NT


NT - 03.12.1985, Síða 13

NT - 03.12.1985, Síða 13
Verslunarráð íslands: Mótmælir frestun nýrra tollalaga ■ Stjórn Verslunarráðs Islands mótmælir því að ríkisstjórnin hefur ákveðið að fresta því að leggja fram nýtt frumvarp til tollalaga, en það átti að verða að lögum upp úr áramótum. Telur stjórn Verslunarráðs að með þessu sé enn einu sinni verið að fresta umbótum á löngu úreltri tollalöggjöf. Ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin ákvað að fresta þessari lagasetningu einsog lesendum er kunnugt sú að til að vega upp á móti tekjutapi af nýju tollalögunum átti að breyta vörugjaldsálagningunni og hefði það haft í för með sér mikla hækkun á framfærslukostnaði. Ríkisstjórnin taldi ekki hægt að koma með slíkar hækkanir nú þegar kjarasamningar eru framundan. í fréttatilkynningu frá Verslunar- ráði segir, að það sé löngu tímabært að einfalda framkvæmd tollheimt- unnar og samræma aðflutningsgjöld. í bréfinu er ítrekað að stefnt skuli að lækkun tolla. Þá er skorað á ríkis- stjórnina að endurskoða ákvörðun um að fresta tollafrumvarpinu. ■ Gísli Hannesson húsvörður Flataskóla með steinana sem notaðir voru til að brjóta rúður skólans. Á innfelldu myndinni sést hvemig gluggar skólans vora leiknir. NT-mynd: ES. Flataskóli í Garðabæ: Tuttugu rúður brotnar ■ Tuttugu rúður voru brotnar með grjótkasti, í Flataskóla um helgina. Mikið hefur verið um rúðubrot í skólanum síðustu vikur. Steinarnir sem notaðir voru við rúðubrotin, voru margir hverjir á stærð við hnefa manns. Gísli Hannesson húsvörðurskólans lýsti óánægju sinni í samtali við NT. Hann hefur undangengnar vikur þurft að hefja daginn, á mánudögum, með því að ganga frá brotnum rúðum. „Þetta er farið að líkjast fangelsi,“ sagði Gísli. Víða eru stórir timbur- flekar fyrir brotnum gluggum. Rannsóknardeild lögreglunnar í Hafnarfirði hefur fengið málið til rannsóknar. Þórðarhús í Vestmannaeyjum lýst gjaldþrota ■ Trésmiðja Þórðar h/f í Vest- land. mannaeyjum hefur verið tekin til Stöðugt vaxandi fjárhagserfiðleik- gjaldþrotaskipta. Lýst hefur verið ar trésmiðjunnar munu hafa ollið því eftir kröfum í búið og skiptafundur að hluthafar óskuðu eftir því við boðaður í febrúar á næsta ári. skiptaráðanda að búið yrði tekið til Fyrirtækið var á sínum tíma þekkt gjaldþrotaskipta og tveggja mánaða fyrir framleiðslu einingahúsa úr frestur veittur þeim er telja til skulda timbri sem reist voru víðs vegar um í búinu að lýsa kröfum sínum. ÞrlAJudagur 3. desember 1985 13 LANDSBANKINN BÝÐUR ÖRUGG SKULDABRÉF 9,8% ÁRSÁVÖXTUN UMFRAM VÍSITÖLUHÆKKANIR Landsbanki íslands býður nú til sölu í öllum afgreiðslum sínum og hjá fjármálasviði bankans að Laugavegi 7, skuldabréf Sambands íslenskra samvinnufélaga. m / ; / eildarfjárhæð útboðsins er 100 milljónir i V króna. Sérskuldabréfin eru til 3ja og 5 ára að upphæð kr. 10.000.-, 50.000.- og 100.000.-. andsbanki íslands skuldbindur sig til þess að annast endursölu bréfanna á markaðsverði eigi síðar en mánuði eftir að honum berst beiðni um sölu. öluverð skuldabréfa SÍS verður sem hér segir vikuna 2.-6. desember: Bréf að upphæð Til 3ja ára Til 5 ára Kr. 10.000,00 Kr. 50.000,00 Kr. 100.000,00 Kr. 8.560,70 Kr. 42.803,50 Kr. 85.607,00 Kr. 7.710,70 Kr. 38.553,50 Kr. 77.107,00 Nánari upplýsingar veita verðbréfadeildir bankans um allt land og fjármálasvið Laugavegi 7, sími 621244. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna íltgerðamenn — skipstjórar Nú getum við útvegað VARLET flökunarvélina um borð í fiskiskip. ATH.! ★ ★ ★ ★ ★ Vélin flakar fisk frá 1,5 kg — 7 kg Vélin er sáraeinföld í notkun. Vélin er fyrirferðalítil. Vélin er ódýrust. (Kynntu þér verðmuninn). Viðhald er sáralítið. (Reynslan sýnir það). UP^ ÆQISGÖTCJ 10, 101 REYKJAVÍK SÍMAR:21380 - 22018

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.