NT - 03.12.1985, Síða 12
■ Jón Kjartansson flytur kveðjuræðu sína þegar hann lét af störfum sem
formaöur Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Jón Kjartansson
Fjallasýn þykir einstaklega fögur í
Biskupstungum, þegar komið er upp
á Torfastaðaheiði og horft til norðurs.
Lengst í vestri er Laugarvatnsfjall, en
Bláfell lengst í austri. í góðu skyggni
blasir Langjökull við í fjallahringn-
um, eins og tignarlegt hvítt ský mitt í
bláma himins og jarðar.
Stórbrotnast fjalla og hæst sunnan
jökuls er Hlöðufell, en skammt þar
frá er Rótasandur, þar sem Brúará á
upptök sín. Raunar eru aðalupptök
hennar í Brúarárskörðum, þar sent
hún sprettur fram í djúpu gili. Ekki
er hún mikil að vöxtum við upptök
sín, en fljótlega breiðir hún úr sér og
liðast þannig áfram sem stórfljótTnilli
grösugra bakka sinna, sameinast
Hvítá, skammt fyrir neðan Skálholt.
Á leið sinni til ósa rennur hin sögu-
fræga elfa um land Syðri-Reykja, en
þar hafði Jón Kjartansson ásamt
fjölskyldu sinni reist sér sumarbústað
á bökkum árinnar. Það er ekki of
djúpt í árinni tekið, þó að sagt sé, að
Jón og Þórný kona hans hafi tekið
ástfóstri við þennan stað, sem Jón
nefndi gjarnan elliheimilið sitt í gam-
ansömum tón. Það var ekki aðeins
umhverfið, hinn stórbrotni fjalla-
hringur og áin, sem dro þau að,
heldur einnig áhuginn á trjá- og
gróðurrækt, sem sumarbústaðaland
þeirra ber glöggt vitni um. Sem næsti
nágranni Jóns hafði ég stundum orð
á því við hann, að trjágróðurinn í
landi hans ætti ekki síður eftir að ylja
mér og minni fjölskyldu, þegar stund-
ir liðu fram.
Mjög gestkvæmt var hjá Jóni og
Þórnýju í bústaðnum fyrir austan.
Komu þar bæði innlendir og erlendir
gestir. Á Syðri-Reykjum var Jón vel
í sveit settur að því leyti, að stutt var
að fara með erlenda gesti til að skoða
sögufræga og áhugaverða staði eins
og Skálholt og Geysi. Naut Jón sín
vel í hlutverki gestgjafans. En mestu
gleðistundirnar voru áreiðanlega þær,
þegar barnabörnin komu með afa og
ömmu austur í sumarbústað. Var oft
glatt á hjalla á fögrum sumardögum,
þegar börnin skiptust á heimsóknum
milli sumarbústaðanna.
Sá, sem þessar línur skrifar, hafði
kynnst Jóni Kjartanssyni löngu áður
en leiðir lágu saman sem nágrannar á
Syðri-Reykjum. í amstri og dægur-
þrasi stórborgarinnar gáfust allt of fá
tækifæri til að spjalla saman. Öðru
máli gegnir, þegar komið er út fyrir
skarkalann. Jón var hafsjór fróðleiks
um menn og málefni og fylgdist
grannt með öllum hræringum í þjóðfé-
laginu. Sérgáfa hans var að sjá hinar
broslegu hliðar lífsins, og þekkti ég
engan, sem kunni betur að segja
gamansögur, án þess þó, að meiða
nokkurn.
Jón færði það oft í tal við mig, að
hann hlakkaði til að njóta elliáranna
fyrir austan, þegar annasömum starfs-
ferli lyki. Á prjónunum hafði hann
m.a. að byggja litla sundlaug og nýta
heita vatnið á Syðri-Reykjum. Rækt-
un og fegrun umhverfisins var ofar-
lega á baugi, og á því sviði virtist hann
alltaf finna ný og ný verkefni.
Þegar Jón Kjartansson er nú horf-
inn á braut, verður allt miklu tótn-
legra. En fjöllin standa, há og tignar-
leg, og áin okkar rennur áfram milli
bakka sinna, og minnir okkur á
ódauðleikann.
Alfreð Þorsteinsson.
Jón Kjartansson var mikill Siglfirð-
ingur. Sú taug, sem batt hann æsku-
stöðvunum, varð ekki að bláþræði í
tímans rás; miklu fremur að hún yrði
veigameiri með árunum. Ekkert var
Siglufirði of gott eða Siglfirðingum
heima og heiman.
Þeir eðlisþættir, sem standa mörg-
um vinum hans skýrast fyrir hugskots-
sjónum, eru góðvild og hjálpfýsi.
Mér er í barnsminni að á orði var haft
um hann ungan hversu góður hann
væri móður sinni en hún hafði orðið
að sjá á bak manni sínum á besta
aldri. Slíkur var hann og vinum,
sínum ævina alla.
Ég hef líklega verið sex vetra þegar
Jón og Kristján Dýrfjörð tóku mig
inn í tóbaksbindindisfélagið Gunnar.
Oft hafði ég orð á því við hann að þeir
Dýrfjörð, ásamt frú Þóru Jónsdóttur,
hefðu bundiði mig hugsjóninni um
„veröld án vímu“ það rammlega að
engar tískusveiflur fengju þar nokkru
um þokað.
Síðar á ævinni varð það hlutskipti
Jóns Kjartanssonar að stýra Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins. Ég hygg
hann hafi gert sér ljósa ábyrgð sína og
þann reginmun sem er á ríkiseinka-
sölu áfengis og frjálsum leik gróðaafla
með heilsu og hamingju manna þar
sem sala þessa vímuefnis er með
öðrum hætti. - Hann sagði í ræðu í
samkvæmi slarfsmanna fyrsta árið
sem hann gegndi forstjórastarfinu að
í stofnuninni mætti helst enginn vinna
er þætti áfengi betra en blek. Og
leyfist mér að bæta við: Enginn ætti
að hafa ábata af því að sala áfengis
aukist; ef eitthvað væri þá hið gagn-
stæða.
Jón Kjartansson átti mikilhæfa
móður og hann eignaðist einnig hina
ágætustu konu, Þórnýju Tómasdótt-
ur.
Vinir þeirra hjóna, þeir sem forð-
um áttu heima að Hlíðarvegi 19,
senda henni og ástvinum hennar hug-
heilar samúðarkveðjur um leið og
þeir minnast góðs drengs með virð-
ingu og þökk.
Ólafur Haukur Árnason.
Mðjudagur 3. desember 1985 12
■ í porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu á laugardaginn: Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri kvaddi lögreglumenn
með handabandi áður en hann lét af störfum. í fylgd með honum eru þeir Óskar Ólason og Bjarki Elíasson
yfirlögregluþjónar. NT-mynd: Ámi Bjama.
Nýr lögreglustjóri Reykvíkinga tekur við embætti:
„Tók engar stórákvarð-
anir á fyrsta degi“
- sagði Böðvar Bragason um fyrsta starfsdag sinn
■ „Ég er búinn að vera að koma
mér inn í málin í dag, kynnast
samstarfsfólki mínu og líst mjög vel á
starfið,“ sagði Böðvar Bragason eftir
fyrsta daginn í embætti lögreglustjór-
ans í Reykjavík, í samtali við NT í
gær.
Böðvar sagðist hafa ýmsar áætlanir
á prjónunum varðandi starfið, en of
snemmt væri að tjá sig nokkuð um
þær, að vart afloknum fyrsta degi,
enda fáar ákvarðanir búinn að taka.
„Ég er búinn að kynna mér sérstaka
skýrslu norskra sérfræðinga um lög-
gæslu á höfuðborgarsvæðinu, þar sem
m.a. eru tillögur um miklar skipulags-
breytingar löggæsluumdæma á svæð-
inu. Þetta er mjög athyglisverð
skýrsla og verður væntanlega kynnt
eftir að dómsmálaráðherra og yfir-
menn löggæslumála hafa tekið hana
til athugunar á rnorgun."
Varðandi uppsagnir sem hafa verið
óvenju miklar innan lögreglunnar
undanfarið, sagði Böðvar að það
væri dómsmálaráðuneytisins að að-
hafast eitthvað í þeim málum, þótt
hann hefði ýmsar tillögur um það.
„Raunar hangir þetta allt saman
■ Sigurjón afhenti Böðvarí Bragasyni nýsettum lögreglustjóra, lyldana að
öllum hirslum innanhúss í lögreglustöðinni um leið og hann lét af embætti á
sunnudag. Viðstaddir voru f.v. Stefán Hirst skrífstofustjórí lögregluembættisins,
Guðmundur Hermannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Óskar Ólason yfírlög-
regluþjónn, Árni Sigurbjömsson yfírmaður útlendingaeftirlitsins, Bjarki
Elíasson yfírlögregluþjónn, Hjalti Zophoníasson deildarstjórí í dómsmálaráðu-
neytinu og William Möller aðalfulltrúi lögreglustjóra. NT-mynd: Sverrír.
við hugmyndirnar um þessa endur- íúta að þessum málum. Má því vera
skoðun í norsku skýrslunni sem að hægt sé að fá lausn á þeim án þess
dómsmálaráðherra kynnir sér á að til teljandi vandræða komi,“ sagði
morgun, þar eru ýmsar tillögur sem Böðvar að lokum.
■ Innan við klst. eftir að kallað var á þyrluna, var hinn slasaði kominn á spitala. NT-mjnd: Sverrir.
Fyrsta sjúkraflug TF-SIF
- flaug með slasaðan mann frá Akranesi
® 17 ára piltur liggur nú þungt yar hann fluttur mikið slasaður
haldinnágjörgæsludeidBorgarspítal- með sjúkrabifreið til Akraness, en
ans eftir að ekið var á hann gangandi þangað var hann sóttur af þyrlu
á veginum skammt frá Saurbæ á Landhelgisgæslunnar TF-SIF og flutt-
Hvalfjarðarstrond, upp úr miðnætti ur a Borgarspítalann.
aðfaranótt laugardags.
Þess má geta að þetta var fyrsta
sjúkraflug þyrlunnar TF-SIF og gekk
það mjög greiðlega, um 50 mínútum
eftir að kallað var á þyrluna, var
pilturinn kominn á spítalann.