NT - 03.12.1985, Síða 21
tæ
Þriðjudagur 3. desember 1985 21
Myndi
DAVID OSBORN
SAMSÆRIÐ
/4h*c TffatAto
LEIKMR flb ELbl
Ast og svik
■ Samsærið, heitir ný skáld-
saga eftir David Osborn, sem
Prentver hefur sent frá sér.
Heiti bókarinnar á frummálinu
er: „Love and Treason“.
í fréttatilkynningu frá út-
gefanda segir: „Þetta er mögnuð
spennusaga, með jöfnum og
hröðum stíganda, hraðri at-
burðarás og óvæntum endi. CIA
og FBI koma mikið við sögu og
þeim, sem þekkja til sögusviðs-
ins í Washington, finnst margt
koma kunnuglega fyrir.“ Bókin
hefur hlotið mikið lof gagnrýn-
enda. Alistair Mac Lean skrif-
aði: „Það verður ekki gefin út
betri bók í ár...“
Bókin er 220 blaðsíður. Ás-
geir Ingólfsson íslenskaði.
Ljóð og ristur
■ Út er komin á Akureyri
ljóðabókin Hvar stend ég þegar
ég flýg eftir Bjarna Einarsson. t
bókinni eru 48 ljóð og 6 dúkrist-
ur á ríspappír eftir Guðmund
Ármann myndlistarmann. Hér
er höfundur bókarinnar í fjöru-
borði.
Hávaxinn,
frægur og ríkur
■ Út er komin ný skáldsaga
eftir Anne Mather, Leikur að
eldi. Þetta er fimmta sagan, sem
kemur út á íslensku eftir höf-
undinn. 1 bókarkynningu segir:
Susan hafði aldrei hitt glæsilegri
mann, en Dominic Hallstad.
Hávaxinn, frægan og ríkan. Það
var ekki að undra, þó að Susan
fyndist unnusti sinn blikna við
hlið hans. Henni þótti David
leiðinlegur og hversdagslegur.
Smám saman skildist henni, að
móðir Davids var honum mikil-
vægari en hún og þá hófust
vandræðin. Hvaða leyfi hafði
hún samt til að hugsa um Dom-
inic, þó að hún hætti við David?
Hvernig dirfðist Dominic að
endurgjalda tilfinningar hennar
- hann, kvæntur maðurinn...
Bókin er 176 blaðsíður. Útgef-
andi er Prentver.
Klara Sig.
bælir ótta sinn
■ Nótt í lífí Klöru Sig. er ný
skáldsaga eftir Stefaníu Þor-
grímsdóttur. Þetta er önnur bók
hennar en fyrir tveimur árum
sendi hún frá sér Söguna um
Önnu.
Klara Sig. - hálffertug, glæsi-
leg, gift öndvegismanni í góðri
stöðu - býður karlmanni með
sérheim afballi. Eiginmaðurinn
er fjarverandi og ljúft helgar-
ævintýri í vændum. En spegl-
arnir, sem Klara skoðar sig í,
brotna og hún stendur varnar-
laus frammi fyrir nóttinni. „í tíu
ár hefur hún verið Klara, sterk
sjálfbjarga, frambærileg. Hún
hefur bælt ótta sinn, agað vilja
sinn, unnið sigra, gætt þess að
vega fremur en að vera vegin.
Og hvers vegna ekki?“ hugsar
söguhetjan með sjálfri sér.
Af næmi hins þroskaða lista-
manns lýsir Stefanía ótta og
einsemd þess sem reist hefur
hús sitt á sandi í einni eftir-
minnilegustu kvenlýsingu ís-
lenskra bókmennta á seinni
árum.
ÚLFAGRENIÐ
VIÐ HLIÐ VÍTIS
Nýrflokkur
teiknimyndasagna
■ Út eru komnar hjá Iðunni
tvær fyrstu bækurnar í nýjum,
flokki teiknimyndasagna. Hér
eru á ferðinni ósviknar spennu-
bækur unglinga „á öllum aldri“.
Aðalsöguhetjan heitir Frank
Fanndal, blaðamaður og einka-
spæjari. Frank hefur einstakt
lag á að koma sér í lífsháska og
er oft ekki nema hársbreidd frá
dauðanum þegar hann á í höggi
við hvers kyns lögbrjóta.
önnur bókin nefnist Úlfa-
grenið. Dularfull og óhugnanleg
skemmdarverk eru framin í
fjallaþorpi í ölpunum. Skammt
þar frá er verið að reisa stór-
virkjun og tengist bygging henn-
ar þessum atburðum. Frank er
fenginn til að upplýsa málið, en
þó er svo að sjá sem einhver vilji
hann feigan frá upphafi!
DENNIDÆMAIAVSI
„Það er í sjálfu sér ekkert slæmt að vera lítill, bara
passa sig á að líta ekki upp. “
4735.
Lárétt
1) Tónskáld. 5) Strákur. 7)
Mjólkurmat. 9) Bók. 11)
Horfði. 12) Efni. 13)
Lemja. 15)Bára. 16) Trjá-
mylsna. 18) Skamma.
Lóðrétt
1) Hesta. 2) Net. 3) 550. 4)
Málm. 6) Vera á fótum. 8)
Andi. 10) Fhót. 14) Kær-
leikur. 15) Otta. 17) Tví-
hljóði.
Ráðning á gátu No. 4734
1) Gammar. 5) Úir. 7) Los
Bað. 16) Æfi. 18) Skæður.
1) Geldur. 2) Mús. 3) Mi
14) Læk. 15) Bið. 17) Fæ.
Lárétt
9) Kám. 11) Dr. 12) Ká. 13) Uml. 15)
Lóðrétt
4) Ark. 6) Smáður. 8) Orm. 10) Áka.
Hin bókin heitir Við hlið
vítis. í henni lenda Frank og
vinur hans, Nonni, fyrir tilviljun
í óskemmtilegum lífsháska. Til-
raunir með gereyðingarvopn
fara úr böndunum, líf á jörðinni
hangir á bláþræði og engu er
líkara en djöfladýrkun og svarti-
galdur frá miðöldum ráði at-
burðarásinni. Kölski skyldi þó
aldrei vera til?
Bækurnar eru eftir franskan
höfund, Jacques Martin. Jón
Gunnarsson íslenskaði. Bæk-
urnar eru prentaðar í Belgíu.
AFJARWÖR
LANDSMÓÐURINNAR GÖMLU
Margræðni
manneðlisins
■ Af jarðarför Landsmóður-
innar gömlu nefnist skáldverk
sagnameistarans mikla Gabriels
García Márquez. Þorgeir Þor-
geirsson þýðir verkið úr
spænsku. Fáir rithöfundar okk-
ar tíma hafa vakið jafn verð-
skuldaða athygli og aðdáun og
Nóbelsskáldið frá Kólumbíu en
áður hafa komið út eftir hann á
íslensku skáldsögumar Liðsfor-
ingjanum berst aldrei bréf,
Hundrað ára einsemd og Frá
sögn um margboðað morð.
Söguheimur verksins er
kunnur úr fyrri sögum höfund-
ar: Makandó, heimur stöðnun-
ar, uppgjafar, elli og úrkynjun-
ar. Ándrúmsloftið er mettað
raka og hitasvækjan óbærileg.
íbúar Makondó skapa enga
sögu, þeir þrauka aðeins og
bíða. - Höfundurinn afhjúpar
margræðni manneðlisins af hlífð-
arleysi og írónískri glettni.
Grimmdin og siðleysið er
endurtekið yrkisefni hans um
leið og hann bregður upp ó-
gleymanlegum myndum af þeim
sem sporna við niðurlægingunni
þótt uppreisn þeirra sé van-
burða og næstum ósýnileg.
Af meistaralegri íþrótt fléttar
Gabriel García Márquez saman
sögu þjóðar sinnar, kvunndags-
leika hennar, kjaftasagnir og
goðsagnir. Þessi veröld er allt í
senn, jarðbundin og smámuna-
söm, full af undrum og stór-
merkjum. f kynjasögum verks-
ins birtist siðferðileg og pólitísk
alvara skáldsins skýrast og rís
hæst í lýsingunni af jarðarför
Landsmóðurinnar gömlu.
Kári litli enn á ný
■ Æskanhefurgefiðútbókina
Kári litli í sveit eftir Stefán
Júlíusson. Það er þriðja bindið
í sagnaflokki Stefáns um snáð-
ann Kára, fjölskyldu hans og
félaga, að ógleymdum trúnaðar-
vininum Lappa. Hver bók er þó
sjálfstæð saga.
í bókinni segir frá sumardvöl
Kára í sveitinni hjá afa og
ömmu. Hann unir sér þar vel
við starf og leik enda er jafnan
í nógu að snúast fyrir tápmikinn
hnokka.
Kára-bækurnar hafa notið
einstakra vinsælda og selst upp
hvað eftir annað. Höfundur hef-
ur hlotið einróma lof gagnrýn-
'enda fyrir þessar bækur sem
hann samdi ungur kennari
„vegna barna sinna, með börn-
unum sínum og handa börnun-
um sínum“.
snjmjúiJussox
Kári litli
i sveit
Kári litli í sveit er sannkallað
listaverk í máli Stefáns og
myndum Halldórs Péturssonar.
í ritdómi um bókina Kári litli
og Lappi sagði m.a.:
„Afar og ömmur, sem lásu í
bernsku sinni fyrstu útgáfu Kára
litla munu unna barnabörnum
sínum þess að njóta samfylgdar
Kára og Lappa og síðan hver
aldursflokkur af öðrum.“
Það hefur reynst sannmæli.
Kári litli í sveit er 168 bls.
Hún var unnin í Prentsmiðjunni
Odda hf. Kápumynd gerði Pét-
ur Halldórsson.