NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 03.12.1985, Qupperneq 15

NT - 03.12.1985, Qupperneq 15
ÞriAJucJagur 3. desember 1985 15 ■ Nývöknud, nýkomin inn úr níst- ingskuldanum. Nemendur í Leik- listarskólanum hittast eldsnemma á fímmtudagsmorgnum til að funda. En það er líka í eina skiptið sem allir nemendur skólans hitta hver annan. NT*mynd: Róbert. ■ Og klósettið á Lækjargötunni gegnir ýmsum hlutverkum. Þar eru geymdir munir og stundum hafa kennslustundir meira að segja farið þar fram. Húsnæðismál skólans breyttust mjög til hins verra þegar þau fyrir tveimur árum misstu aðstöðuna sem þau höfðu í gamla Miðbæjar- skólanum. NT-mynd: Sverrir. ■ Guðrún Haraldsdóttir skrifstofustúlka og Helga Hjörvar skólastjóri á skrifstofunni á Lækjargötunni. Þegar ég spurði Guðrúnu að því hvað ætti nú að titla hana, spurði hún Þröst Leó að því hvað hún væri eiginlega. „Þú er ágæt“ svaraði Þröstur að bragði. Ætli fleiri vildu ekki taka undir það? NT-mynd: Sverrir. ■ Kaffístofa nemenda í húsinu við Lækjargötu rúmar ekki ýkja marga. Á myndinni má sjá „gamlan“ nemenda í skólanum sem útskrifaðist í fyrra, Þröst Leó Gunnarsson og blaðamannsgarminn sem var alveg viss um að hún færi ekki inn á mynd- ina. NT-mynd: Svenir. ■ Systurnar þrjár í Tjéko vleikritinu eiga ekki sjö dagana sæla þótt líf þeirra sé nú ekki alveg hábölvað og ömurlegt. Þær eiga vonir og þrár en svo er bara að sjá hvernig úr þeim rætist. Sýningar á leikritinu, þegar það er fullæft, eru opn$r almenningi, ef þið skylduð ekki hafa vitað.... NT-mynd: Sverrir. Ég spyr hana hvað það séu margir nemendur í skólanum. „23 í þremur bekkjum, á stöðugu flakki. Við miss- um aðstöðuna á Seltjarnarnesi í byrj- un desember, við höfum húsið hér í Lækjargötu aðeins í nokkra mánuði í viðbót, en Reykjavíkurborg á húsið og hefur sagt leigusamningnum við okkur upp. Við fáum inni á Fríkirkju- vegi þegar húsnæðið þar er laust, Þar eru fundir á vegum Æskulýðsráðs, hljómsveitaræfingar, þar starfa leik- listarklúbbar, og fleira og fleira. Við vonumst til að fá að vera þar áfram en Æskulýðsráð sem hefur með húsið að gera hefur hins vegar engar skuld- bindingar gagnvart okkur og ef það yrði veruleg ásókn í húsið á daginn gæti ég ímyndað mér að við yrðum látin víkja. Það er nánast ógjörningur að halda úti skólastarfi við þessar aðstæður, það fer ótrúlega mikið þrek í að skipuleggja hlutina svo þetta gangi nokkurn veginn upp. Fyrir utan það að þurfa alltaf að vera að flytja tæki á milli staða, hengja upp ljóskastara á nýjum og nýjum stað. Leikmyndin passar ef til vill ekki inn í nýja staðinn og þessu fylgir hræðilegur kostnaður og vinna. Það væri miklu betra og ódýrara ef allir hlutir væru á sama stað því þá væri hægt að samnýta hlutina. Og síðast en ekki síst er það mjög óhollt fyrir nemendur að vera alltaf að skipta um umhverfi. Þau fara í leikfimi á einum stað, hita sig upp og þurfa svo að fara út í kuldann á næsta stað, og byrja aftur á að hita sig upp. Þau fara nú einu sinni í leikfimi m.a. til að hita sig upp fyrir daginn. Það er nógu alvarlegt hve aðstaða okkar á öllum þessum stöðum er ótrygg og erfið en alvarlegast af öllu er þó auðvitað það að með þessu móti er okkur gert gersamlega ókleift að sinna því hlutverki að mennta leikara sem eiga að geta fyllt sal Þjóðleik- hússins og að ekki sé minnst á nýja Borgarleikhúsið. Það hefur verið mál manna að sýningar Nemendaleik- hússins að undanförnu og þátttaka nemenda í sýningu Leikfélgs Reykja- víkur í fyrra hafi tekist vel en þar er um að ræða leikaraefni sem stunduðu nám við mikiu betri aðstæður en nú er. Núverandi 1. bekkur er fyrsti árangur sem hefur nám við þessar slæmu aðstæður og það er ekkert skrítið þó þeim þyki það undarlegt að hafa undirgengist strangt inntökupróf en geta svo ekki stundað námið almennilega vegna húsnæðisleysis. Eigi þau að stunda sambærilegt nám og aðrir árgangar skólans verður að bæta húsnæðisaðstöðuna strax." Helga lítur á klukkuna. „Heyrðu, viltu ekki bara koma með mér, ég á að fara að kenna 1. bekk út á Fríkirkjuvegi og tíminn er að fara að byrja.“ Ég er auðvitað til í það og saman göngum við í kuldanum, vefj- um yfirhafnirnar þéttingsfast utan um okkur og súpum hveljur í frostinu. „Þetta er 11. starfsár skólans og aðstæður hafa aldrei verið verri,“ segir Helga, „við höfum alltaf haldið ]' vonina um að þetta hlyti að lagast, höfum ekki verið hávær í kröfum okkar og héldum að rök myndu duga, en ekki einhver hávaði. Þetta hlýtur að lagast,“ segir Helga með áherslu," ég bara trúi ekki öðru.“ Þegar við komum inn í kjallarann á Fríkirkjuveginum eru krakkarnir í 1. bekk búin að vera að hita sig upp. Þau eru klædd í þægilega búninga, leikfimiboli, joggingbuxur, sum í legghlífum en öll berfætt. - Eruð þið búin að hita ykkur nóg upp, spyr Helga. - Við erum heit, en ekki með nógu góða einbeitingu, svarar Steinunn. - Viljiði þá ekki smástund til að hvíla ykkur til að gera einhverjar æfingar í ró og næði, spyr Helga. - Jú, segja krakkarnir sem koma sér fyrir í einbeitingarþrunginni þögn. Þau fara sum í innhverfa stöðu, anda djúpt að sér, teygja sig og anda djúpt frá sér. 5 mínútum síðar standa þau upp og láta samkvæmt fyrirskipun Helgu hina ýmsu líkamsparta leiða sig áfram. Ég horfi stóreygð á. Sum láta olnbogann leiða sig áfram, önnur aðra öxlina, þriðju nefið, fjórðu mjöðmina, o.s.frv. - Og svo skulum við taka fuglinn, segir Helga. Og krakkarnir ímynda sér að þau séu fuglar, breiða út vængina og taka flugið. - Og köttinn, segir Helga. Og á svipstundu eru krakkarnir farnir að hvæsa á hvort annað, sleikja á sér loppurnar, og fitja sig fimlega áfram, laumuleg eins og köttum er tamt að gera. - Nota allt rýmið, segir Helga. Og nú apann, og þá skuluð þið finna vel fyrir þyngdinni í fótunum... Einbeitingin lýsir úr andlitum krakkanna sem hafa ótrúlega stjórn á hverjum einasta líkamsvöðva og þau mása og blása eins og vindurinn úti fyrir... Og allar eru þessar æfingar undirbúningur fyrir spunann sem þau taka á eftir svo ekki sé minnst á kaflana úr Machbeth eftir meistara Shakespiere sem þau æfa af kappi. Ja, það er ekki beint beysið að vera nemandi í Leiklistarskólanum á þess- um síðustu og verstu tímum. En öll halda þau í vonina með Helgu um að málin hljóti að leysast fyrr eða síðar. NT hafði samband við Örlyg Geirs- son í menntamálaráðuneytinu sem hefur með mál skólans að gera. Hann sagði að þau væru á bólakafi við að leysa málið en ekki væri tímabært að skýra frá því hvaða lausnir yrðu fyrir valinu. Og Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra tók í sama streng og sagðist hafa mikinn hug á að leysa vanda þessa mikilsverða skóla, eins og hann orðaði það svo skemmtilega. Og þá er bara að bíða og vona... Texti: Mrún i

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.