NT - 03.12.1985, Blaðsíða 23

NT - 03.12.1985, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 3. desember 1985 23 EESEdEES Höfuðverkur - mígreni - í þættin- um Heilsu- vernd ■ Aðventan er byrjuð og var kveikt á fyrsta aðventuljósinu á sunnudaginn. En í dag verður útskýrt í Barnaútvarpinu hvað felst í hugtökunum aðventa og jólafasta. Hvaðerjólafasta og aðventa? ■ Jólafastan er byrjuð og hefur það sjálfsagt ekki farið framhjá hlustendum Barnaút- varpsins, sem trúlega eru í hópi þeirra sem hvað nákvæm- ast telja dagana til jóla. Það er þó ekki víst að þeir geri sér allir ljósa merkingu orðanna jólafasta og aðventa. Sr. Bernharður Guðmunds- son ætlar að ræða um þessi hugtök og útskýra fyrir börn- unum hvað átt er við með þeim. Þá verður líka smápistill frá Sigríði Sigurðardóttur sagnfræðingi um sama efni. Því hefur stundum verið haldið fram að tsland væri eitt fárra landa sem ekki gæti stát- að af járnbrautarlest. Þetta er ekki alveg rétt, því að einu sinni var hér járnbrautarlest og verður sagt frá henni í Barnaútvarpinu í dag. ■ Þátturinn í dag, í dagsins önn, fjallar um heilsuvernd og er í umsjón Jónínu Benedikts- dóttur. Hann hefst í útvarpi kl. 13.30. t þættinum verður fjallað um höfuðverk og mígreni, sem hefur á samviskunni ótalda glataða vinnudaga og ómælda vanlíðan fórnarlamba sinna. Grétar Guðmundsson tauga- sjúkdómalæknir kemur í þátt- inn og svarar spurningum Jón- ínu, eins og t.d.: Hvernig getur fólk þekkt einkenni mígreni, hvað er mígreni, er til eitthvað sem heitir mígreni, hefur stress og ýmsir velmegunarsjúkdóm- lar áhrif á höfuðverk og mígr- eni, hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir þessa sjúk- Sjónvarp kl. 21.25: ■ Jónína Benediktsdóttir tal- ar við þolanda og sérfræðing um mígreni í dag. dóma, eru þeir algengir o.s.frv.? í þáttinn kemur líka kona sem hefur mikið þjáðst af mígreni og getur því talað af eigin reynslu. Allir liggja nú und- ______________________________ir grun - nema þeir Halastjarna Halleys sem eru dauðir! 9 w ■ Þá eru hálfnaðar sýningar. Maxie-fjölskyldunr Sjónvarp kl. 20.45: ■ Halastjarna Halleys er ný bresk heimildamynd sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld kl. 20.45. Þar verður sagt frá Edmond Halley og halastjörn- unni sem kennd er við hann, en hún sést á 76 ára fresti og styttist nú óðum í að menn geti litið hana berum augum. f myndinni eru einmitt leiðbein- ingar um hvernig því sé best háttað. í myndinni koma fram upp- lýsingar af ýmsu tagi. Þar segir t.d. frá þeirri hjálp sem Isaac Newton, vinur Halleys, veitti honum við að reikna út braut halastjörnunnar, sem hann hafði veitt athygli að birtist aftur og aftur á mörg hundruð árum og grunaði að væri ein og sú sama. Skv. þeim útreikning- um gat Halley reiknað út hve- nær hún myndi birtast næst. Þessir útreikningar Isaacs Newton leiddu til þess að hann gaf út á bók þyngdarlögmál sitt sem haldið hefur nafni hans á lofti allar götur síðan. Þýðandi og þulur er Trausti Guðmundsson. Ari sýnmgar. á breska sakamálamynda- flokknum Til hinstu hvíldar, en fjórði þáttur hans verður sýndur kl. 21.25 í kvöld. Það bar margt til tíðinda í síðasta þætti og fer því fjarri að allt sé með ró og spekt í húsi ■ Sally Jupp hefur ekki verið samvinnuþýð við lögregluna. Og nú er hún dáin og Jimmy litli móðurlaus (og reyndar föðurlaus líka að því er virðist.) -fjölskyldunnar. Dóttir- in hafnar bónorði þolinmóða biðilsins en sonurinn trúlofað- ist Sally Jupp við litla hrifningu fjölskyldu hans. Það var þó skammgóður vermir, því að þar skildum við við Sally síðast sem hún lá steindauð í rúminu. Ekki var þó hægt að gera því algerlega skóna hver hefði ver- ið þar að verki, því að flestir sem við sögu komu virtust þjást af svefnleysi og voru á sífelldu rápi í og við húsið. Það upplýstist að Sir Reyn- old Price er ekki allur þar sem hann er séður og hefur m.a. vísvitandi eða óvitandi lagt fjármuni til kaupa á fíkniefn- um. En hann er harður í horn að taka og gefst ekki svo auðveldlega upp. Það má eiginlega segja að þau einu sem ekki liggja undir grun nú séu þau sem eru dauð! Þriðjudagur 3. desember 7.00 Veöurfregriir. Fréttir. Bæn 7.15 Morgunvaktin 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis, Elvis“ eftir Mariu Gripe Torfey Steinsdóttir þýddi. Sigur- laug M. Jónasdóttir les (5). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þátt- ur frá kvöldinu áöur sem Margrét Jónsdóttir flytur. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 Lesið úr foaistugreinum dag- blaðanna. 10.40 „Ég man þá fið“ Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.10 Úr atvinnulífinu - Iðnaðarrás- in. Umsjón: Gunnar B. Hinz, Hjört- ur Hjartar og Páll Kr. Pálsson. 11.30 Úr söguskjóðunni - Þegar Reykjavikurbaer gekk i Brunabóta- félag danskra kaupstaöa. Umsjón: Ingvar Gunnarsson. Lesari: Olöf Rafnsdóttir. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 I dagsins önn - Heilsuvernd Umsjón: Jónína Benediktsdóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Sögur úr lífi rnínu" eftir Sven B. F. Jansson. Þorleifur Hauksson lýk- ur lestri þýðingar sinnar (7). 14.30 Miðdegistónleikar 15.15 Barið að dyrum Inga Rós Þórðardóttir sér um þátt frá Austurlandi. 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Hlustaðu með mér. - Edvard Fredriksen. (Frá Akureyri) 17.00 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristín Helgadóttir. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 19.50 Lestur úr nýjum barna- og unglingabókum Umsjón: Gunn- vör Braga. Kynnir: Sigurlaug M. Jónasdóttir. 20.30 Aðdragandi sprengjunnar - síðari hluti. Flosi Ólafsson les síðari hluta erindis eftir Margaret Gowing um ástæður þess að kjarn- orkusprengjum var varpað á jap- önsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí 1945. Þýðandi: Haraldur Jóhannesson hagfræðingur. 20.55 Konan Þórunn Elfa Mangús- dóttir les frumort Ijóð. 21.05 íslensk tónlist a. Trompetsón- ' ata op. 23 eftir Karl O. Runólfsson. Björn Guðjónsson og Gísli Magn- ússon leika. b. „Unglingurinn í skóginum" eftir Ragnar Björnsson. Eygló Viktorsdóttir, Erlingur Vig- fússon og Karlakórinn Fóstbræður syngja. 21.30 Utvarpssagan: „Saga Borg- arættarinnar" eftir Gunnar Gunnarsson. Helga Þ. Stephen- sen les (23) 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags 22.14 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. 22.25 Spjall á síðkvöldi - um jarð- skjálfta Umsjón: Einar Þorsteinn Ásgeirsson og Inga Birna Dungal. Áður útvarpað 5. þ.m. 23.05 Kvöldstund í dúr og moll með Knúti R. Magnússyni. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Þriðjudagur 3. desember 10.00-10-30 Ekki á morgun... heldur hinn Dagskrá fyrir yngstu hlust- endurna frá barna- og unglinga- deild útvarpsins. Stjórnendur: Kolbrún Halldórsdóttir og Valdis Óskarsdóttir. 10.30-12.00 Morgunþáttur Stjórn- andi: Páll Þorsteinsson Hlé 14.00-16.00 Blöndun á staðnum Stjórnandi: Sigurður Þór Salvars- son. 16.00-17.00 Frístund Unglinga þátt- ur Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson. 17.00-18.00 Sögur af sviðinu Stjórn- andi: Þorsteinn G. Gunnarsson. Þriggja minútna fréttir sagöar klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00 17.00-18.00 Ríkisútvarpið á Akur- eyri - svæðisútvarp. Þriðjudagdur 3. desember 19.00 Aftanstund Endursýndur þátt- ur frá 25. nóvember. 19.25 Ævintýri Olivers bangsa. Fjórtándi þáttur Franskur brúðu- og teiknimyndaflokkur í þrettán þáttum um viðförlan bangsa og vini hans. Þýðandi Guðni Kolbeins- son, lesari með honum Bergdis Björt Guðnadóttir. 19.50 Fréttir á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.45 Halastjarna Halleys Ný bresk heimildamynd um Edmond Halley (1656-1742) og halastjörnuna sem kennd er við hann. Hún sést með berum augum á 76 ára fresti og stefnir nú óðfluga í átt til jarðar. í myndinni eru m.a. leiðbeiningar um hvernig helst megi fylgjast með ferbum halastjörnunnar er hún nálgast. Þýöandi og þulur Ari Trausti Guðmundsson. 21.25 Til hinstu hvíldar (Cover Her Face) Nýr flokkur - Fjórði þáttur Breskur sakamálamyndaflokkur í sex þáttum eftir sögu P.D. James, Aðalhlutverk: Roy Marsden. Adam Dalgliesh rannsakar dauða manns sem grunaður er um fíkniefnasölu. Hann rekur slóðina heim á sveita- setur þar sem ekki reynist allt með felldu. Þýðandi Kristrún Þóröar- dóttir. 22.35 Hvað bíður okkar? Umræðu- þáttur i beinni útsendingu. I tilefni þess að Ári æskunnar er að Ijúka býður Sjónvarpið nokkrum hópi æskufólks til óformlegs fundar með Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra, og Sverri Her- mannssyni, menntamálaráðherra. Umræðum stýrir Ingvi Hrafn Jónsson. 23.45 Fréttir í dagskrárlok. Forval Ætlunin er að bjóða út innanhússfrágang nýbyggingar Listasafns íslands að Fríkirkju- vegi 7, Reykjavík. Til undirbúnings útboði er ákveðið að fram fari könnun á hæfni þeirra verktaka, sem bjóða vildu í verkið, áður en útboð fer fram. Er því þeim, sem áhuga hafa, boðið að taka þátt í forvali og munu þeir, sem hæfir þykja, fá að taka þátt í lokuðu útboði um verkið. Forvalsgögn verða afhent hjá Innkaupa- stofnun ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 1.000.- kr. skilatryggingu. Útfylltum gögnum skal skilað á sama stað eigi síðar en föstudaginn 13. des. 1985, kl. 12.00. Jón Helgason, landbúnaðarráðherra, boðar til almennra funda um landbúnaðarmál, í Félagsheimilinu á Blönduósi föstudaginn 6. desember kl. 13, á Hvammstanga sama dag kl. 21 og í Miðgarði laugardaginn 7. desemb- er kl. 13.30. Landbúnaðarráðuneytið Lokað Vegna útfarar Jóns Kjartanssonar, forstjóra verða skrifstofur vorar, afgreiðslur, útsölur og vörugeymslur í Reykjavík og úti á landi lokaðar frá kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 3. desember. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins Lyfjaverslun ríkisins Lokað Vegna útfarar Jóns Kjartanssonar fyrrv. alþingismanns, verður skrifstofa Framsókn- arflokksins lokuð í dag, þriðjudag 3. desem- ber, kl. 12.00-15.00. Skrifstofa Framsoknarflokksins. t Faðir okkar og tengdafaðir Sigurður Hólmsteinn Jónsson blikksmíðameistari, Mimisvegi 6, Reykjavik, andaðist á Borgarspítalanum 1. desember. Baldur Sigurðsson Hulda Þorláksdóttir Magnús Sigurðsson Kristjana Karlsdóttir Ólöf Helga Sigurðard. Ásmundur Brekkan Brekkan Hólmsteinn Sigurðsson Guðný Pétursdóttir t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi Jón Kjartansson forstjóri Háteigsveg 44 verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 3. desember 1985 kl. 13.30. Þórný Þ. Tómasdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.