NT - 03.12.1985, Page 11

NT - 03.12.1985, Page 11
MAiudagur 3. desember 1985 11 Síldarverksmiðjur ríkisins, fyrsta stóriðjan á íslandi, hafa verið og eru, stærsti aflgjafi atvinnulífsins í Siglu- firði. Pessu fyrirtæki tengdist Jón snemma, fyrst sem sendisveinn, en innan við tvítugt orðinn verkstjóri. í stjórn þessa fyrirtækis hefur hann átt sæti um árabil, og síðari ár sem varaformaður stjórnarinnar. í stjórnarstörfum sínum, hjá þessu stóra fyrirtæki, sýndi hann eins og endra nær í störfum sínum, dugnað, árvekni og fyrirhyggju, og fullyrða má að starfsemi Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði væri ekki með þeirri reisn sem nú er, hefði Jóns Kjartanssonar ekki notið við. Það var því örugglega með mikilli ánægju, sem þessi sanni vinur Siglu- fjarðar ræsti nýja tölvustýrða vélbún- aðinn hjá S.R. í haust við hátíðlegt tækifæri, og þar með eina fullkomn- ustu verksmiðju í heimi á þessu sviði. Með þessum fáu og fátæklegu orð- um vil ég fyrir hönd Bæjarstjórnar Siglufjarðar og Siglfirðinga allra þakka Jóni Kjartanssyni öll þau ómetanlegu störf, sem hann hefur innt af hendi í þágu Siglufjarðar. Siglfirðingar sakna vinar í stað. Þórnýju, börnum, tengdabörnum og barnabörnum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Bogi Sigurbjörnsson, forseti bæjarstjórnar. f>að var vor við Sigiufjörð, þegar sólin fyllir fjörðinn geislum sínum og varpar ljóma yfir allt og alla. Sköpun Guðs og mannanna verk eru umvafin birtu sólarljóssins svo sterklega, að bjarmi hennar merkir mannlífið. Pannig vekur sólin mönnum von og kraft, djörfug og framtak. Það var vor við Siglufjörð, þegar Jón Kjartansson fæddist þar 5. júní árið 1917. Þaö var líkt og vorið byggi í Jóni alla tíð, hugmyndaauðgi, fyrir- ætlanir og framtakssemi stórbrotin og krafturinn og áhuginn mikill, þegar tekist var á við hin ólíkustu verkefni, skipulagshæfileikar frábærir, verk- efnið skoðað frá öllum hliðum, allir hugsanlegir möguleíkar athugaðir og reiknað með óvæntum stefnum, sem málið kynni að taka og þær íhugaðar. Forustuhæfileikar Jóns og útsjónar- semi voru ótvíræð. Komu þeir eigin- leikar vel fram bæði í margvíslegum störfum, sem hann gegndi um æfina og í þjónustu við land og lýð. Það var vor við Siglufjörð. Siglu- fjörður var Jóni alltaf mjög kær enda borinn þar og barnfæddur. Hann helgaði einnig mjög þeim stað alla starfskrafta sína um árabil. Eftir að hann flutti til Reykjavíkur, fylgdist hann grant með öllu, sem gerðist fyrir norðan og Iagði þeim málum lið eftir mætti, sem til heilla horfði fyrir byggðarlagið og íbúa þess. Hugur hans til Hvanneyrarkirkju var hlýr og djúpstæður og sýndi hann þakklæti sitt í verki til hennar, þakklæti fyrir mikilvægar stundir og heillavænlega mótun, sem streymir frá kirkjunni inn í samfélagið og líf hvers einstaklings. Ó, skapari, hvað skulda ég? Eg skulda fyrir vit og mál. Mín skuid er stór og skelfileg, ég skulda fyrir lífog sál. Ég skuida fyrir öli mín ár og a/iar gjafir, fjör og dáð, í sku/d er lán, í skuld er tár, í sku/d er, Drottinn, öll þín náð. Þessi sálmavers Matthíasar Joc- humssonar voru á vörum Jóns einu sinni, þegar hann hvarf á fund í Hjálparstofnun kirkjunnar, en þar var hann stjórnarformaður fyrstu tíu ár starfseminnar og átti sinn þátt í því að beina henni inn á þær farsælu brautir, sem hún hefur fetað síðan. Þessi orð sálmaskáldsins, fannst Jóni, skýra eðli og veru hjálparstofnunar, sem kirkjan starfrækir, en um leið lýsa þau mannskilningi Jóns, lífsskoð- un og stefnu, enda var Jón ötull að leggja góðum málum lið. Þannig gekk hann um veg lífsins, að lífið er gjöf Guðs, sem hverjum og einum er trúað fyrir, því er ábyrgð mannsins mikil á lífi sínu og umhverfi og honum ber að ávaxta vel sitt pund. Jóni var ákaflega ljóst mikilvægi þess arfs, sem fortíðin hefur lagt okkur í skaut og nauðsyn þess að varðveita þennan dýrmæta arf. Að Jóni stóðu stórar og merkar ættir, frændgarður því mikill að vöxtum, sem hann rækti vel og mat mikils. Honum varmikiðímun.aðarfurinn, sem hann hlaut, flyttist áfram, arfur menningar og lífsskoðunar, sem er undirstaða þeirrar þjóðmenningar, sem fslendingar byggja á í samtíman- um. Jón var mikill lánsmaður í fjöl- skyldulífi sínu, var kvæntur framúr- skarandi myndarlegri konu, Þórnýju Tómasdóttur, sem bjó manni sínum og börnum þeirra fjórum einstaklega hlýlegt og fallegt heimili, og þangað sótti Jón endurnýjun og endurnær- ingu til nýrra átaka. Naut ríkulega samvista við fjölskyldu sína, tengda- börn og barnabörn. Leið honum jafnan best, þegar þau voru öll saman og voru það ávallt stórar stundir í huga hans, þegar þau settust til borðs og mikit hátíð. Það var vor og það var hátið að vera með Jóni Kjartanssyni, maður veitull, gestrisinn og rausnarlegur, hlýlegur í viðmóti og aðlaðandi. Þau hjónin voru ákaflega samhent í því að taka vel á móti gestum sínum og búa tækifærinu þann ramma, sem hæfði, Jón skemmtinn og skrafhreifinn, orð- heppinn og hnyttinyrtur, litríkur og fylginn sér. Það heíur stórt skarð og vandfyllt myndast. Jón var það stór í huga þeirra, sem kynntust honum, enda setti hann mikinn svip á umhverfi sitt og samtíð. Hans verður minnst og saknað. Efst í huga mér og fjölskyldu minnar er þakklæti fyrir vináttu, elskulegheit og stuðning. Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins. (Job. 1:2/). einn mætasti sonur Siglufjarðar, sem ætíð var reiðubúinn að fórna kröftum sínum fyrir málefni Siglfirðinga og Siglufjarðar. Þegar fréttin um lát þessa trausta og góða vinar Siglfirðinga barst til bæjarins, var fólki efst í huga söknuð- ur og þakklæti. Söknuður vegna vinar í stað, sem ætíð leit á Siglfirðinga sem eina heild, hvort sem var heima eða heiman og þakklæti fyrir öll þau fórnfúsu og óeigingjörnu störf sem hann innti af hendi í þágu bæjarbúa allt sitt líf. Jón Kjartansson var fæddur 5. júní 1917, og var því 68 ára er hann féll frá. Fyrstu 40 ár ævi sinnar átti hann heima í Siglufirði, eða þar til hann gerðist forstjóri Áfengisverslunar ríkisins árið 1957. Á Siglufjarðarárum sínum gegndi Jón margvíslegum störfum, þar til hann gerðist bæjarstjóri Siglfirðinga árið 1949. Bæjarstjórastarfinu gegndi hann til ársins 1958. Á þessu tímabili voru miklir erfið- leikar hjá bæjarfélaginu, vegna brott- hvarfs síldarinnar, og þeirra áfalla sem bæjarfélagið varð fyrir þegar atvinnulífið hreinlega lagðist i rúst. í störfum sínum sem bæjarstjóri sýndi Jón hversu gífurlegur baráttu- maður hann var, er hann barðist fyrir enduruppbyggingu og endursköpun atvinnulífs bæjarins á þessum tíma. Hann hafði forgöngu af hálfu bæjarfélagsins um togaraútgerð og að frystihúsrekstur og fiskvinnsla var hafið, sem sókn til nýrrar atvinnuupp- byggingar, á þessum tíma. Sá sem þetta skrifar minnist skemmtilegrar frásagnar Jóns, af ótrúlegri baráttu hans í Reykjavík, þegar hann fór suður, eins og sagt var til þess að sækja togarann Hafliða. ■ Jón Kjartansson ásamt vígslubiskupunum sr. Sigurði Guðmundssyni t.v. og sr. Ólaffi Skúlasyni t.h. Fegurð vetrarnæturinnar og friður voru mikil er gengið var úr kirkju eftir að Jón hafði verið þangað borinn, hann var kominn heim og náttúran skartaði. Megi friður og fegurð ríkja í minningunni um Jón Kjartansson. Tómas Sveinsson Jóns Kjartanssonar minnst á Alþingi Þorvaldur Garðar Kristjánsson forseti Sameinaðs þings minntist Jóns Kjartanssonar á Alþingi á eftirfarandi hátt: „Jón Kjartansson, forstjóri og fyrr- verandi alþingismaður varð bráð- kvaddur síðastliðinn fimmtudag, 21. nóvember, 68 ára að aldri. Hann var þá staddur á heimili sonar síns í Hamborg. Jón Kjartansson var fæddur á Siglu- firði 5. júní 1917. Foreldrar hans voru Kjartan byggingarmeistari þar Jónsson, síðast prófasts að Hofi í Vopnafirði og kona hans, Jónína Tómasdóttir prests á Hvanneyri í Siglufirði, síðar að Barði í Fljótum Bjarnasonar. Hann lauk prófi frá Samvinnuskólanum vorið 1935 og fór náms- og kynnisför til Danmerkur og Noregs 1938. Verkstjóri við Síldar- verksmiðjur ríkisins á Siglufirði var hann 1935-1942. Hann var 1943-1946 skrifstofustjóri Þórmóðs Eyjólfsson- ar, hlutafélags sem annaðist skipa- afgreiðslu og hafði umboð trygginga- félaga. Þá var hann umboðsmaður Samvinnutrygginga, Flugfélags ís- lands og fleira félaga 1947-1949 og rak jafnframt eigin söltunarstöð og útgerð í félagi við annan Siglfirðing 1947-1948. Hann var bæjarstjóri á Siglufirði 1949-1958, forstjóri Áfeng- isverslunar ríkisins 1957-1961 og síð- an forstjóri Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins frá 1961 til dánardags. Jón Kjartansson var í stjórn Síldar- verksmiðja ríkisins ýmist sem aðal- maður eða varamaður frá 1947. Hann var vararæðismaður Finnlands á Norðurlandi 1953-1958 og aðal- ræðismaður Finnlands á lslandi 1965- 1968. Formaður stjórnarnefndar Hjálparstofnunar kirkjunnar var hann 1969-1979, í stjórn stofnunar- innar Aðstoðar íslands við þróunar- löndinfrá 1971 og kjörinn endurskoð- andi Útvegsbanka íslands frá 1971. Frá 1977 var hann í fulltrúaráði sjálfseignarstofnunarinnar um rekst- ur Landakotsspítala. Hann var fyrsti varamaður þingmanna Framsóknar- flokksins í fjarveru aðalmanna á öll- um þingum nema einu til vors 1969, á 9 þingum alls. Við fráfall Skúla Guðmundssonar skömmu fyrir þing- setningu haustið 1969 hlaut hann fast sæti á Alþingi það sem eftir var kjörtímabilsins og sat þá á tveimur þingum til vors 1971. Jón Kjartansson átti heima á Siglu- firði fjóra fyrstu áratugi ævi sinnar. Hann hóf störf sem sendisveinn hjá Síldarverksmiðjum ríkisins, varð verkstjóri þar innan tvítugs og síðast lengi í stjórn verksmiðjanna. í störf- um sínum þar og margs konar um- boðsstörfum og félagsstarfsemi hlaut hann náin kynni af málum bæjarfélags og bæjarbúa. Hann var ráðinn bæjar- stjóri á tíma síldarleysis og erfiðleika bæjarfélagsins af þeim sökum. í störf- um sínum þar sýndi hann dugnað, árverkni og fyrirhyggju og hafði for- göngu af hálfu bæjarfélagsins um nýjar atvinnugreinar, togararekstur og fiskvinnslu. Bæjarfélagið á Siglu- firði átti löngum hug hans, þótt hann flytti brott þaðan til nýrra starfa. Hann sinnti ekki síst málefnum þess þann tíma sem hann sat á Alþingi og hann var árum saman formaður Sigl- firðingafélagsins í Reykjavík. Hér syðra stjómaði hann lengi og vel viðamikilli ríkisstofnun. Við skyndi- legt fráfall hans er á bak að sjá mikilhæfum manni, sem um ævidag- ana var kvaddur til forustu á ýmsum sviðum þjóðmála og félagsmála og skilaði giftudrjúgu ævistarfi. Ég vil biðja háttvirta alþingismenn að minnast Jóns Kjartanssonar með því að rísa úr sætum.“

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.