gegn lögleysu stjómarinnar. Yi Min U forseti Nýja kóreska lýðræðisflokksins (t.h.) lýsti í gær yfir hungurverkfalli stjórnarandstæðinga og herferð gegn stjóminni út um allt land. Hann nýtur til þess fulls stuðnings „Kimanna tveggja" sem sitja fyrir miðju, Kim Dae Jung (t.v.), sem er áhrifamesti leiðtogi stjórnarandstæði- nga þótt honum hafí verið bannað að hafa afskipti af stjórnmálum, og Kim Yong Sam. ísrael: Jerúsalem-Reuter

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.