NT - 10.12.1985, Page 2

NT - 10.12.1985, Page 2
Þriðjudagur 10. desember 1985 2 Klofningur BJ endanlegur eftir landsfundinn: „Sá draugur er niður kveðinn“ - segir Stefán Benediktsson ■ Kristín Kvaran, þingmaður, sagði sig úr þingflokki Bandaiags jafnaðarmanna í gær. Meginástæða hcnnar var ósætti við þann forgang sem Bandalagið gefur hugntyndum sínum um stjórnkerfisbreytingar. Pó Kristín telji stjórnkerfisbreytingar markmið sem stefna beri að, sé nú brýnasta verkefnið að bcita sér l'yrir því að lífskjör fólks í landinu séu tryggð; að baráttan fyrir breyttu stjórnkerfi gangi ekki fyrir baráttu fyrir lifibrauði fólks. Stefán Benediktsson, nýkjörinn formaður þingflokks Bandalags jafnaðarmanna, sagðist ekki vera hissa á úrsögn Kristínar. Sagöi hann að tengsl hennar við andófshópinn svokallaða, Félag jafnaðarmanna, hefðu verið <)llum kunn þó aðágrcin- ingur hennar við þinglíokkinn hal'i ekki að ráði komið upp á þingflokks- fundum. Stefán stigðist líta svo á, að með málflutningi sínum hefði Krist- ín sagt skilið við Bandalag jafnað- armanna og þá grundvallarstefnu að stjórnkerfisbreyting væri forsenda bættra lífskjara. Taldi liann rökrétt framhald af málflutningi hennar að hún gengi til liðs við „fjórflokkinn". Ursögn hennar væri í raun beint framhald af því sem gerst hafi á landsfundinum um helgina, en þar var endanlega gengið frá klofningi Bandalags jafnaðarmanna og Félags jafnaðarmanna. „Ég tel það ákveðinn árangur þcssa landsfundar, að sá draugur er algerlega niður kveöinn", sagði Stefán um klofning Félags jafnað- armanna úr Bandalagi jafnaðar- manna. ■ Landsfundur Bandalags jafnaðarmanna nú um helgina markaði endanlegan klofning BJ og Félags jafnaðar- manna, að sögn Stefáns Benediktssonar, sem hér sést í ræðustól. Stefán var kjörinn formaður þingflokksins í stað Guðmundar Einarssonar, sem var kjörinn formaður BJ. NT-mynd Róbert Ægibjartur víga- hnöttur í vestri ■ Ægibjartur vígahnöttur sást á himni, yfir Suðurlandi á föstu- dagskvöld. Feðgarnir Sigurjón Grétarsson og Grétar Oskars- son frá Seljavöllum undir A- Eyjafjöllum sáu fyrirbærið úr bíl sínum, þegar þeir voru á heimleið frá Fiellu. Sigurjón lýsti þessu sem björtum hnetti setn bar hratt yfir. „Við vorum það nálægt fjöllunum að við sáum fyrirbær- ið einungis í stutta stund, þar til það hvarf niður fyrir sjóndeild- arhringinn á bak við fjöllin" sagði Sigurjón í sámtali við NT í gær. Faðir hans Grétar varð vitni að fyrirbærinu, og taldi hann að sennilegast hefði verið um loftstein að ræða. „Þetta var miklu nær og stærra en venju- legt stjörnuhrap. Fyrirbærið var ægibjart og stafaði frá því blá- leitur bjarmi", sagði Grétar. NT ræddi viö feðgana í gær, og bar lýsingum þeirra saman. Þeir voru sammála um að þeir hefðu aðeins séð fyrirbærið í nokkrar sekúndur. Hinsvegar sáu þeir það báðir undir eins. Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur sagði í samtali við NT í gær, að möguleikar á því að þarna hefði verið loft- steinn á ferð væru miklir. „Þetta passar allt við loftstein eða vígahnött. Bláleitur bjarmi, ægibirta og mikill hraði. Það getur vel átt við loftstein." sagði Þorsteinn. Ha, hvað varstu eitthvað að tala um dagvistun? Afmælisveisla Reykjavíkur- borgar fyrir 160 millj. ASÍ-drög að kjarasamningi: Uppstokkun á launakerfinu ■ Á fundi sem formenn aðildar- samtaka ASÍ héldu í gær var á- kveðið að fela miðstjórn, og for- mönnum landssambanda og svæðasambanda að undirbúa við- ræður ASÍ við atvinnurekendur um kjarasamninga á grundvelli draga, sem miðstjórnin lagði fyrir fundinn. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði við NT í gær, að í þess- um drögum væri lögð höfuðá- hersla á þrjú atriði. í fyrsta lagi hvernig tryggja megi þann kaup- mátt, sem samið verður um með ráðstöfunum til að halda verðlagi í skefjum. Þá á að setja rauð strik og standist verðlagsforsendur ekki á að bæta upp mismuninn, auk þess sem heimilt verður að segja upp samningnum með 1 mánaðar fyrir- vara hafi í tvígang verið farið yfir rauðu strikin. Þá er í öðru lagi gert ráð fyrir að launakerfið verði stokkað upp og komið á nýju taxtakerfi til að koma í veg fyrir launamisrétti sem yfir- borganir orsaka. Verða yfirborg- anir þá teknar inn í launataxta. en mjög algengt er að stórir hópar sitji Hafskips- skatturinn ■ Áætlað er að hver fjöl- skylda í landinu þurfi að punga út 10 þúsund krónum á næsta ári til að mæta tekjutapi ríkisins vegna Hafskipsmálsins. Gengur þessi tíuþúsundkall undir nafn- inu Hafskipsskatturinn og menn mishressir að þurfa að taka þátt í að borga kjarnorku- klúðrið, einkum og sér í lagi þar sem enginn virðist eiga að verða dreginn til ábyrgðar í þessu máli. Dropar hafa hlerað sam- kvæmt ábyggilegum heimildum að í bígerð sé að koma af stað fjötóahreyfingu til að neita að borga síðasta tíuþúsundkallinn af sköttum næsta árs. Gúmmítékkar til sölu ■ Keflvíkingar eru útsjóna- samir og kunna að haga sér í viðskiptum, og þeirra einkunn- arorð er, að allt'sé falt. Meira að eftir á töxtum einum, það jafnvel í atvinnugreinum þar sem yfirborg- anir tíðkast mikið. Þá á að stokka upp kaupaukakerfin og auka fasta hlutann í þeim og minnka hlut bón- ussins. í þriðja lagi á ræða við atvinnur- ekendur um ýmis önnur atriði og svo er gert ráð fyrir að rætt verði við ríkisstjórnina um félagslegar aðgerðir og þó einkum í íbúðar- málum, sem brenna mjög á fólki núna. Ásmundur sagði að á fundinum hefði komið fram áhersla á raun- verulega kaupmáttaraukningu með traustri kaupmáttartryggingu. Til að ná þessu verða aðildarfélög- in að standa þétt saman. Sagði hann þetta mjög í anda þeirfa sam- þykkta sem komið hefðu á þingum aðildarsamtaka. Bjóst hann við að reynt yrði að ná 8 prósenta kaup- máttaraukningu, eins og talað var um á þingi VMSÍ. Þá bjóst Ásmundur við að við- ræður við VSÍ og Vinnumálasam- bandið myndu hefjast um eða upp úr næstu helgi enda væri lítill tími til stefnu áður en samningar renna segja gúmmítékkar. í Keflavík- inni taka verslunareigendur sig til og reyna að lífga upp á út- stillingagluggana hjá sér en þeir fara öðruvísi að en kollegar þeirra annarsstaðar á landinu. Hengja þeir upp gúmmítékka, sem bankarnir hafa neitað að leysa út vegna þess að innistæðu vantaði og bjóða þá til sölu. Það er kannski orðum aukið að sleg- ist sé um tékkanna, en salan gengur þó jafnt og þétt, því mönnum finnst ekkert sniðugt að sjá undirskrift sína á inni- stæðulausum tékkum í búðar- gluggum og eru því tilbúnir að borga andvirðið til að fá tékk- ann fjarlægðan.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.