NT - 03.12.1985, Side 7
Útlönd
Bresk afþjóðnýting:
Gasveita til sölu
London-Reutr
■ StjórnBretlandsbirtifyrirnokkr-
um dögum lagafrumvarp um sölu
bresku gasveitunnar til einkaaðila.
Petta er umfangsmesta afþjóðnýting-
in á Bretlandi til þessa en sala ríkis-
fyrirtækja til einkaaðila er eitt af
mikilvægustu stefnuatriðum bresku
stjórnarinnar.
Bretar nota almennt gas til eldunar
og húshitunar og gasveitan er stærsta
orkufyrirtæki á Bretlandi. Það er
áætlað að söluverðmæti gasveitunnar
nemi sex til átta milljörðum punda
(360-480 milljörðum ísl. kr.).
Neil Kinnock formaður Verka-
mannaflokksins segir að stjórn
íhaldsmanna ætli að „gefa burt al-
menningsheill vegna gróða hinna
fáu". En Margrét Thatcher forsætis-
ráðherra Breta segir að starfsmenn
gasveitunnar hafi góða möguleika á
að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu sem
hafi aldrei gerst undir öðrum ríkis-
stjórnum.
Stjórnin stefnir að því að frumvarp-
ið um sölu gasveitunnar verði að
' lögum næsta sumar og að bréf í
fyrirtækinu verði föl með haustinu.
■ Thatcher vill afþjóðnýta öll
fyrirtæki sem breska ríkið getur
mögulega losað sig við.
Bandaríkin:
Flugvallarstarfsmenn
athugaðir til öryggis
Washington-Reuter
■ Fórnarlömb morðárásar öfga-
sinnaðra sikha á Indlandi. Morðárás-
unum fer nú aftur fjölgandi á sama
tíma og fylkisstjórnin í Punjab sleppir
grunuðum hryðjuverkamönnum úr
fangelsi.
Indland:
Grunuðum
öfgasinnum
sleppt út
Chandigarh-Reuter
■ Stjórnvöld í Punjab-ríki á Ind-
landi hafa að undanförnu látið lausa
um 1.100 grunaða öfgasinna sem talið
er að hafi tekið þátt í vopnaðri
baráttu fyrir sjálfstæði Punjabs þar
sem fólk af þjóðarbroti sikha er í
miklum meirihluta.
Rajiv Gandhi forsætisráðherra Ind-
verja hefur látið í ljós óánægju með
það hversu víðtæk sakaruppgjöfin í
Punjab er orðin. Hann sagði á sunnu-
dag að hann hefði áhyggjur af því að
öfgamenn litu á sakaruppgjöfina sem
merki um að stjórnin væri að slaka á
í baráttunni gegn hryðjuverkamönn-
um.
Mennirnir, sem hafa verið látnir
lausir að undanförnu, voru handtekn-
ir eftir að indverski herinn réðst inn í
Gullna hofið í Amritsar, sem er
helgasti helgistaður sikha. Nú eru
aðeins um 800 grunaðir öfgamenn í
fangelsum í Punjab.
Morðárásum hryðjuverkamanna í
Punjab hefur fjölgað nokkuð að
undanförnu en fylkisstj órnin hefur
neitað að viðurkenna að samband sé
á milli sakaruppgjafarinnar og aukins
ofbeldis. Surjit Singh Barnala
■ Flugmálayfirvöld í Bandaríkjun-
um hafa fyrirskipað flugfélögum og
flugvallarstjórnum að athuga pers-
ónulegan bakgrunn hluta þeirra
starfsmanna sem vinna hjá þeim.
Petta er í fyrsta skipti sem banda-
rísk flugmálayfirvöld fyrirskipa slíka
öryggisrannsókn á starfsmönnum
flugfélaga og flugvalla. Rannsóknin
nær til allra starfsmanna sem ráðnir
voru frá því 1. nóvember síðastliðinn
og sjá um eftirlit með farþegum og
■ Samkvæmt breska tímaritinu
New Statesman eiga Bretar ekki
nægjanlega mikið plútoníum til að
gera kjarnorkusprengjur í odda
eldflauga sem eiga að vera um
borð í fjórum Tridentkafbátum
sem Bretar hafa pantað frá Banda-
ríkjunum.
Duncan Cambell blaðamaður
skrifar í grein í New Statesman að
í leyniskjölum komi fram að Bret-
ar eigi aðeins um tvö hundruð
kjarnorkusprengjur og jafnvel
færri. Þvf hefur oft verið haldið
fram að Bretar hafi 500 til 1000
kjarnorkuvopn.
forsætisráðherra Punjab segir að eng-
inn þeirra, sem stjórnin hefur látið
lausa, hafi tekið þátt í árásunum að
undanförnu.
Stjórnvöld í Punjab hafa hert mjög
farangri þeirra og hafa aðgang að
þeim hluta flugvalla sem eru lokaðir
fyrir almenningi.
Fred Farrar talsmaður flugmála-
yfirvalda segir að rætt hafi verið um
slíka athugun í nokkrar vikur. Hún
standi því ekki í sambandi við
flugvéjaránið á egypsku flugvélinni
um síðustu helgi sem lauk með því að
nær sextíu menn létu lífið þegár
egypskiriöryggisverðir réðust til át-
lögu gegn flugvélaræningjunum.
Það þarf samtals 704 kjarnorku-
sprengjur til að fullvopna Trident
D5 kafbátana fjóra. Cambell segir
útilokað fyrir Breta að framleiða
nægjanlegt plútoníum í þessar
kjarnorkusprengjur jafnvel þótt
kjarnorkuver þeirra yrðu rekin
með fullum afköstum.
Cambell segir að eina leiðin til
að Bretar geti búið til kjarna-
sprengjur fyrir kafbátana sé að
nota plútoníum úr þeim sprengj-
um sem þeir eiga nú þegar. Hann
segir að breska stjórnin hafi fyrir
nokkru látið eyðileggja vetnis-
sprengjur Breta þar sem þær hafi
verið taldar úreltar.
ýmsar öryggisreglur vegna morðárás-
anna að undanförnu. Nú er t.d.
bannað að aka um á mótorhjólum að
nóttu til en tilræðismenn flýja oft frá
morðstað á mótorhjólum.
Bretland:
Kjarnorkuher vantar
kjarnorkusprengjur
London-Reuter
Þriðjudagur 3. desember 1985 7
flokksstarf
Ungt fólk - konur
Þórunn H. Guðmuhdsdóttir er tilbúin að ræða við ykkur á
skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstíg 18, alla daga
frá kl. 9-17. Sími 91-24480 Láttu sjá þig!
SUF og LFK.
Akranes - Bæjarmál
Fulltrúaráðsmenn og allir þeir sem að sitja I nefndum og
ráðum á vegum flokksins á Akranesi. Fundur um bæjarmálefni
verður haldinn fimmtudaginn 5. desember kl. 20.30 í Fram-
sóknarhúsinu við Sunnubraut.
Bæjarfulltrúarnir
Formenn framsóknarfélaga
Undirbúningur að útgáfu Handbókar Framsóknarflokksins
1986 stendur nú yfir. Formenn framsóknarfélaga eru beðnir
um að senda skrifstofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstíg
18, 105 Reykjavík hið fyrsta upplýsingar um skipan stjórna
félaga sinna.
Skrifstofa Framsóknarflokksins.
BLAÐBERA VANTAR
í EFTIRTALIN HVERFI:
Langholtsvegur, Laufásvegur, Sunnuvegur, Grenimelur, Haga-
melur, Borgarholtsbraut, Seltjarnarnes, Ægisíða, Granaskjól,
Fellin í Breiðholtshverfi, Skerjaförur og Nýi miðbærinn.
JOLAKORT
Landssamband framsóknarkvenna hefur
gefið út jólakort, sem eru til sölu á
skrifstofu Framsóknarflokksins að
Rauðarárstíg 18, Reykjavík og hjá
trúnaðarmönnum okkar um alft land. Hvert
kort kostar aðeins 15 kr.
LKF
Dýrfirski vörubíllinn DÚI
er rammíslenskt þroskaleikfang. Jólasveinarnir á Þingeyri
svara í símann alla daga og öll kvöld.
Leikfangasmiðjan Alda hf. Sími 94-8181, Þingeyri.
Póst-
kröfu-
sendingar