NT - 10.12.1985, Síða 3
Þriðjudagur 10. desember 1985
Atvinnuleysi í nóvember:
Helmingsaukning
frá októbermánuði
■ 2l þúsund atvinnuleysisdagar
voru skráöir í nóvember en þaö
samsvarar því að um 960 manns
_ hafi verið atvinnulausir sem jafn-
gildir 0,8% atvinnuleysi. Er þetta
uin helmingsaukning frá fyrra
mánuöi en þá voru um 475 manns
atvinnulausir. Þrátt fyrir þessa
ntiklu aukningu er ástandið þó
rnun skárra en á sama tíma í fyrra
en þá voru um þrettán hundruö
manns á atvinnuleysisskrá.
Atvinnuleysisdögum fjölgaði frá
októbermánuði í öllum landshlut-
um öðrunt en Suðurlandi. Mest
varð aukningin á Norðurlandi
eystra eða 4.400 dagar og munar
þar mestu um að fiskvinnslan á
Ólafsfirði og Húsavík stöðvaðist í
mánuðinum.
Yfirleitt hefur atvinnuleysi auk-
ist mikið á þessum árstíma og farið
enn versnandi í desember. Bendir
allt til þess að sama þróun eigi sér
stað í ár.
■ Samvinnusjóður íslands hf.
hefur nú efnt til samkeppni um
bestu hugmyndina að nýjum tæki-
færum í íslensku atvinnulífi og leit-
ar sérstaklega eftir nýjum fram-
leiðsluvörum og þjónustustarf-
semi, jafnt innan hefðbundinna at-
vinnugreina sem á nýjum sviðum.
„Við erum einkum að sækjast
eftir hugmyndum sem geta leitt til
framleiðslu og sölu til útflutnings,
eða sem skapa gjaldeyristekjur,"
sagði Þórður Ingvi Guðmundsson
framkvæmdastjóri sjóðsins, þegar
samkeppnin var kynnt fyrir blaða-
mönnum, „en að sjálfsögðu þarf
ekki endilega að afmarka hug-
myndirnar við það, því allar tillög-
ur eru vel þegnar.
Hugmyndirnar eða tillögurnar
skulu annars vera hnitmiðaðar og af-
markaðar, og fylgja með þeim ein-
hverjar upplýsingar um hvernig
framkvæmdin geti leitt til fram-
leiðslustarfsemi, einnig hver hugs-
anlegur kostnaður við hana gæti
orðið og jafnvel mögulegir mark-
aðir.“
Samvinnusjóðurinn áskilur sér
notkunarrétt að verðlaunatillögum
sem hann álítur fýsilegar til áfram-
haldandi rannsóknar og þróunar í
því augnmiði að stuðla að fram-
leiðslu.
I. verðlaun í samkeppninni eru
200 þúsund kr. 2. verðlaun 100
þúsund krónur og 3. verðlaun 75
þúsund krónur en skilafrestur á til-
lögum er til 20. febrúar og sagði
Þórður, að úrslit yrðu líklega
kynnt í lok mars, á næsta ári.
„Samkeppni þessi er ein aðferð
Samvinnusjóðsins til að efla ís-
lenskt atvinnulíf, en það er einmitt
megin tilgangur hans,“ sagði
Þórður, „og hefur undanfarin ár
veitt miklu fé t.d. í fiskeldi og raf-
eindaiðnað. Einnig miðast starf-
semi sjóðsins mikið við skulda-
bréfaútgáfu og gerð kaupleigu-
samninga, nú stendur t.d. öllum til
boða að sjóðurinn hafi milligöngu
um gerð kaupleigusamninga m.a.
við véla- eða tækjakaup. Á þeim
þremur árum sem sjóðurinn hefur
starfað hafa umsvif hans aukist
mikið,“ sagði Þórður að lokurn.
Þór Whitehead:
„Stríð fyrir
ströndum“
■ „Stríð fyrir ströndum" eftir Þór
Whitehead sagnfræðing er komin út
hjá Almenna bókafélaginu. í bókinni
leitar höfundur svara við spurningum
sem lengi hafa verið í hugum íslend-
inga. Hvað ætluðu Þjóðverjar sér
með landið og þjóðina? Höfðu Þjóð-
veriar gert áætlun um að taka landið?
A blaðamannafundi sem AB boð-
aði til sagði Þór Whitehead að áður en
hann hóf rannsóknir sínar og heim-
ildaöflun, hafi hann talið að svarið við
ofanrituðum spurningum væri
jákvætt. „Við fyrstu sýn sannfærðist
ég þó um að svo væri ekki,“ sagði
hann. Ritið ber þess þó ekki vott,
enda sagði Þór að hann hefði snúist í
hring og í bókinni sýnir hann fram á
hvernig Þjóðverjar ófu net sitt á ís-
landi.
Fyrri hluti bókarinnar nefnist Gerl-
ach leggur net sín og fjallar um við-
Hagvirki krefst
fimmtíu milljóna
Landsvirkjun býðst til að borga
á aðra milljón
■ Landsvirkjun hefur neitað
að greiða 40 milljón króna
kröfu frá verktakafyrirtækinu
Hagvirki, auk vaxta og kostnað-
ar, vegna verkframkvæmda við
fjórða áfanga Kvíslaveitu í ár.
Aður hafði Landsvirkjun neitað
að greiða svipaða kröfu, upp á
60 milljónir, vegna fram-
kvæmda árið 1984. Krafa þessi
fer nú fyrir Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen sem er ráð-
gjafastofa Landsvirkjunar og
hefur Verkfræðistofan þrjá
mánuði til að skila úrskurði
sínum.
Kröfur þessar eru settar fram
vegna þess að forsendur fyrir út-
boðinu stóðust ekki þegar til
kom. Reyndust magnflutningar
mun meiri en áætlað var og auk
þess var lýsing á jarðlögum
röng. Landsvirkjun hefur þó
ekki alfarið neitað þessum kröf-
um en boðist til að greiða á aðra
milljón til verktakans.
Úrskurðar í deilunni unt 1984
er_að vænta frá Verkfræðistof-
unni nú um miðjan desember.
Verði hann neikvæður fyrir
verktakann er mjög líklegt að
málið fari fyrir dómstóla.
Hjá Hagvirki starfa nú rúm-
lega 150 manns og var engurn
sagt upp um síðustu mánaða-
mót. Enn eru flestar vinnuvél-
arnar í fullri nýtingu en nú fyrir
áramót mun þremur verkum
ljúka en það er gatnagerð í
Hafnarfirði, Reykjanesbrautin
upp í Breiðholt og Vogalax á
Suðurnesjum. Að venju mun
vinna hjá fyrirtækinu liggja
niðri frá 20. desember til 6. janú-
■ Knstján Jóhannsson framkvæmda stjóri AB og Þór Whitehead sagn-
fræðingur og höfundur bókarinnar Stríð fyrir ströndum. Þór kynnti nýútkomna
bók sína á blaðamannafundi í gær. nt-mynd: Ámi Bjama
leitni hins þýska ræðismanns, undir-
róðursmanns og SS-foringja til að
hrinda í framkvæmd áætlunum nas-
ista um ísland. Seinni hlutinn ber
heitið í upphafiófriðarogfjallarm.a.
um stríðsátök skífpa hér við land.
■ Þórður Ingvi Guðmundsson framkvæmdastjóri Samvinnusjóðs íslands hf.
NT-mvnd: Árni Bjama.
Samvinnusjóðurinn:
Efnir til hug-
myndasamkeppni
- um bestu tillöguna að nýjum
tækifærum I íslensku atvinnulífi
P
GLANS-HETTU-
GALLAR
í öllum stærðum.
Mjög gott verð, frá kr. 2.273.-
Einnig stakar glans-gallabuxur
frá kr. 1.027.-
SPOWORUmSLUN
JNGOLFS
OSKARSSONAR
A H0RNI kLAPPARSTIGS
0G GRETIISGÖTU
s: 11783
Heildsala-sími 10-3-30
•Soimumí•
PÓSTKRÖFU