NT


NT - 03.12.1985, Side 10

NT - 03.12.1985, Side 10
Fáein kveðjuorð. Með Jóni Kjartanssyni er fallinn frá einhver sá mætasti maður, sem ég hef kynnst. Jón var mætur vegna eigin mannkosta. Hann var sannur drengskaparmaður. Jón var samvinnu- ogfélagshyggju- maður af hugsjón. Hann kynntist því í verki í uppeldi og áratugastarfi í heimabyggð sinni, Siglufirði, og sam- einaðir lyfta mennirnir Grettistaki. Honum var hins vegar ljóst, að engin samtök eru sterkari en einstakling- arnir, sem mynda þau, og mat því ætíð dugmikla og framtakssama menn. Kraftur og framtak var honurn sjálfum í blóð borið og það sýndi hann í verki. Jón Kjartansson var um áratuga- skeið í forystusveit framsóknar- manna. Hann sat lengi á vegum flokksins í bæjarstjórn Siglufjarðar og var bæjarstjóri í nálægt því áratug. Jón átti sæti í miðstjórn Framsóknar- flokksins frá 1946. Til Reykjavíkur fluttist Jón ásamt fjölskyldu sinni 1958, þegar hann lét af starfi bæjarstjóra. Arið 1961 varð hann forstjóri Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins og gegndi því ábyrgðarmikla starfi til dauðadags. Eftir að Jón fluttist til Reykjavíkur, fók hann sem fyrr mikinn þátt í flokksstarfinu. Hann var meðal ann- ars í framboði í Norðurlandskjör- dæmi vestra og sat á tveimur þingum. Jón átti sæti í blaðstjórn Tímans og gegndi ótal fleiri trúnaðarstörfum fyr- ir flokk sinn, enda minnist ég þess aldrei, að Jón hafi neitað þegar til hans var leitað. En þótt Jón hefði ákveðnar skoðanir og væri þeim trúr, unni hann öðrum þess vel að hafa sínar. Hann var sjálfur hreinskilinn og þann kost mat hann við aðra, enda átti hann fjölda kunningja í öðrum flokkum. Hvenær sem saman komu félagar og vinir, var hann hrókur alls fagnaðar. Svo var á samkomum flokksins og ekki síður, hygg ég, í hópi Siglfirð- inga. Jóni Kjartanssyni kynntist ég eink- um síðustu tvo áratugina og lærði að meta hann meir með hverju ári. Fyrir þau kynni er ég þakklátur. Ég þakka einnig mikil og góð störf fyrir Fram- sóknarflokkinn . Með Jóni er geng- inn góður drengur og félagi. Jón var mikill hamingjumaður í einkalífi sínu. Eiginkona Jóns, Pórný Tómasdóttir, börn þeirra og fjöl- skyldur, eiga mína dýpstu samúð. Steingrímur Hermannsson Kynni okkar Jóns Kjartanssonar hófust í Reykjavík veturinn 1934—’35. Hann var þá nemandi í Samvinnu- skólanum en ég í Kennaraskólanum. Við tókum báðir þátt í félagslegum samskiptum skólanna og einnig við aðra skóla. Pá tókst með okkur vinátta, sem enginn bilbugur hefur verið á í meir en hálfa öld. Mér finnst stutt síðan ég sá Jón í fyrsta sinn - glaðan en virðulegan - leiftrandi af góðum áformum og háum hugsjón- um. Hann hefur æ síðan verið í hópi minna kærustu vina. Góðvild hans og umhyggjusemi hefur verið sem ljós á lífsbrautinni. Pað syrtir að er slíkir menn kveðja jafn snögglega. í brjósti hans sló stórt og hlýtt hjarta. Hann var mótaður við móðurkné af góðhug og ástúð til alls Sem lifir. Slíkur maður hlaut að njóta mannhylli og vináttu margra. Sú varð raunin á. Nú er skarð fyrir skildi. „En á bjartan orðstír aldrei fellur umgjörðin er góðra drengja hjörtu. “ Ég kom fyrst á æskuheimili Jóns í Siglufirði í desember 1939. Þá kynnt- ist ég móður hans Jónínu Tómasdótt- ur - eftirminnilegri ágætiskonu, sem ég lærði margt af. Jónína var orðin ekkja, þegar hér var komið. Jón var einkasonur hennar - Helgi var látinn fyrir all mörgum árum, rúmlega tví- tugur að aldri. Mikill myndarmaður að allra dómi. Þarna kynntist ég því best, hvernig góður einkasonur er móður sinni. Ég átti eftir að fylgjast með því betur. Öll árin sem Jón bjó í Siglufirði eftir þetta eða til 1958 kom ég árlega þangað vegna sérstakra starfa minna þar og raunar talsvert lengur. Ég var tíður gestur á heimili þeirra. Eftir að Jón og Þórný Tómas- dóttir stofnuðu sitt myndarlega heim- ili 1945 var sama uppi á teningnum. Ég sá þrjú elstu börnin vaxa þar upp - kát og fjörug - við ástríki góðra foreldra. Það fjórða fæddist eftir að flutt var til Reykjavíkur. Jónína bjó áfram í húsinu sínu við Norðurstíg, en Jón byggði að nokkrum árum liðnum - stórhýsi norðan við það. Gestrisnin, góðvildin og hlýjan, sem einkenndi æskuheimili Jóns, setti einnig svipmót á hið nýja heimili. Þórný stóð strax á glæsilegan hátt við hlið hans og það hefur hún gert af miklum sóma í 40 ár. Þeir eru margir, sem eiga góðar minningar frá þeim rausnargarði. Þrír voru meginþættirnir í ævistarfi Jóns. Verkstjóri hjá Síldarverksmiðj- um ríkisins, bæjarstóri á Siglufirði og forstjóri ÁTVR, auk fleiri verkefna í styttri tíma. Öll þessi störf fórust honum vel úr hendi. Samstarf hans við fólkið - sem vann við framan- greindar stofnanir var með sérstökum ágætum. Hann átti hvarvetna vin- sældum að mæta og vitnisburður hans um starfsfólkið var sérstaklega góður. Allt bar þetta vott um góðan starfs- anda á vinnustöðunum, enda vart við öðru að búast. Áhugi Jóns fyrir þjóðmálum kom fljótt í ljós og rúmlega þrítugur að aldri var hann kjörinn bæjarstjóri í Siglufirði. Hann var 1. varaþingmað- ur Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi vestra frá 1959 og þingmaður þar 1969-71, eftir fráfall Skúla Guðmundssonar alþm. Hann sat alls á 11 þingum - einhvern tíma. í miðstjórn Framsóknarflokksins var hann í áratugi og gegndi auk þess mörgum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, sem hann rækti með ágæt- um. Lifandi áhugi Jóns fyrir málefn- um Framsóknarflokksins og þátttaka hans í ýmsum félagsmálahreyfing- um, gerðu hann að áhrifamanni innan flokksins um langt skeið. Hann var áhugamaður um málefni kirkjunnar, enda kominn af kunnum prestaættum í báðar ættir. Var for- maður Hjálparstofnunar kirkjunnar í 10 ár, auk fleiri trúnaðarstarfa á þeim vettvangi. Siglfirðingur var fagurt orð í munni Jóns. Mér fannst hann bera það fram með sérstökum málhreim og setja upp hátíðlegan svip. Það fól í sér djúpa merkingu og snerti marga strengi. Það fól einnig í sér viðkvæmni og stolt. Jón var bæjarstjóri í Siglu- firði í 9 ár. Hann hóf störf sín nokkrum árum eftir að síldin hvarf endanlega eða 1949. Jón barðist ótrauður fyrir nýrri uppbyggingu atvinnulífsins með togurum og öðrum atvinnutækjum. Áður hafði Siglufjörður nær eingöngu treyst á síldina. Þegar hún hvarf fyrirvaralítið varð ógnvekjandi at- vinnuleysi. Mér líður seint úr minni sú bjartsýni, kjarkur og stórhugur, sem einkenndi baráttu Jóns á víg- stöðvunum hér syðra fyrir endurreisn atvinnulífsins í Siglufirði. Honum varð ótrúlega mikið ágengt - svo okkur vinum, hans ýmsum - þótti árangurinn stundum nálgast krafta- verk. Hann sótti ekki mál sitt með betlistaf í hendi, heldur á þeim sögu- legu staðreyndum að Siglufjörður hefði í áratugi verið gullkista fyrir þjóðarbúið og nú væri komið að endurgreiðslu af illri nauðsyn. Hann bar höfuðið hátt og flutti mál sitt af myndugleika. Hæfileikar hans voru miklir til að laða saman hin ólíkustu öfl til sameiginlegrar baráttu fyrir málstað Siglufjarðar. Eitt sinn samþykkti ríkisstjórnin tiltekinn stuðning við málefni Siglu- fjarðar gegn þvf, að bærinn afhenti ríkinu Skeiðsfossvirkjun, sem þá var ekki margra ára gömul. Þá þótti Jóni umbjóðendum sínum misboðið og sagði nei á stundinni, án þess að ræða það við einn eða annan. Honum fannst virkjunin þá vera eina ljósglæt- an í því svartnætti, sem fram undan væri í málum bæjarins. Fallið var frá skilyrði þessu vegna einbeitni Jóns og er Siglufjörður enn eigandi Skeiðs- fossvirkjunar. Þegar Jón hvarf úr starfi bæjarstjóra í ársbyrjun 1958 hafði mikið áunnist og atvinnulífið byggt upp af togurum og fiskibátum, sem ekki voru bundnir síldveiðum. Þannig var bænum bjargað frá eyð- ingu sem annars hefði orðið á nokkr- um árum. Jón var ákaflega félagslega sinnað- ur maður. Kom víða við og eftirsóttur til forustu. Hann var starfssamur, bjartsýnn og óragur að takast á við verkefnin. Hann vildi ætíð láta gott af sér leiða í hverju máli, sem hann vann að. í góðra vina hópi var hann glaður og reifur. Hafði skemmtilega frásagn- argáfu og gat á stundum brugðið sér í gerfi leikarans. Háttvísin brást hon- um hinsvegar aldrei. Hann var allra manna vinsælastur. Margir sakna nú góðs vinar, er hann hverfur af þessum heimi. Það á við um Jón, sem sagt var um annan merkan íslending, sem féll sviplega frá, á öldinni sem leið: ,Aður sat ítur með glöðum og orðum vel skipti. Nú reikar harmur í húsum og bryggð á þjóðbrautum. “ Hugljúfur vinur er kvaddur. Hon- um er þökkuð samfylgdin og fjöl- skyldunni sendar einlægar samúðar- kveðjur. Dan. Ágústínusson Kveðja f rá f ramsóknarmönnum í Siglufirði Jón Kjartansson forstjóri andaðist 21. nóvember s.l. á heimili sonar síns í Hamborg. Jón fæddist í Siglufirði 5. júní 1917 sonur Kjartans Jónssonar byggingameistara og konu hans frú Jónínu Tómasdóttur kaupkonu. Jón ólst upp í Siglufirði og tók próf frá Samvinnuskólanum árið 1935, það ár varð hann verkstjóri hjá Síldarverk- smiðjum ríkisins í Siglufirði og var það til ársins 1942, að hann tók við skrifstofustjórn hjá Þormóði Eyjólfs- syni h.f. Jón hafði á þessum árum auk þess margvísleg önnur störf á hendi, hann var umboðsm. Samvinnutrygginga, Flugfélags íslands, rak síldarsöltun og tók þátt í útgerð ofl. Jón tók mjög virkan þátt í starfi Framsóknarfélags Siglufjarðar á þess- um árum. Hann var kosinn formaður í félaginu í febrúar 1948 og form. trúnaðarráðs 1949. Það ár var Jón ráðinn bæjarstjóri Siglufjarðar og gegndi hann því starfi í tvö kjörtímabil. Það voru erfið ár, eftir hvarf síldar- innar, við þær ytri aðstæður, þegar að Siglufjörður var ekki lengur sú gull- kista landsmanna, sem hann hafði verið undanfarna áratugi. Bæjarbúar voru þá á fjórða þús- undið og kreppa í atvinnulífinu. Reyndi þá mjög á Jón og sýndi hann þá einstakan dugnað, ósérhlífni og útsjónarsemi við endurreisn atvinnu- lífsins. Stofnuð var Bæjarútgerð Siglu- fjarðar, keyptur annar togari og Skeiðsfossvirkjun stækkuð um helm- ing svo nokkuð sé nefnt. Fleyg urðu sum samskipti Jóns við stjórnvöld á þessum árum svo að- gangsharður gat hann verið við þau, því ekkert var Siglufirði of gott. Á Jón hlóðust margháttuð störf, hann var í miðstjórn Framsóknar- flokksins frá 1946, sat í stjórn Síldar- verksmiðja ríkisins frá 1947. Vara- þingmaður á 9 þingum og eftir fráfall Skúla Guðmundssonar 1969 þing- maður Norðurlandskjördæmis vestra til 1971. Árið 1957 flytur fjölskyldan til Reykjavíkur og tekur Jón við for- stjórastarfi Áfengisverslunar ríkisins sem síðar verður Áfengis og tóbaks- verslun ríkisins, sem hann sinnti til dauðadags. Hlóðust á hann margháttuð störf, hann var í blaðstjórn Tímans, Blaða- prents hf., formaður í Siglfirðingafé- laginu, ræðismaður Finnlands svo nokkuð sé nefnt. í dagsins önn var gott að hitta Jón, alltaf var hann með hugann við Siglu- fjörð, fólkið heima eins og hann gjarna tók til orða, atvinnulífið og mannlífið allt. Ekkert var honum óviðkomandi sem snerti Siglufjörð. FjölmargirSigl- firðingar sem fluttust til Reykjavíkur fengu hjá honum hvatningu og upp- örvun auk annarrar hjálpsemi við búsetuskiptin, þar er nú skarð fyrir skildi. Ég minnist hans í haust þegar endurbygging S.R. 46 var tekin í notkun og loðnuveiðar hófust, hversu glaður hann var þegar viss áfangi var tekinn í notkun og S.R. 46, verk- smiðjan sem hann sá rísa varð tækni- væddasta verksmiðja landsins. Hann hafði óbilandi trú á íslensku hugviti og dugnaði. Hann var ætíð fullur bjartsýni, góðvild og hjálpsemi voru hans bestu eiginleikar, þannig minn- umst við hans. Um leið og ég þakka fyrir persónu- leg kynni og samstarf, vil ég fyrir hönd Framsóknarfélaganna í Siglu- firði senda eftirlifandi konu hans, frú Þórnýju Tómasdóttur og ástvinum hugheilar samúðarkveðjur. Sverrir Sveinsson Kveðja frá Siglufirði Fimmtudaginn 21. nóvember s.l. varð Jón Kjartansson fyrrum bæjar- stjóri í Siglufirði bráðkvaddur. Með Jóni Kjartanssyni er genginn ■ Jón Kjartansson á skrifstofu sinni hjá ÁTVR. ■ Jón Kjartansson á heimili sinu að Háteigsvegi 44 Reykjavík.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.