NT - 03.12.1985, Page 24

NT - 03.12.1985, Page 24
 '1 1 .*■!!!!."! 'f Við tökum vid ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leið ir til fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, simi: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • rjtstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495 ' Ársþing KSÍ: Ellert áfram - sem formaður - Helstu tillögur felldar ■ Ársþing Knattspyrnusam- Schram var endurkjörinn for- bands íslands fór fram í Vest- maður sambandsins. Tillaga , mannaeyjum um helgina. Ellert þess efnis að formaður skuli aðeins kjörinn til tveggja ára í i senn var samþykkt á þinginu og er það vel. Þá voru allar þær tillögur sem hvað mesta athygli vöktu á þing- inu felldar. Hér er um að ræða tillögu um fjölgun í 1. deild, tiltögu um að leyfa 1. og 2. deildarliðiím að senda B-lið í neðri deildirnar og tillögu um deildarbikarkeppni. NM unglinga í sundi: Eitt íslandsmet - Bryndís Ólafsdóttir setti það í 200m skriði ■ Bryndís Ólafsdóttir setti nýtt íslandsmet í 200 m skrið- sundi á Norðurlandamóti ung- linga í sundi sem lauk í Osló um helgina. Bryndís synti á 2:08,61 mín.en þrátt fyrir þennan árang- ur varð hún að sætta sig við sjöunda sætið í sundinu. Bryn- dís varð aftur á móti í 3.-4. sæti í lOOm skriði og hreppti brons- verðlaun. Systir Bryndísar, Hugrún setti tvö íslensk telpnamet á mótinu. Hún synti á 2:09,31 í 200 m skriði og á 2:35,00 í 200 m fjórsundi. Hugrún er aðeins fjórtán ára gömul. Ragnar Guðmundsson var einnig í miklu stuði á mótinu. Hann varð þriðji í 100 m, 400nt og 1500m skriði og í fjórða sæti í 200m skriði. Jafnt hjá Uerdingen Frá Guðmundi Karlssyni í Þýska* landi: ■ Uerdingen sem þeir Atli og Lárus leika með í Þýskalandi gerði jafntefli gegn Dusseldorf í þýsku knattspyrnunni 1-1 um helgina. Þeir félagar Atli og Lárus léku báðir með en tókst ekki að skora. Uerdingen var betra í fyrri hálfleik en í þeim síðari jafnaðist leikurinn. Ársþing FRÍ ■ Guðni Halldórsson var endurkjörinn formaður Frjálsíþróttasambands ís- lands á þingi þess um helg- ina. Öll stjórnin var endur- kjörin. Það vakti athygli að FRÍ skilaði tekjuafgangi á þessu ári. ■ Eins og áður hefur komið fram í NT þá fór fram ársþing Karatesambands íslands um daginn. Á þinginu var kosin „Karateljósmynd ársins“. Þetta mun verða árlegur viðburður á þingi KAÍ að velja Ijósmynd ársins. Sá sem fyrstur hlaut verðlaunin er Friðþjófur Helgason á Morgunblaðinu en hann tók myndina á NM í haust. Myndin er hér að ofan og nú er það lesenda að dæma hvort ekki hafí tekist vel til. V-þýskur handknattleikur: Fjórði sigurinn - hjá Dankersen - Nú voru Atli og félagar lagðir Frá Guðmundi Karlssyni frcttaritara NT í Þý.skalandi: ■ Dankersen, lið Páls Ólafs- sonar bar sigurorð af Gunzburg, sem Atli Hilmarsson leikur með, í þýska handknattleiknum um helgina. Þetta er fjórði sigur Dankersen í röð eftir sjö tap- leiki. Fyrir framan 1300 áhorf- endur sýndu heimamenn klærn- ar í síðari hálfleik eftir jafnan fyrn hálfleik. Þá náðu leikmenn Dankersen 3-5 marka forystu sem hélst út leikinn. Páll Ólafs- son gerði eitt mark. Hann lék ágætlega, stýrði liðinu vel en reyndi helst til lítið sjálfur. Atli var eínn besti maður síns liðs og skoraði fimm gullfalleg mörk með uppstökkum. Atla og fé- íröð lögum er heldur að fatast flugið nú uppá síðkastið. í 2. deild sigraði lið Bjarna Guðmundssonar Verden með 29 mörkum gegn 22 á útivelli. Bjarni varð markahæstur hjá Wanne gerði 7 mörk. Það var aðeins á lokamínútunum sem Wanne náði að tryggja sér sigur. Stórmót íþróttafréttamanna í innahússknattspyrnu: Hörkuspennandi stórmót - KR-ingar sigruðu annað árið í röð eftir framlengdan úrslitaleik gegn Fram - íþróttafréttamenn sigruðu Þór létt um geysispennandi viðureign að ræða. Eftir venjulegan leiktíma var jafnt 3-3 og þurfti þá að framlengia. K.R.-ingar skoruðu markið sem dugði til sigurs og létu þvíbikarinn góða ekki af hendi heldur tóku hann með sér í Vesturbæinn á ný. Sæbjörn Guðmundsson, okkar besti innanhússknatt- spyrnumaður, fór á kostum í úrslitaleiknum og skoraði þrennu. Sævar Leifsson skor- aði svo fjórða mark. K.R.- inga. Áðurnefndir tveir ásamt Ágústi Má Jónssyni voru bestu menn sigurliðsins sem virkaði mjög heilsteypt í mótinu. Heimir Guðjónsson og Rúnar Kristinsson, hinir ungu og stór- efnilegu leikmenn K.R.-inga, fengu báðir að spreyta sig með liðinu og stóðu sig vel. Framarar sigruðu íslands- meistarana Fylki í undan- úrslitaleik með fimm mörkum gegn fjórum, en þessi tvö lið ásamt K.R. ingum voru áber- andi sterkustu lið mótsins. Guðmundur Steinsson og nafni hans Torfason voru at- kvæðamestir í Framliðinu. Fylkir hafnaði í þriðja sæti mótsins en liðið sigraði Val í keppni um það sæti. Fylkir, með sinn besta mann Kristin Guðmundsson í góðu formi, lék vel á mótinu og sigraði m.a. K.R. í fyrsta leiknum. Það verður því allt annað en auðvelt að hrifsa af þeim ís- landsmeistaratitilinn næsta ári. Mest á óvart kom sigur liðs íþróttafréttamanna á 1. deild- arliði Þórs frá Akureyri. Leikurinn fór 5-2 og við það misstu Þórsarar af úrslita- keppninni. íþróttafréttamenn léku vörnina „að þvælast fyrir“ og skoruðu úr beittum hraða- upphlaupum. Það sama var ekki að segja um næsta leik íþróttafréttamanna gegn Fram en sá tapaðist þó tölur hafi að vísu einnig tapast úr þeirri viðureign. Ómar Ragnarsson og stjörnulið hans mætti uppá ■ K.R.-ingar sigruðu annað árið í röð á stórmóti íþrótta- fréttamanna í innanhússknatt- spyrnu en mótið var haldið í íþróttahúsinu á Akranesi á sunnudaginn. Það voru Reykjavíkurliðin Fram og K.R. sem mættust í úrslitaleik mótsins og var þar ■ Sigurvegarar í innanhússknattspymu. Akranes og lék þar gegn Gull- aldarliðinu fræga og sáust þar oft ein bestu tilþrif mótsins. Þá voru Vígamenn einnig á staðn- um og brutu múrsteinshellur á manni liggjandi á naglabretti og sneru naglarnir ekki öfugt. Þeim Var klappað lof í lófa. Það voru átta lið sem tóku þátt í þessu sterka móti. í A-riðlinum léku Akranes, K.R., Fylkir og Keflavík. K.R.-ingar fengu fjögur stig. Fylkir og Akranes voru með þrjú stig hvort en Fylkir fór áfram á betri markatölu. Keflavík rak lestina með tvö stig. I B-riðlinum voru Framarar efstir með fjögur stig en Valur og Þór voru með þrjú stig hvort lið og íþróttafréttamenn fengu 2 stig. Valsmenn voru hins vegar með betri marka- tölu og fóru í úrslitin. í undanúrslitunum sigraði K.R. lið Vals og Fram sigraði Fylki. K.R.-ingar mættu svo Fram eins og áður sagði, í úrslitaleik mótsins, sigruðu og fengu bikarinn, sem Adidas gaf, aftur í sínar hendur.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.